Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Síða 22

Fréttatíminn - 11.05.2012, Síða 22
fagið. Einnig hef ég mikinn áhuga á því að geta tekið inn í bókaútgáfu mína verkefni sem tengjast skrifum um heilbrigðiskerfi og hvernig hægt sé að ná bættum árangri innan okkar heilbrigðiskerfis.“ Þannig að námið nýtist þér við bókaútgáf- una? „Já, við gerð allra áætlana og stefnumót- unar Draumsýnar liggur þessi akademíska þekking mín undir. Heilbrigðisstofnanir eins og sjúkrahús eru flóknar skipulags- einingar, en þar fann ég margt sem ég gat yfirfært á rekstur bókaforlags. Bókaútgáfan heitir Draumsýn og erum ég og kona mín eigendur að henni. Við eigum einnig góða að sem þekkja þennan rekstur jafnt innanlands sem utan sem veita okkur góða ráðgjöf og stuðning.“ Magnaðar sjálfsævisögur Ertu alinn upp við að vera óhræddur við að takast á við ný verkefni? „Já, þeir fiska sem róa,“ svarar hann og brosir. ,,Ég vil ekki hafna neinu verkefni fyr- irfram. Ég vil fyrst kynna mér hvað það býð- ur upp á og hvort það sé yfir höfuð hægt að takast á við það með ásættanlegum árangri. Oft er það þannig að það sem við fyrstu sýn virðist fráleitt eða óyfirstíganlegt er nokkuð sem er hægt að vinna með og þróa. En auð- vitað hafna ég verkefnum ef ég sé að ekki sé hægt að vinna úr þeim.“ Eins og áður sagði kom fyrsta bók Draum- sýnar út við hátíðlega athöfn í Norræna hús- inu fyrir skömmu. „Já, þá kom út bókin „Lukkunnar pam- fíll“ eftir norska rithöfundinn Ari Behn. Við ákváðum að gefa aðeins út bók Ari Behn núna og hann heimsótti okkur í tilefni út- gáfunnar. Þannig verður öll athyglin á rit- höfundinn og bókina en skiptist ekki niður á fleiri bækur. Aðrar bækur munu síðan fylgja á eftir og ég get nefnt hér sjálfsævisögu Natöschu Kampuch, sem rænt var í Austur- ríki og haldið fanginni í mörg ár og sjálfs- ævisögu fótboltakappans Zlatan Ibrahimo- vic. Í júní kemur svo út bókin „JEG LEVER PAPPA“ eftir Erik H. Sønstelie og Siri Marie Seim Sønstelie. Siri Marie var í Útey 22. júlí 2011 og slapp naumlega undan Breivik. Hún segir hér sögu sína ásamt pabba sínum sem er gamall blaðamaður af VG. Þetta er mjög vel skrifuð bók. Þau koma hingað til lands til að vera viðstödd útgáfu bókarinnar og segja sína sögu. Tíu bókanna eru nú þegar langt komnar í þýðingum og fjórar eru í vinnslu.“ Bókaútgáfa sem ber að taka af alvöru Hvernig tókst þér að ná samningum um bókaútgáfu á jafn forvitnilegum bókum og raun ber vitni? „Eins og fram hefur komið hef ég verið mikið í Noregi og hef komið mér upp mjög góðum samböndum þar í landi. Nú reyn- ast þau mér vel. Einnig hefur mér tekist að ná góðum persónulegum samböndum við marga sem vinna að útgáfumálum í Danmörku og Noregi svo dæmi séu nefnd. Einnig nýtist mér sú reynsla sem ég hef úr kvikmynda/myndbandabransanum þegar þurfti að „þefa“ upp góðar kvikmyndir. En þegar litið er yfir þann árangur sem hefur náðst frá því að við fórum að leita eftir bókum til útgáfu á Íslandi þá tel ég að við megum vera sátt og sýnum að hér er komin bókaút- gáfa sem ber að taka af alvöru. Við munum leggja áherslu á útgáfu skandinavískra bóka. Til þess að sýna það í verki mun Draumsýn eiga náið samstarf með Norræna félaginu við að kynna norrænar bækur hér á landi. Bókasafn Norræna hússins mun einnig taka þátt í þessu samstarfi. Hvað varðar útgáfu bóka eftir norska höfunda hér á landi þá mun Norska sendiráðið á Íslandi og norska lektoratið taka þátt í kynningu á bókunum og taka þannig þátt í samstarfi Draumsýnar, Norræna félagsins og bókasafns Norræna hússins. Ég mun leitast við að hafa úrval bóka sem allra best þannig að allir finni eitt- hvað við sitt hæfi. Jafnt er um að ræða fagur- fræði sem aðrar bókmenntir. Ég er jákvæður fyrir öllum tegundum bóka sem lesendur hafa áhuga á.