Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 11

Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 11
Við bjóðum betri stöðu Greiddu niður yfirdráttinn á aðeins 9,05% vöxtum Þegar þú semur við Íslandsbanka um að greiða niður yfirdráttinn lækkum við vextina. Þannig lækkar vaxtakostnaður svo um munar. Þetta er einhver besti sparnaður sem völ er á. Dæmi: Ef þú greiðir 360.000 kr. yfirdrátt niður um 15 þúsund kr. á mánuði í 24 mánuði þá sparar þú 51.023 kr. í vaxtakostnað.* Þú færð nánari upplýsingar á islandsbanki.is og hjá ráðgjafa í þínu útibúi. *Miðað við að yfirdráttarvextir lækki úr 11,8% (Gullvild) í 9,05% (þrepalækkun) skv. vaxtatöflu 1. maí. Lægri vaxtaprósenta skilar 10.312 kr. lækkun og lækkandi yfirdráttur 40.711 kr. – samtals 51.023 kr. Lægri vaxtakostnaður islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu F jórmenningarnir eru reiðir yfirvöldum fyrir þá meðferð sem þeir hafa þurft að sæta. Þeim finnst ítrekað brotið á mann- réttindum sínum og segja að ekki sé komið fram við þá með sama hætti og önnur börn á Íslandi. Þeir séu ekki upplýstir um rétt sinn og stöðu né heldur fái þeir nauðsyn- lega aðstoð við almenna hluti, svo sem hvar þeir geti fundið Bónus, en flóttamenn fá inneignarkort í Bónus að upphæð átta þúsund krónur vikulega til að kaupa mat. Þeir fá engan pening aukalega né heldur miða í almenningssam- göngur. Því séu þeir í raun fangar á gistiheimilinu. Þeir vilja fá for- svarsmanneskju og segja félags- málayfirvöld ekki koma fram við þá líkt og þau myndu koma fram við íslensk börn. Þeir spyrja: „Hver ákvað að við ættum að fara á Fit Hostel? Félagsmálayfirvöld áttu ekki að ákveða þetta. Það hlýtur að vera á starfssviði einhvers annars stjórnvalds.“ Að sögn Braga Guðbrandsson- ar, forstjóra Barnaverndarstofu, er það barnaverndaryfirvalda á staðnum að ákvarða hvort börnin séu vistuð á Fit Hostel eða annars staðar. „Í alþjóðlegum reglum um flóttamenn eru ákvæði um að börn 15 ára og yngri séu ekki vistuð í almennum flóttamannabúðum. Það er hins vegar ákvörðun barna- verndaryfirvalda um hvort koma skuli börnum á aldrinum 16 og 17 ára í fóstur. Í þessu tilviki þótti greinilega ekkert mæla gegn því að þessi börn dveljist á Fit,“ segir hann. Reiðir yfir meðferðinni Fjórmenningarnir segjast ekki hafa fengið tíma með félagsráð- gjafanum, enginn hafi sýnt þeim áhuga, enginn hafi talað við þá. „Framkoma fólks á vegum félagsmálayfirvalda einkennist af rasisma. Ekki allra, en sumra,“ segir einn og hinir taka undir. „Við erum reiðir yfir því hvernig komið er fram við okkur þar. Þegar við komum fengum við Bónuskort og símakort. Ekkert meira. Seinna var talað við okkur í 15 mínútur en enginn spurði okkur að neinu. Síðan höfum við ekki hitt neinn fyrr en núna. Þú ert fyrsta mann- eskjan sem við getum rætt við.“ Drengirnir segjast ekki hafa fengið að hitta lækni þótt þeir hafi óskað eftir því. Einn kvartar undan verkjum í kjálka og eyra og annar þjáist af tannpínu. Þær upplýsingar fengust hjá félags- málayfirvöldum í Reykjanesbæ að pantaður væri tími hjá lækni fyrir alla þá flóttamenn sem koma en biðtími sé langur. Næsti tími er bókaður 15. maí. Í neyðartilfellum sé vísað á neyðarvaktina. Einn drengjanna segist ekki hafa fengið skó í sinni stærð og að hann þurfi því að ganga í skóm sem séu tveimur númerum of litlir þrátt fyrir að hafa kvartað undan því við félagsráðgjafa sinn. Félags- málayfirvöld segjast vísa hælis- leitendum á Rauða krossinn hvað varðar fatnað en yfirhafnir og skór fáist í gegnum félagsmálayfirvöld ef þess sé óskað. Engin beiðni finnst um skó í kerfinu við eftir- grennslan. Að sögn félagsmálayfirvalda heyrðu þau fyrst á miðvikudag af óánægju drengjanna með vistun sína á Fit Hostel og mun verða boðað til fundar í næstu viku vegna málsins. -sda Segja fram- komuna ein- kennast af rasisma Í viðtali við Fréttatímann lögðu fjór- menningarnir fram fjölda spurninga tengda stöðu sinni sem þeir höfðu ekki fengið svör við frá yfirvöldum, svo sem hver væri ábyrgur fyrir því að þeir neyddust til að dveljast á Fit. Fréttatíminn bar spurningarn- ar undir Ögmund Jónasson innan- ríkisráðherra sem sagðist ekki vilja svara drengjunum á þessum vett- vangi. Aðspurður sagðist hann ekki hafa kynnt sér aðstæður þeirra sér- staklega en hann hafi fengið upplýs- ingar í gegnum Braga Guðbrands- son hjá Barnaverndarstofu og hjá fangelsismálayfirvöldum. „Mér er mjög umhugað um að ungt fólk sé ekki sett í fangelsi. Sjálfur hef ég mjög miklar efasemdir um að lög- sækja þá sem koma hingað til lands á fölskum skilríkjum, hugsanlega ung að aldri. Við erum hins vegar að horfa á hefðir sem við þurfum að taka allar til endurskoðunar,“ segir Ögmundur. „Það eru augljóslega brotalamir í kerfinu. Þessi mál sem núna eru aðkoma upp varðandi þessa ungu menn er tilefni til þess að herða á þeirri endurskðun sem fram fer í ráðuneytinu á því vinnulagi, reglu- gerðum og lögum sem að þessu lúta. Ég tek allar aðfinnslur og ásak- anir um mannréttindabrot mjög alvarlega og vil láta skoða það og lagfæra þær brotalamir sem eru á þessum málum. Þegar hafa ver- ið stigin skref til að bæta stöðu hælisleitenda og f lóttamanna en það er engan veginn nóg að gert og þetta er okkur tilefni til að herða á þesari vinnu.“ Spurður hvort honum þyki eðlilegt af lögreglunni á Suðurnesjum að halda 15 og 16 ára drengjum í gæsluvarðhaldi og fangelsi þvert á vilja baraverndaryfirvalda svarar hann: „Ég þekki ekki það mál en það virðist tilefni til að skoða það. Ég mun óska eftir skýrslu um öll þessi mál frá öllum hlutaðeigandi yfirvöldum. Lög- reglan hefur ákærandi vald og fer með það og starfar sjálfstætt en samkvæmt þeim lögum sem við setjum og við þurfum augljós- lega að taka til endurskoð- unar. Ég mun óska eft- ir skýrslum um þessi mál og vil brjóta þau til mergjar.“ -sda Umhugað um að ungt fólk sé ekki sett í fangelsi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fréttaskýring 11 Helgin 11.-13. maí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.