Fréttatíminn - 11.05.2012, Page 34
2 grilltíminn Helgin 11.-13. maí 2012
Marinering
1 Límóna
rababari 10 cm
ólífuolía ½ dl
steikarsósa 1 msk.
hvítlauksrif 2
Chili 1 stk.
bjór 2.5 dl
Hvernig
Rífa börkinn af
límónunni og kreista
safann úr líka. Merja
og saxa hvítlaukinn,
saxa chilliið og hafa
fræin með. Blanda öllu
saman. Steikarsósan
er þessi klassíska
dökka sósa. Ef ekki
er til steikarsósa er
hægt að skipta henni
út fyrir helmingi minna
af Worcestershiresósu
eða jafn vel soya.
Bjórinn sem nota skal
er svona sirka 2-3 dl.
Ef þú tímir meiru er
fínt að láta lítinn bauk
vaða.
Það er örlítil himna
á flank-kjötbitanum
sem þarf að fjarlægja
að mestu leyti áður en
kjötið er marinerað.
Nota til þess blandaða
tækni með hníf og
eldhúspappír.
Marinera bitann í
um tvo til þrjá tíma,
má vera aðeins minna
má líka vera aðeins
meira en ekki mikið
þó.
Grilla þangað til
kjötið er „medium“
sem eru þrjár til fjórar
mínútur á hverri hlið.
Fer þó eftir stærðinni á
bitanum. Láta stykkið
hvíla aðeins eftir grill
og skera svo þvert á
rendurnar í kjötinu
sem að eru augljósar á
þessum bita.
Meðlæti
Bera skal fram í
hveititortíum sem
hitaðar eru á grillinu
til að fá á það rendur
og geyma svo í hreinu
viskustykki til að halda
mjúkum. Meðlæti
getur verið, grilluð
paprika, grillaður
rauðlaukur, sýrður
rjómi, guacamole og
blanda af rauð-og
hvítkáli sem hefur
verið látið standa í
safa úr einni límónu
og tveimur skeiðum
af agavesýrópi í um
klukkustund. Svo er
klassísk salsasósa
alltaf í lagi með líka.
Síðubitar systursteikur
Bestu bitarnir
F lestir eru nokkurn veginn sammála um að kjötbitarnir þeir sem vaxa sem næst hryggnum á hverri skepnu séu þeir bestu. En þeir bestu
henta ekki alltaf í það sem sælkerinn er að leita eftir.
Það þarf til dæmis talsverða fitu og ákveðið magn af
þeim vefjum sem halda kjötinu saman til þess að elda
kjöt við lágan hita og lengi. Lund og fillet myndi þorna
löngu áður en hægt væri að skera kjötið í sundur með
skeið.
Systursteikurnar „flank“ og „skirt“ er síðubitar
teknir neðarlega af nautaskrokknum og eins ótrúlega
og það hljómar þarf annað hvort að elda þá bita leiftur-
snöggt eða ótrúlega lengi. Allt þar á milli kallar á
ólseiga steik á pari við gamalt leðurbelti.
Flanksteikurfahitas
Síðubitana þarf
að steikja annað
hvort eldsnöggt
- eða ótrúlega
lengi.
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Grill í Múrbúðinni
– skoðaðu verðið!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
GAS GRILL
4 ryðfríir brennarar og
hliðarplata. 14 kw/h.
48.000-BTU. Hitamælir.
Kveikja í stillihnapp.
Grillgrind er postulíns-
húðuð. 44x56 cm.
Extra sterk hjól v.gaskút.
Þrýstijafnari og
slöngur fylgja.
37.900 kr.
59.900kr.
GAS GRILL
4 brennarar 14 kw/h.
48.000-BTU. Kveikja í
stillihnapp. Hitamælir.
Grillgrind er postulíns-
húðuð. 43x37 cm.
Hitaplata er postulíns-
húðuð. 43x39 cm.
Þrýstijafnari og
slanga fylgir.
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Grillosturinn bráðnar betur en aðrir ostar og
hentar því einstaklega vel á hamborgara eða
annan grillaðan mat.
alveg grillaður!
Grillbúðin stækkar
F imm ár er síðan Grillbúðin hóf starfsemi sína í Hlíð-arsmára í Kópavogi. Nú
hefur verslunin flutt sig um set að
Smiðjuvegi 2 í sama sveitarfélagi.
Einar Long, eigandi og stofnandi
Grillbúðarinnar, segir aðstæður
búðarinnar gjörbreyttar enda farið
úr um 100 fermetra sýningarsal í
ríflega 400 fermetra. Einar segir
enn fremur að ráðist hafi verið í
flutningana vegna sívaxandi eftir-
spurnar frá viðskiptavinum um
enn betra úrval grilla sem og að
nú er boðið upp á fjölda vandaðra
garðhúsgagna frá þýsku framleið-
endunum Garvida og Belardo, fyr-
irtækja sem eru í eigu Landmann,
sem einnig framleiða grillin. Grill-
búðin býður einnig vandað úrval
útiljósa frá sænska framleiðandan-
um KonstSmide, útiljós sem henta
íslenskum aðstæðum og eru mörg
þeirra með 25 ára ábyrgð gagnvart
ryði og tæringu. Garvida eru garð-
húsgögn í hæsta gæðaflokki, bæði
hvað varðar hönnun og endingu og
frá Belardo er mikið úrval af vönd-
uðum garðhúsgögnum.
„Húsgögnin hafa setið á hak-
anum hjá okkur undanfarin ár en
með með tilkomu nýja húsnæðisins
getum við boðið upp á mikil úrval
vandaðra garðhúsgagna,“ segir Ein-
ar Long.
Aðal áherslan er eftir sem áður
á að bjóða upp á sem mest úrval af
Landmann-grillum og að hafa í þau
alla nauðsynlega varahluti sem og
fjöldann allan af aukahlutum. Eftir
flutningana hefur vegur kolagrill-
anna vaxið til muna frá því sem áður
var.