“ Neikvæðni brýtur bara niður Samkeppni milli bókaútgefanda hefur verið hörð hér og margar útgáfur lagt upp laupana. Var þér kunnugt um það þegar þú ákvaðst að stofna bókaútgáfuna? „Já, mér var kunnugt um það. En bókaút- gáfur hafa líka vaxið og dafnað vel. Stofnun Draumsýnar var ekki skyndihugdetta. Um er að ræða gamla hugmynd og síðan verkefni sem ég hef þróað. Ætli það sé ekki komið um rúmt ár síðan ég fór að hugsa um hvernig koma mætti hugmyndinni í framkvæmd. Frá síðasta sumri hef ég síðan þróað verkefnið. Það er mikilvægt að vera jákvæður í garð verkefnisins. Neikvæðni gerir ekkert annað en að brjóta niður. Við horfum björtum augum til framtíðarinnar.“ Og ertu alls óhræddur við samkeppnina? „Í mínum áætlunum geri ég ráð fyrir sam- keppninni. Við höfum skipulagt og þróað okkar leiðir til þess að takast á við hana. Draumsýn mun verða sýnilegt á íslenska bókamarkaðnum. Ég hef fengið góða rithöf- unda til liðs við mig og veit að sá höfundalisti sem ég er kominn með er nú þegar farinn að leiða til þess að höfundar vilja koma til mín. Þeir bókatitlar sem ég er kominn með standa öðrum ekkert að baki hvað gæði snertir og reyndar tel ég Draumsýn geta verið stolta af því að hefja rekstur með þá höfunda og þær bækur sem við höfum gert útgáfu- samninga um. Við höfum mætt miklum vel- vilja höfunda. Eitt dæmið sem sannar það er heimsókn Ari Behn sem tók strax mjög vel í þá hugmynd mína að koma til Íslands þegar bókin hans yrði gefin út. Einnig erum við nú að leggja drög að samstarfi okkar og Märtha Louise prinsessu en hún er einn höf- unda okkar. Vonandi getum við sagt frá því á næstum vikum hvernig því samstarfi verður háttað. Þannig að þau hjónin eru bæði mjög jákvæð gagnvart okkur eins aðrir höfundar okkar.“ Dæmigerður maður í tvíburamerkinu Hvernig myndirðu lýsa sjálfum þér með nokkrum orðum? „Kannski lýsir konan mín þessu best; ég er í tvíburamerkinu og held merki þess uppi með að geta verið eins og tvær persónur, önnur hlédræg og róleg en hin sem verður alltaf að hafa eitthvað að gera og þrífst best og skipuleggur sig best undir álagi.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að fást við? „Mér finnst skemmtilegast að fást við krefjandi og ögrandi verkefni og sjá árangur verða af störfum við þau. Einnig er nú líka bara gott að slappa af í faðmi fjölskyldunnar.“ En af þeim verkefnum sem þú hefur nú þegar komið nærri ? „Öll verkefnin sem ég hef komið að hafa verið áhugaverð eða skemmtileg hvert á sinn hátt. Annars hefði ég ekki tekið þátt í þeim. Það sem hefur verið mest ögrandi fram að núverandi verkefni er vinnan að doktorsverk- efninu og þróun þess.“ A ri Behn, höfundur bókarinnar „Lukk-unnar pamfíll“, kom til Íslands nýver-ið og segist fram að því hafa talið sig vera Ítala eða Frakka, en á Íslandi vissi hann að hann væri Íslendingur, bæði í hjarta og skapi. Ari Behn vill verða þekktur af verkum sínum, enda skrifað bæði bækur, leikrit og sjónvarpsþætti, en hann er líka mjög þekktur í heimalandi sínu og víðar á Norðurlöndunum fyrir að vera eiginmaður Mörthu Louisu Nor- egsprinsessu. Hvað varð til þess að þú fórst að skrifa bækur? „Mig langaði að verða rithöfundur frá því ég var mjög ungur. Sá heimur lýstist upp fyr- ir mér þegar ég var þriggja ára og ég skildi mikilvægi bóka. Þrettán ára að aldri ákvað ég að verða rithöfundur. Fimm árum síðar, þegar ég var átján ára skrifaði ég fyrstu skáld- sögu mína og vaknaði á hverri nóttu klukkan fimm til að skrifa áður en ég fór í skólann. Við getum reyndar ekki rætt hér um bestu skáldsögu veraldar enda var hún aldrei gefin út, en kenndi ungum manni sem trúði sterk- lega á sjálfan sig gott skipulag og sjálfsaga.“ Hverju viltu koma til skila með skrifum þínum? „Mig langar að fá sálir og anda manneskja til að breyta á róttækan hátt að leið að því marki að losna við öll mynstur sem brjóta hvern einstakling niður. „Lukkunnar pamfíll“ er fimmta bókin þín og þú hefur fengið stórkostlega góða gagn- rýni. Fengu hinar fjórar jafn góða gagnrýni? „Ég reyni að hlusta ekki mikið á hvað gagn- rýnendur segja, það var sagt að ég væri stór- viðburður í bókmenntalífinu og eins og hala- stjarna, þegar fyrsta bókin mín „Trist som faen“ kom út árið 1999 og eftir það hef ég fengið bæði hylli og högg – að búa á stöðugu „stríðssvæði“ með því að lifa opinberu lífi er fremur umdeilt, svo ég taki vægt til orða...