Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Page 70

Fréttatíminn - 11.05.2012, Page 70
 Þórdís Nadia TyppafýluræsTir hip hop-ið Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, hefur haldið sig til hlés í kosn- ingabaráttu komandi forsetakosn- inga. Líklegt er þó að Ólafur Ragnar mun byrja baráttuna af krafti um leið og frestur til framboðs rennur út 25. maí næstkomandi. Svo heppilega vill til fyrir Ólaf að hann verður aðalfyrirlesari á ráðstefnu í Hörpu sem ber yfirskriftina „Til móts við þrautseigju“ sem fram fer dagana 27. til 29. júní og fjallar um hvernig Íslendingar tókust á við kreppuna. Daginn eftir, 30. júní, verður kosið um nýjan forseta. Ólafur Ragnar í Hörpu daginn fyrir kosningar Erpur og MC Gauti fá á baukinn Þ að er svo mikil typpafýla af þessu öllu,“ segir Nadia sem haslaði sér um tíma völl sem uppistandari en stígur nú sín fyrstu skref í tónlistinni og slær hvergi af. „Ég er hætt í uppistandinu. Ég kenni magadans og er Íslandsmeistari í magadansi.“ Og nú ætlar hún að hrista upp í íslensku hip hopi. „Karlarnir eru eiginlega allsráðandi á þessari senu og konurnar eru mjög fáar og ég fíla bara alls ekki þessa endalausu kven- fyrirlitningu sem þeir eru með. Þetta er líka oft bara einhverjir aular sem reykja bara gras allan daginn og tala um hvað typpið á sér sé stórt. Og ef þeir tala um konur þá er það oftast í einhverju kynferðislegu sam- hengi þar sem þeir hlutgera þær. Ég er að dissa það í laginu Passaðu þig.“ Nadia hefur ekkert unnið að tónlist áður. Hún segir rappið og hip hopið haldast í hend- ur hvað karllægnina og kjaftháttinn varðar. Hún fer heldur ekkert í felur með að þekkt- ir strigakjaftar eigi sneiðar í laginu. „Jájá. Þessu er meðal annars beint til Erps og MC Gauta. Ég tek það ekkert endilega fram í lag- inu og þeir taka þetta bara til sín sem eiga það,“ segir Nadía grjóthörð og ætlar síður en svo að láta staðar numið hér. „Ég ætla að fylgja þessu eftir og gera miklu meira. Ég er bara búin að fá nóg. Poppið allt yfir höfuð er svo klámvætt og það er frekar erf- itt að eiga við eitthvað eins og hip hop-senuna þar sem þeir sem gera tónlistina eru 90 pró- sent karlmenn. Maður getur ekki bara setið og hlustað á þetta og hvað á maður þá að gera? Hringja í þá og tala við þá? Maður verður bara að ganga sjálfur í málið og ég hvet fleiri stelpur til að stíga fram og gera eitthvað sjálfar.“ Nadía segist fylgjast með kynjaumræðunni og kunni vel að meta vaska framgöngu femín- ista á ritvellinum þótt hún kjósi að beita öðrum meðulum. „Ég blogga ekkert eða neitt svoleið- is en ég fylgist alveg með umræðunni og ég er femínisti. Ég er svolítið hrifin af róttækum aktivisma og aðhyllist því að maður eigi að ganga í málin frekar en að blogga um eitthvað eða tjá sig á Facebook. Ég vil láta verkin tala.“ Sem hún er svo sannarlega að gera en hefur hún áhyggjur af því að fá á sig öfgafemínista- stimpilinn þegar lagið er byrjað að heyrast; að remburnar rjúki upp til handa og fóta í typpa- fýlunni sinni? „Ég veit það ekki og mér er eiginlega alveg sama.“ Þórarinn Þórarinnsson toti@frettatiminn.is T öfra- og sjónhverfingamað-urinn Ingó Geirdal er einn sá reyndasti í bransanum á Íslandi. Hann ætlar að bjóða upp á stórsýningu í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn, ekki síst vegna þess að þegar hann steig á stokk í mars seldist upp. „Þetta er stórsýning. Einn og hálfur tími með hléi og þarna sýni ég allt það besta sem ég hef upp á að bjóða. Þetta er fjölskyldusýning – ekkert síður fyrir börn en full- orðna. Ég er með ýmislegt krass- andi og er til dæmis farinn að taka hugsanalestur mikið inn í þetta. Síðan er ég með töfra og sjónhverf- ingar; gleypi rakvélablöð og svona þannig að þetta spannar ansi breitt svið.