Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 33

Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 33
Grilltíminn Bestu kjötbitarnir - Langur búrger - BBQ svín Helgin 11.-13. maí 2012 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Grill sem endast O P N U N A R T I L B O Ð 2.990 Pizza panna 129.900 39.900 Opið laugardag til kl. 16 Mikið úrval aukahluta www.grillbudin.is SÉRVERSLUN MEÐ GRILL, GARÐHÚSGÖGN OG ÚTILJÓS Þýsk framleiðsla F orðist að nota flestan mjúkan við eins og til dæmis furu og ösp. Helst skal að nota harðvið. Það helsta sem vex almennilega á Íslandi og hægt er að nota er birkið – þurrt birki virkar ágætlega þótt auðvitað megi höggva niður hlyn og álm ef þeir þykja fyrir í garðinum. Það má alls ekki nota krossvið eða annan unninn við eins og spónaplötur eða fúavarið timbur. Það er beinlínis eitur og matarboðið endar á slysó. Harðviðinn er hægt að fá í grill- búðum og hann er einnig oft seldur í stærri einingum sem eldiviður í byggingarvöru- verslunum og á bensínstöðvum. Tíminn og reykurinn Reykur er bragð og það er gott að fá reykkeim í flestan þann mat sem við grillum úti. Allt kjöt þolir eitthvað af reyk en það er mismunandi þolið eftir tegund. Svínakjöt þolir mikinn reyk og kjúklingur líka. Nautið vill gjarnan reyk en ekki jafn mikið og svínið. Lambið vill vera ferskt og þolir minnstan reyk. Þótt lambalærið breytist ekkert í hangiket strax er gott að passa uppá að hafa ekki of mikinn reyk við eldun þess. Fljóteldaðir bitar eins og kótelettur hafa bara gaman af smá salíbunu í reyknum. Fiskurinn kann líka vel við sig í reyknum sérstaklega lax og silungur. Bragðið af reyknum sjálfum fer ekki að skipta almennilega máli fyrr en búið er að reykja í meira en 5-6 tíma þannig að yfir- leitt skiptir ekki máli hvort notaðar eru mismunandi tegundir af harðviði. Töff týpur Þær eru fjórar mismunandi útgáfurnar sem notast má við til að reykja á grilli: Lurkar, kubbar, spænir og sag. Hvert um sig hentar í mismunandi hluti. Til að fá mikinn reyk í stuttan tíma er gott að nota spæni eða sag. Lengri reyking kallar á stærri kubba eða lurka. Þegar á að reykja lengi og sér í lagi á gas- grilli er best að nota sæmilega stóra kubba eða lurka en ekki spæni eða sag. Einfaldast er að leggja þá aðeins í bleyti og vefja þá svo í álpappír. Setja svo nokkur lítil loftgöt til að reykurinn sleppi út án þess að eldur komi upp. Þá er líka hægt að nota skál úr til dæmis ryðfríu stáli og setja kubba þar ofaní og svo skálina beint ofan á brennarann. Á kolagrilli er best að leggja sæmilega kubba í bleyti í nokkra klukkutíma og setja svo beint á kolin. Ef reykja á fisk er fínt að nota sag eða spæni. Sagið er best að hafa þurrt í stálskál eða á pönnu. Það þýðir svo ekkert að nota eina eða tvær teskeiðar af þessu – drjúgt fer af sagi í hvern skammt. Þótt uppskriftin kveði á um að elda skuli við vægan hita þarf samt örlítinn eld til að koma kubbunum af stað. Passa bara að eldurinn blossi ekki upp því honum fylgir náttúrulega mikill hiti og sót sem er ekki eftirsóknarvert á kjötbitann. Einnig þarf að gera ráð fyrir því að kubburinn hitnar eins og góður kolamoli þegar reykingin er komin af stað. Því þarf að fylgjast vel með hitanum þegar líður á reykinguna. Haraldur Jónasson Hari@frettatiminn.is  Reyking Reykingar leyfðar Þegar elda á BBQ þarf að hafa reyk og reykurinn sem myndast við það að safinn sem vellur úr kjöti fellur á kol eða gasbrennara dugir ekki til. Það þarf eldivið og ekki er sama spýta og spýta. Lurkur í álpappír gefur af sér góðan reyk í langan tíma. Sag Spænir Kubbar Lurkar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.