Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Side 44

Fréttatíminn - 11.05.2012, Side 44
Svart belti og brúnir skór Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL N Te ik ni ng /H ar i Nöfn helstu Hollywood-stjarna síast smám saman inn í koll manns. Annað er óhjákvæmilegt. Sama er hvort flett er blaði eða kíkt á vef, alls staðar er þessa ágæta fólks getið og skreytt með myndum. Það hef ég lesið að ein helsta karlhetjan vestur þar sé Ashton nokkur Kutcher. Hann varð frægur fyrir að plata fólk og hrekkja í sjónvarpsþáttum líkt og Auðunn Blöndal, félagi Sveppa, gerði síðar hér uppi á Fróni. Það er ekki fallega gert en vekur samt lukku meðal þeirra sem á horfa og gleðjast yfir óförum annarra. Verulega frægur varð Kutcher samt ekki fyrr en hann gekk að eiga fullorðna konu, leikkonuna Demi Moore, sem áður var eignkona harð- haussins Bruce Willis. Á þeim var sá aldursmunur að hún fæddist árið 1962 en hann 1978. Það getur reynst fólki örðugt hvar sem er, svo ekki sé minnst á þá ótryggu borg, Hollywood. Samt ku þetta hafa gengið bærilega hjá þeim til að byrja með enda hafði frúin bætt sig með bótoxi, að því er hermt var, og púðum í brjóst. Þetta var áður en allt varð vit- laust út af PIP-púðunum. Skrítnara var þó að leikkonan, sextán árum eldri en eiginmaðurinn, hafði farið í hnélyftingar. Af myndum af dæma voru leggirnir á henni orðnir óttalega rýrir, sennilega af langvarandi megrun, auk ellinnar sem engum hlífir. Því er líklegt að hnén, eða minnsta kosti húðin á þeim, hafi sigið. Þessu hefur því þurft að lyfta, og kannski einhverju öðru svo hún stæðist samanburð við sinn unga mann. Vitaskuld er þetta erfitt hverri konu, sérstaklega skvísu eins og Demi, sem áður var hin flottasta og svo sjálfsörugg að hún birtist ber með bumbuna út í loftið á forsíðu Vanity Fair, það sæla ár 1991. Þá bar hún undir belti barn fyrrnefnds harðhauss, þáverandi eiginmanns. Raunar er rangt að segja að hún hafi borið barn undir belti, ber sem hún var. En við aldurinn verður ekki ráðið. Demi var því orðin nokkuð strekkt og kinnfiskasogin undir það síðasta í sambúðinni með Ashtoni sínum. Þó kann að vera að þar hafi frekar ráðið hugarvíl því fréttir greindu frá stelpustandi á hinum unga eiginmanni. Skilnaður þessa frægðarfólks var því óhjákvæmilegur, hvort heldur réði aldursmunur eða kvennafar. Asthon bætti nýverið þeirri skrautfjöður í hatt sinn að taka við af Charlie Sheen sem einn aðalleikari í sjónvarpsþáttunum Two and a Half Men sem sýndir hafa verið hér á landi. Charlie var rekinn eftir lang- varandi sukk og kvennastúss þar sem fleiri en ein var í takinu á sama tíma, eins og getur gerst þarna vestra. Vegna þessarar viðbótarfrægðar Asthons er von að menn staldri við ef blöð hafa eftir honum einhverja speki, ekki síst ef kynbræður hans mættu læra eitthvað af honum. Því stoppaði ég við kafla í síðasta tölublaði Fréttatímans, þar sem kallaðir voru til nokkrir Hollywood-piltar og þeir látnir tjá sig um tísku. Þar er ég fráleitt á heimavelli, íhaldssamur og kaupi helst ekki föt nema á nokkurra ára fresti. Því hefði ég væntanlega flett áfram ef ég hefði ekki rekið augun í fagra ásjónu Asthons. Hina álitsgjafana þekkti ég ekki, hvorki Penn Badgley, Channing Tatum, Peter Sarsgaard né Tay- lor Launter. Mér var nokkuð brugðið eftir álitsgjöf Asthons, sem skóf ekki utan af því: „Ég styðst við nokkrar reglur í tengslum við klæða- val,“ sagði leikarinn snoppufríði. „Sú mikilvægasta er að beltið passi við skóna. Það er bannað að klæðast brúnum skóm við svart belti. Það finnst mér vera eitt stærsta tískuslys sem karlmenn gera sig seka um.