Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 60

Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 60
Helgin 11.-13. maí 201252 tíska Gestapistla- höfundur vikunnar er Elísabet Gunnars­ dóttir tískubloggari 5 dagar dress „Ég er farin að hallast mjög mikið að litum,“ segir Geirþrúður 22 ára, útskrifaður klæðskeri frá Iðnskól- anum, um klæðarvalið sitt. „Ég hef alltaf gengið rosalega mikið í svörtu en núna, þegar sumar er að koma, taka litirnir við. Mér finnst litir og snið skipta mestu máli varðandi fatnað. Mér finnst rosalega skemmtilegt að kaupa mér föt í miðbænum og koma þau líklega flest frá Gyllta kettinum, þar sem ég er að vinna. Skóbúðin Kron er líka í miklu uppáhaldi þar sem alltaf er hægt að finna sér litríka og fallega skó. Innblástur tísku fæ ég allstaðar frá, fletti tískublöðum og bloggum en helst fæ ég hann frá fólkinu í kringum mig. Hönnuðurinn Vivienne Westwood er einnig í miklu uppáhaldi hjá mér, alltaf hress og skemmtilega klædd og er fatastíll hennar svo sannarlega lýsandi fyrir persónuleikann.“ Beisik er best Flest höfum við orðið fórnarlömb þess að gera hrikalega léleg kaup í fataskápinn – þrátt fyrir að vera þess fullviss á þeim tíma að þetta væri sannarlega mikil nauðsynjarvara. Þetta er fyrir- gefanlegt ef varan var á góðu verði en mun verra ef svo var ekki. Að kaupa sér rándýrt trend síns tíma sem liggur síðan ónotað eru mistök sem að við flest höfum gerst sek um. En af öllum mistökum lærir maður – eða hvað? Ég hef alla vega lært mína lexíu þegar ég huga að fjárfestingu í dýrri flík, skóm eða annarri vöru. Ég spyr mig hvort varan sé þess virði, hvort hún sé tímalaus, vönduð, falleg og með góðan endingar- tíma – beisik er best! Ég reyni að forðast trend sem einkenna viss tímabil en eru síðan gleymd á því næsta, en þessi trend getur maður auðveldlega komið auga á. Þær flíkur kaupi ég heldur á góðu verði í sænskum verslunarkeðjum. Ég er ekki að segja að fallegu klassísku flíkurnar þurfi síðan alltaf að vera dýrar. Mínar uppáhalds hef ég fundið í „second hand“ verslunum eða á mörkuðum sem gerir það að verkum að þær verða enn einstakari. Galdurinn er að finna bestu blönduna af þessu öllu saman, klæða ódýru trendin við vel völdu klass- ísku flíkurnar, nýjar eða notaðar, sem aldrei detta út tísku. DÆMI: Ekki kaupa þér floral buxur frá Gucci á 140.000 krónur, bara af því að þær eru inni á þessum tímapunkti – þú færð sama „look” í H&M á undir 5000 krónur – það er mitt mat. Þriðjudagur Skór: Barcelona Sokkabuxur: KronKron Kjóll: Saumaður af mér Mánudagur Skór: Fatamarkaður Buxur: Lee Peysa: Aftur Miðvikudagur Skór: Kron Buxur: Topshop Pils: H&M Bolur: American Apperal Fimmtudagur Skór: Gyllti kötturinn Leggings: Gyllti kötturinn Stuttbuxur: Gyllti kötturinn Hlýrabolur: Zara Slá: Primark Föstudagur: Pils: Gyllti kötturinn Sundbolur: Gyllti kötturinn Taska: Barcelona Litadýrðin tekur völdin í sumar Níræð Iris hannar tösku línu Hin níræða Iris Apfel, sem afrekaði meira í tískubransanum en flestir á síðasta ári, mun kynna sérstaklega nýja handtöskulínu seinna á þessu ári. Línan, sem mun bera nafnið Extinctions, er hönnuð af ófor- betranlegu tískudrósinni sjálfri og verða flestar töskurnar saumaðar úr móngólskri lambaull, kálfshári og snákaskinni. Töskurnar munu kosta frá þrjátíu þúsund krónum og verða fyrst um sinn framleiddar einungis fyrir Bandaríkjamarkað. Ritstýra Vogue hannar fyrir H&M Ritstýra japanska Vogue, Anna Dello Russo, sem þekkt er fyrir sinn skemmtilega og frumlega fata- smekk, vinnur nú hörðum höndum að nýrri fylgihlutalínu fyrir sænska tískurisann H&M. Línan mun samanstanda af skemmti- legum skartgripum og skóm, en sjálf leggur hún mikið uppúr hvoru tveggja; á rúmlega 4000 skópör. Línan sem væntanleg er í verslanir H&M þann 4. október næstakomandi, í 140 búðum, mun vera breið og mikilfengleg með hátískulegum blæ og mun vera í verðflokki örlítið ofar en þeim tíðkast í verslunum H&M. Nýja línan, Hey Sailor frá snyrtivöru- fyrirtækinu MAC, er nú fáanleg í verslunum MAC hér á landi. Þetta er ný og glæsileg sumarlína frá fyrir- tækinu sem samanstendur af varalit, augnskugga, kinnalit, sólarpúðri og fleiri skemmtilegum vörum sem lífga uppá sumarlegt útlitið. Línan er þó ólík því sem fyrirtækið hefur fram- leitt síðustu ár – litaflóran er ekki eins skær og áberandi. Litirnir eru sterkir og dökkir og má þar finna rauðan varalit, dökkgrænan augnskugga og brúnt naglalakk svo fátt eitt sé nefnt. Línan er framleidd í takmörkuðu magni og eru vörurnar skammtaðar í verslanir MAC um heim allan. Ný sjóliðalína komin í verslanir MAC 2 Sunset Boulevard 3 S p r i n g . S u m m e r . 2 012 B lu e o c e a n Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Verslunin Belladonna á Facebook Flottar sumarvörur fyrir flottar konur st. 40 – 58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.