“ Ingó á orðið langan feril að baki. Hann fór fyrstur Íslendinga á heimsmót töframanna átján ára gamall. Hann er einnig liðtækur tónlistarmaður og gítarleikari. Hann hefur meðal annars spilað með Quarashi og er nú í hljóm- sveitinni Dimma og notar tónlist sína á töfrasýningunum. „Ég er rokkari og töframaður i hjarta mínu og nota rokkið sem undirleik og er farinn að koma fram í sama klæðnaði og í þungarokkinu,“ seg- ir leðraði galdrakarlinn. Martin Gore, gítarleikari hinnar fornfrægu hljómsveitar Depeche Mode, heyrði af Ingó á sínum tíma og fékk hann til þess að skemmta bandinu að loknum tónleikum í Gautaborg. „Martin hefur rosalega gaman að þessu og lét bjóða mér á tónleikana gegn því að ég galdraði fyrir þá. Þetta var mjög gaman enda eru þetta mjög skemmtilegir náungar.“ -þþ  iNgó geirdal leðraði TöfrarokkariNN Töfraði Depeche Mode upp úr skónum Egill Helga á Hagaskólaballi Sjónvarpsstjarnan og bloggarinn Egill Helgason verður ræðumað- ur kvöldsins á skólaballi Haga- skóla næstkomandi miðvikudag. Um er ræða skólaball fyrir alla nemendur skólans sem eru 45 ára og eldri og verða vínveitingar á ballinu – ólíkt því sem var þegar væntanlegir gestir stunduðu nám við skólann á sínum tíma. Ballið fer fram í Félagsheimili Seltjarn- arness og munu skólahljómsveit- irnar Cogito og Fimm á Richter troða upp. Þórdís Nadia Semichat hefur fengið sig fullsadda af þrúgandi karlrembu typpaveldisins sem liggur eins og mara yfir íslenskri hip hop-menningu sem hún segir löðrandi í kvenfyrirlitningu. Í andófi sínu samdi hún hip hop-lagið Passaðu þig þar sem karldrjólarnir fá það óþvegið. Hún frumsýndi myndband við lagið á fimmtudagskvöld og ætlar að halda sínu striki enda löngu tími til kominn að kona taki þessi mál í sínar hendur. Ingó les hugsanir og kjamsar á rakvélablöðum í Salnum í Kópavogi á sunnudag. Skemmtunin hefst klukkan 17 og miðar eru seldir á midi.is og salurinn.is. Hörfað undan Guðna Páll G. Jónsson, löngum kenndur við Pólaris, hefur setið undir ámæli skákáhugafólks eftir að hann ákvað að freista þess að selja muni tengda einvígi Fischers og Spassky í Reykjavík árið 1972 á uppboði í Danmörku. Páll keypti munina árið 1975 og vill nú koma þeim í verð í óþökk skákhreyfing- arinnar. Hann mætti á dögunum í útgáfuhóf Helga Ólafssonar, stórmeistara, í Iðnó þar sem út- gáfu bókar Helga um kynni sín af Bobby Fischer, Bobby Fischer comes home - The Final Years in Iceland, a Saga of Friends- hip and Lost Ill- usions, var fagnað. Páll sá sér þó þann kost vænstan að láta sig hverfa þegar Guðni Ágústsson hélt ræðu og skammaðist meðal annars út í menn sem vildu selja þjóðarger- semar úr landi. Ég blogga ekkert eða neitt svoleiðis en ég fylgist alveg með um- ræðunni og ég er femínisti. Þórdís Nadía hefur fengið sig fullsadda af karlrembunni í íslenskri hip hop- tónlist og svarar nú karlpeningnum fullum hálsi með laginu Passaðu þig. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Yfir 150 tegundir af buxum Kvartbuxur – Bómullarstrechbuxur Gallabuxur – Sparibuxur Vandaðar buxur í mismunandi síddum fyrir hávaxnar sem og lágvaxnar konur í stærðum 36-52. Verð frá 8.990 62 dægurmál Helgin 11.-13. maí 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.