Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 11.05.2012, Blaðsíða 6
BLÖNDUNARLOKI FYLGIR. VÖNDUÐ VARA ÁRATUGA REYNSLA HITAKÚTAR RYÐFRÍIR NORSK FRAMLEIÐSLA Olíufylltir rafmagnsofnar Stærðir: 250W-2000W Í 61. grein stjórnarskrárinnar segir: „[...] má veita þeim dómara, sem orðinn er fullra 65 ára gamall, lausn frá embætti, en hæstaréttardómarar skulu eigi missa neins í af launum sínum.“ Spáir hærri stýrivöxtum Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi bank- ans sem er á miðvikudaginn, 16. maí. Gangi sú spá eftir verða daglánavextir bankans 6,25 prósent, vextir af lánum gegn veði til sjö daga 5,25 prósent, hámarksvextir á 28 daga innistæðubréfum 5,0 prósent og innlánsvextir 4,25 prósent. „Frá síðustu vaxta- ákvörðun bankans hefur verð- bólgan reynst þrálátari en reiknað var með í spá Seðla- bankans,“ segir Greiningin. Seðlabankinn mun samhliða vaxtaákvörðuninni 16. maí birta nýja verðbólguspá en síðasta spá bankans er frá 8. febrúar. „Má vænta þess að verðbólguspá bankans verði hækkuð allnokkuð, en krónan hefur verið öllu veikari en ráð var fyrir gert í þeirra síðustu spá,“ segir Greiningin enn fremur og reiknar með áframhaldandi hækkun stýrivaxta, um 0,25 prósentur á vaxtaákvörðunardegi 13. júní – og að hið sama gerist í ágúst. - jh Íslenskur bjór, Bríó sem var þróaður sérstaklega af Borg Brugghúsi í sam- starfi við Ölstofu Kormáks og Skjaldar, bar sigur úr býtum í sínum flokki í World Beer Cup 2012 sem fram fór í Kaliforníu en 799 bruggverksmiðjur frá 54 löndum tóku þátt í keppninni með samtals tæplega 4000 bjóra. Bríó er fyrsti bjórinn sem Borg Brugghús sendi frá sér fyrir tveimur árum. Til að byrja með var hann aðeins fáanlegur á Ölstofunni en er nú seldur í Vínbúðunum í Kringlunni, Skútuvogi og Heiðrúnu auk fríhafnarinnar í Keflavík. Bríó er nefndur eftir góðum vini þeirra Kormáks og Skjaldar, fjöllistamanninum Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni, sem lést fyrir aldur fram árið 2009. Hann var kall- aður Bríó en bríó er gamalt ítalskt orð yfir gleði. - jh Bríó vann til verðlauna Hærra raungengi Raungengi íslensku krónunnar hækkaði í apríl um 0,3 prósent frá fyrri mánuði á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Er þetta í fyrsta sinn síðan í október sem raungengi krónunnar þróast í þessa átt, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka sem byggir á tölum Seðlabankans. Þessa hækkun á raungengi má rekja til verðlagsþróunar hér í samanburði við í okkar helstu viðskiptalönd, enda lækkaði nafngengi krónunnar um rúm 0,2 prósent á milli mars og apríl miðað við vísitölu meðal- gengis. -jh Tónleikar í Hörpu lokahnykkur Evrópuviku European Jazz Orchestra og Stórsveit Reykjavíkur halda ókeypis stórtónleika í Eldborg á sunnudaginn, 13. maí. Tón- leikarnir eru lokahnykkur á Evrópuviku sem fram fer dagana 7. - 13. maí. European Jazz Orchestra er skipuð ungu tónlistarfólki í fremstu röð sem kemur vítt og breitt frá Evrópu. Hljómsveitin fær á hverju ári til liðs við sig þekkt tónskáld til að semja og útsetja nýja efnisskrá. Stjórnandi hljómsveitarinnar í ár er Jere Laukkanen. Euro- pean Jazz Orchestra hefur að leiðarljósi að gera hlustendum kleift að fá innsýn í tónlistar- flóru ólíkra þjóða. Stórsveit Reykjavíkur mun leika nýja og nýlega tónlist sem samin hefur verið sérstaklega fyrir hljómsveitina. Annarsvegar verða flutt verk eftir Agnar Má Magnússon, Hilmar Jensson og Kjartan Valdemarsson af nýjustu plötu sveitarinnar; HAK, en þess má geta að hún var valin jazzplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum nú nýverið. Hinsvegar verður flutt svíta finnska tónskáldsins Eero Koivistoinen Tvísöngur, en hún byggir á íslenskum þjóð- lagastefjum. - jh  Hæstaréttardómarar óskert laun til æviloka Nær allir nýta sér sérréttindin Stjórnlagaráð hefur lagt til að þessi heimild verði afnumin í stjórnarskrá. a llir nema einn hæstaréttardómari frá árinu 1994 hafa sótt um lausn frá störfum á grund-velli stjórnarskrárinnar og halda þannig óskertum launum til æviloka í stað þess að fara á eftir- laun líkt og aðrir starfsmenn ríkisins. Stjórnlagaráð hefur lagt til að þessi heimild verði afnumin í stjórnar- skrá enda hafi upprunalegur tilgangur hennar ekki verið að tryggja hæstaréttardómurum sérréttindi, að sögn Gísla Tryggvasonar, fulltrúa í stjórnlagaráði. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu hafa átta af níu hæstaréttardómurum frá árinu 1994 sótt um að láta af störfum eftir 65 ára aldur í samræmi við 62. grein stjórnarskrárinnar. Sá eini sem gerði það ekki var Pétur Kr. Hafstein sem fór á eftirlaun 55 ára. Stjórnlagaráð hefur lagt það til að þessi óeðlilegu sérréttindi, eins og Gísli kallar þau, verði afnumin. „Ég fullyrði að það var ekki tilgangurinn með þessari grein í stjórnarskránni, að dómarar væru nær undan- tekningalaust á fullum launum til æviloka,“ segir Gísli. „Stjórnlagaráð leggur til að þetta ákvæði verði afnumið og framvegis verði hæstaréttardómarar á líf- eyrisréttindum en ekki fullum launum eftir starfslok,“ segir hann. Gísli hefur bent á að upphaflegur tilgangur þess- arar reglu um afsögn dómara gegn fullum launum var ekki hugsaður sem trygging sérréttinda til handa dómurum. Reglan var tekið úr dönsku stjórnar- skránni en henni var breytt í Danmörku árið 1933 þegar þessi sérréttindi hæstaréttardómara voru afnumin þar í landi og dómarar fóru á eftirlaun við sjötugsaldur. „Upphaflegi tilgangurinn var að bæta dómurum þann mismun sem þá virðist hafa verið á eftirlaunarétti þeirra og annarra embættismanna þannig að þeir færu ekki á vonarvöl við starfslok og til að tryggja dómara gegn þrýstingi af þeim sökum,“ bendir Gísli á. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Ég fullyrði að það var ekki til- gangurinn með þess- ari grein í stjórnar- skránni, að dómarar væru nær undantekn- ingalaust á fullum launum til æviloka. 6 fréttir Helgin 11.-13. maí 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.