“ Þarftu að vera í sérstökum aðstæðum þeg- ar þú skrifar, til dæmis að vera algjörlega einn umlukinn þögn? „Ég get skrifað alls staðar, í miðjum hávaða í fjölskyldulífinu, þar sem búa þrjú yndisleg börn. Það mikilvægasta er að standa við daglegt skipulag, skrifa að minnsta kosti í nokkrar klukkustundir á hverjum degi, hvern einasta dag.“ Þú ert líka mjög þekkt sjónvarpsstjarna í Noregi og hefur unnið til verðlauna fyrir skemmtiþáttinn „Ari og Per“. Geturðu sagt okkur örstutt frá þessum þáttum og fyndnum atriðum sem ég hef séð þig í gegnum You- tube eins og þegar þú klæddist eins og gheisa og gekkst um götur Barcelona. „Sjónvarpsþátturinn gengur út á að segja sögur. Ég er hvorki sjónvarpsstjarna né kynn- ir, heldur fyrst og fremst rithöfundur og ekk- ert annað. En já, að fara með farða og klæðast kvenfatnaði í Barcelona – svona í anda Pedro Almodovar var reyndar mun erfiðara en ég hafði gert mér grein fyrir, þrátt fyrir reynslu mína og rólegheit við að grafast fyrir í alls konar menningarkimum – á „border-line“ stöðum og einnig í slíkum málefnum. Þetta var líka í eina skiptið sem ég þurfti að vara dætur mínar við að einhver gæti strítt þeim í skólanum daginn eftir að þátturinn var sýnd- ur. Það gerðist ekki – að því undanskildu að elsta dóttir mín spurði hvort ég hefði í alvöru farið í aðgerð til að verða kona í smátíma! Það verður langt þangað til ég endurtek þennan leik,“ segir hann skellihlæjandi. Þú varst á Íslandi í síðustu viku og sást ör- lítið brot af landinu. Hvernig leist þér á? „Að heimsækja loksins Ísland eftir að hafa dreymt um það alla mína ævi... Eins og ég sagði þér í upp- hafi samtals okkar þá varð ég stórundrandi á þeirri reynslu minni að finnast ég sterklega tengdur Íslandi. Þetta er nor- ræna arfleifðin mín, bæði bók- menntalega og tilfinningalega. Í gegnum aldir er ég kominn af Norðmönnum, en núna held ég að Ísland sé eins og vindhviða sem skar- ast við tilfinningar mín- ar, skapferli og með opin viðhorf – lífskrafturinn og eldfjöllin, gríðar- lega áræðið og með ilm af ómótstæði- legum brennisteini ... ég elska þetta! Þú ert einnig þekktur í Noregi sem eiginmaður Mörthu Louise prinsessu, sem er einnig rithöfund- ur og mun skrifa fyrir bókaforlag- ið Draumsýn eins og þú. „Já, ég hitti eigin- konu mína gegnum móður mína á mjög hefðbundinn og gamal- dags hátt. Ég var að koma úr löngu ferðalagi um Bandaríkin rétt fyrir jól – og ætlaði mér að halda þessu ferðalagi áfram árið á eftir. Úr því varð ekkert... Þetta var ást við fyrstu sýn en það sem ég vissi ekki var að móðir mín hafði verið vinkona Mörthu í þrjú ár. Þær voru báðar að stúdera „Rósarmeðferðina“ (sem var mikið leyndarmál í þá daga!). Ég er viss um að við hefðum gift okkur innan við viku eftir að við hittumst – ef hún hefði ekki verið prins- essa... En jú, ég verð að segja að tíu ára hjónaband okkar hefur verið brennandi ástarferð, full af af ástríðu, og árangurinn þrjár dæt- ur og mikið af skapandi verkum. Við ólumst upp í algjör- lega ólíkum heimum, en mér fannst við vera kominn heim um leið og við hitt- umst. Það er bless- un.“ Hvenær kem- urðu svo næst til Íslands? „Ég kem á hver ju kvöldi til Íslands. Um leið og ég sofna dreymir mig þetta dásamlega land.“ Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Kemur til Íslands á hverri nóttu Um leið og ég sofna dreymir mig þetta dásamlega land, Ísland, segir Ari Behn, rithöfundur og eiginmaður Mörthu Louisu Noregsprinsessu. Eftir heimsókn hingað finnur hann fyrir sterkum tengslum við Ísland. Hann segir að því ráði hin norræna arfleifð bæði bókmennta- og tilfinningalega. Í sumar er opið kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.isVerslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur Rodalon sótthreinsun • Gegn myglusveppi • Eyðir lykt úr fatnaði Ari Behn rithöfundur og eiginmaður Mörthu Louise Noregsprinsessu: Mér finnst ég sterklega tengdur Íslandi. Ljósmynd Hari 22 viðtal Helgin 11.-13. maí 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.