“ Svo mörg voru þau orð tískugoðsins sem var víst fyrirsæta áður en hann varð alþjóðleg sjónvarpsstjarna og leikari. Hann ætti því að vita hvað hann er að segja og hafa umboð til að ráðleggja þeim sem skemmra eru á veg komnir í tískunni, hafa dagað uppi sem nátttröll í vitlausum litum og röngu sniði. Mig setti hljóðan. Svart belti við brúna skó er ekk- ert minna en stórslys. Þar var ég tekinn í bólinu enda á ég aðeins eitt belti, svart. Hins vegar á ég bæði svarta skó og brúna. Beltið hélt ég, í fávisku minni, væri bara til þess gert að halda uppi bux- unum – en svo er ekki, segir Ashton. Ég er greinilega í lagi ef ég nota svarta skó en gangandi stórslys í brúnum skóm með svart belti. Af hverju hefur enginn sagt neitt, ekki einu sinni konan mín? Hún sem stundum hefur spurt mig, eftir óheppilegt skyrtu- og buxnaval, hvort ég ætli að fara svona út, skreyttur eins og jólaté. Af hverju hef ég þá verið látinn ganga í brúnum skóm með svart belti, athlægi allra góðra manna, sá hallærislegasti af öllum hall- ærislegum? Líklega gengur þessi tískuhryllingur næst þeim ósköpum að fara í hvíta sokka við dökk jakkaföt. Jafn- vel ég veit að það má ekki. Ashton veit betur en ég, það verður að viðurkennast. Í mínu tilviki er aðeins um tvennt að ræða, leggja brúnu skón- um eða kaupa brúnt belti. Íhaldssamur sem ég er, þykir mér sennilegra að ég parkeri skónum frekar en að kaupa eitt- hvað nýtt. Svart belti og svartir skór, það er málið – það vitum við Ashton nú báðir. F réttatíminn hefur að undanförnu fjallað nokkuð um stjórnmála- menninguna hér og rætt við fræðimenn. Í síðasta tölublaði aprílmánaðar var viðtal við Sal- vöru Nordal forstöðumann Sið- fræðistofnunar Háskóla Íslands og formann stjórnlaga- ráðs. Margt skynsamlegt er þar sagt en þó má ég til að staldra aðeins við það sem blaðamaður hefur eftir henni í inngangi viðtalsins, að „Ís- lendingar séu fastir í skotgröf- um átakastjórnmála þar sem stríðandi fylkingar valda því að hvert málið á fætur öðru steyti á skeri.“ Síðar í viðtalinu nefnir Salvör dæmi: „Rannsóknarskýrslan, Landsdómur, ESB aðildin, allt fer þetta í þennan skotgrafaf- arveg; þá eru ónefnd fiskveiðistjórnunar- málin, auðlindamálin, sem eru stór hluti okkar lífsafkomu en við lendum samt í átökum um þau.“ Þótt þetta sé raunar ekki meginatriðið í viðtalinu við Salvöru leggur ritstjórinn út af því í ritstjórnargrein í næsta tölublaði. Og það er líka aðalinntakið í viðtali við tvo aðra virta fræðimenn, prófessora í stjórnmálafræði og heimspeki, þá Ólaf Þ. Harðarson og Vilhjálm Árnason, í sama tölublaði. Í þessari umræðu virðist sú óskhyggja ríkjandi að við höfum öll sömu hagsmuni, við séum ein þjóð með sömu hagsmuni og allir stjórnmálamenn séu að gæta þessara sömu hagsmunamála, en lendi „samt í átökum um þau“ þegar þeir ættu raunar sitja á rökstólum um þau eins og siðaðir vitibornir menn. En þannig er það bara ekki. Mér varð að orði einhvern tíma upp úr aldamótum, þótt ég eigi það ekki skjal- fest, að í raun væri á Íslandi í gangi mjög hörð stéttabarátta, sem fólst reyndar fyrst og fremst í gífurlegri sókn auðvaldsins en takmarkaðri vörn verkalýðshreyfingar- innar, enda var verkalýðsstéttin að fá ein- hverja mola af veisluborði auðvaldsins og er nú að borga þessa mola fullu verði og mikinn hluta veisluborðsins að auki. Átökin fóru raunar miklu meira fram á sviði stjórnmálanna, meðal annars inni á Alþingi. Vilhjámur Árnason segir að hvergi í íslensku samfélagi hafi verið lýð- ræðislegt viðnám gegn því sem var að gerast í fjármálakerfinu. Alþingi, segir hann, hljóti að vera meginvettvangurinn, en „málefnalegar gagnrýnisraddir voru kvaddar niður í stað þess að taka þær sem hvata til at- hugunar á stöðu mála“. Auðvit- að voru þessar gagnrýnisradd- ir kveðnar niður, af því að á Alþingi geisaði hörð stéttabar- átta, þar voru fulltrúar þeirra sem höfðu hag af því sem var að gerast í fjármálakerfinu og vitanlega reyndu þeir að kveða gagnrýnisraddirnar niður. Fulltrúar auðstéttarinnar voru hér á Íslandi sem annars staðar að breyta samfélaginu auðstéttinni í hag með einkavæðingu, breytingum á regluverki í viðskiptum og breytingum á skattkerfinu. Ójöfnuður fór vaxandi hér sem annars staðar. Þetta var gagnrýnt á Alþingi og í hinni pólitísku umræðu, en sterkir hags- munaaðilar innan þings sem utan kváðu þessar raddir niður. Vilhjálmur segir: „Í samfélagi þar sem æ fleiri svið eru lögð undir mælikvarða fagmennsku og skynsamlegrar umfjöllun- ar, sitja síkarpandi stjórnmálamenn eftir eins og nátttröll,“ og bendir svo á að þetta geti komið „í veg fyrir að við tökum vel á sameiginlegum hagsmunamálum okkar.“ Þessi orð Vilhjáms leiða huga minn að því sem er mest uppi á teningnum rétt í svip- inn, kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í eyrum útvarpshlustenda glymja í sífellu auglýsingar útgerðarmanna gegn kvóta- frumvarpinu meðan fulltrúar þeirra halda uppi háværri gagnrýni inni á Alþingi. Sagt er að lítið hafi breyst eftir hrun og stjórnmálamönnum er ekki síst kennt um það. En sérhverri breytingu sem ógnar stöðu auðstéttarinnar er mætt af fullri hörku. Fiskveiðistjórnunarmálin, rammaáætlun um auðlindir, skattkerfis- breytingar. Meðan hér geisar stéttastríð, þar sem auðstéttin berst hatramlega fyrir sínum hagsmunum, gengur umræðan út á það að hér sé einhver óábyrg stjórn- málastétt sem ógnar hagsmunum al- mennings. Þessi sífellda og einhliða gagn- rýni á stjórn málamenn án samhengis við stéttabaráttuna er kannski að villa meir um fyrir almenningi en karp stjórnmála- mannanna sjálfra. Stjórnmálamenning Átakastjórnmál eða stéttaátök? Einar Ólafsson bókavörður Smur-ogSmáviðgerðir BremSuSkipti á 1.000 krónur! Fram til 1. júní Skiptum við um BremSukloSSa að Framan Fyrir aðeinS þúSund krónur. tilBoðið gildir aF vinnu eF þú kaupir BremSuhluti hjá okkur. dugguvogi rvk auSturvegi SelFoSS pitStop.iS www helluhrauni hFjrauðhellu hFj 568 2020 Sími 36 viðhorf Helgin 11.-13. maí 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.