Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 1
14.-16. september 2012
37. tölublað 3. árgangur
18
Borghildur
Erlingsdóttir
viðtal UnnUr ösp stefánsdóttir hefUr sprUngið út á örfáUm árUm
Gróa, Guðný
og Elísabet
Með líf fólks í
höndum sér
22
Hafa safnað tvö
hundruð milljónum
viðtal
LjósMynd/Hari
síða 28
Ásgeir óli er ein-
stæður faðir
Pabbi veikasta
barns landsins
24-27 Á allra vöruM
íslenskt grænmetiSölufélag garðyrkjumanna
hauSt 2012
Það kom aldrei annað til greina en að búa í sveit“ segir sigrún H. Pálsdóttir garðyrkjubóndi á Flúðum. Hún er fædd og uppalin á Selfossi og segist ekki hafa haft áhuga á því að flytjast til Reykjavíkur. „Hugurinn stefndi alltaf í sveitastörfin“, segir Sigrún. Hún er eigandi garðyrkjustöðvar á Flúðum, sem ber nafn hennar, Garðyrkjustöð Sigrúnar. „Við stundum fjölskyldubúskap og vinnum saman að ræktuninni“. Sambýlismaður Sigrúnar, Þröstur Jónsson húsasmíðameistari, vinnur við stöðina og eins hafa börnin hennar þrjú gert það. Nú eru dæturnar tvær farnar að heiman og eru afla sér menntunar, en sonurinn Páll Orri, sem er í framhaldsskóla býr enn heima og er liðtækur við ræktunina.Sigrún er stærsti hvítkálsræktandinn hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, en frá henni fara um 120 tonn af hvítkáli á markaðinn á ári. Hún ræktar einnig kínakál, rauðkál, blómkál og spergilkál. „Í ár hef ég einnig sent grænkál á markaðinn, sem hefur verið vel tekið, enda sannkallað ofurfæði. Það var ræktað við hvern sveitabæ í áratugi, en svo dró úr ræktuninni, en landsmenn kunna nú að meta það á nýjan leik“.
„Ég kynntist garðyrkjunni fyrst hjá tengdaforeldrum mínum á Reykjabakka í Hrunamannahreppi. Þar kviknaði áhuginn á garðyrkju og þau miðluðu til mín ómetanlegri þekkingu varðandi ræktunina. Ég vann einnig á Garðyrkjustöðinni Laxárhlíð í fjölda ára“, segir Sigrún. Sigrún byrjaði að rækta rófur á smá skika til að drýgja tekjurnar samhliða garðyrkjustörfum í Laxárhlíð. Smám saman urðu umsvifin meiri og hún fékk land við Reykjabakka, þar sem hún rekur nú garðyrkjustöðina með miklum myndarbrag. Sigrún hefur fylgst mjög vel með allri þróun og framförum í ræktun og hefur sótt sér viðbótarþekkingu meðal annars til erlendra ræktunarráðunauta. „Það koma hingað íslenskir og erlendir ráðunautar á hverju ári og líta yfir ræktunina. Við þiggjum öll góð ráð og nýtum okkur þau til að bæta ræktunina“, segir Sigrún.Garðyrkjubændur eru miklir veðurfræðingar, enda er afkoma þeirra sem eru með útiræktun háð veðri. „Það hafa orðið miklar breytingar á veðurfari á síðustu tíu til fimmtán árum. Undanfarin ár hefur verið þurrt og kalt á vorin og lítil spretta, en svo koma hlýindin og þá þarf að vökva vel til þess að
eitthvað komi upp úr moldinni“, segir Sigrún. Garðyrkjustöðin fjárfesti nýlega í búnaði til að vökva garðana en einnig eru notaðir akrýldúkar til að breiða yfir þá meðal annars til að auka vöxt plantanna og verja þær fyrir klulda. „Það er alltaf mikil spenna í kringum þessa ræktun. Við eru algjörlega háð veðri og það getur nú brugðið til beggja vona þegar það er annars vegar“.
Forvitnir útlendingar koma oft við þegar verið er að vinna út í görðunum og vilja vita hvernig hlutunum er hagað hérlendis. Sigrún segir að það sem veki mikla athygli útlendinga sé jarðhitinn og hreina vatnið sem íslenskir garðyrkjubændur hafa. „Við garðyrkjubændur ákváðum fyrir nokkrum árum að sérmerkja alla okkar uppskeru, þannig að fólk geti rakið grænmetið til þeirra sem rækta það. Þetta er gríðarlega mikið aðhald fyrir okkur og verður til þess að við erum alltaf vakandi fyrir því að bæta ræktunina og gera betur þannig að landsmenn séu ánægðir með grænmetið sem við sendum á markað. Þetta er einnig nauðsynlegt til að neytendur viti hvað þeir eru að kaupa, hvort um íslenska framleiðslu er að ræða eða erlenda“.
kál í tonnatali - sérmerkt sigrúnu- hvítkál, blómkál, spergilkál, rauðkál, kínakál og grænkál gægjist upp úr moldinni á hverju sumri í Garðyrkjustöð Sigrúnar
Gulrót
Full af
A-vítamíni
Blómkál
Boðar gæfu í draumi
Hvítkál
Í fimm þúsund ár
Grænkál
Íslensk ofurfæða
ListakokkarMatgæðingarnir og
listakokkarnir nanna rögnvaldsdóttir og Helga mogensen eru höfundar uppskrifa í blaðinu, sem henta við flest tækifæri.
h
a
ri
El
sa
B
jö
rg
M
a
g
n
ú
sd
ó
tt
ir
geymið blaðið
sigrún h. Pálsdóttir, Þröstur jónsson og Páll Orri Þrastarson.
Íslenskt ti
Í miðju FrÉttatÍmans
Stórleikkona fædd
viðtal
Bylgja Kærnested
og kraftaverkin
á hjartadeildinni
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona missti vatnið sex vikum fyrir tímann í sumar og eyddi síðan tíu dögum á
vökudeild. Hún ólst upp í leikhúsi, foreldrar hennar eru þau Stefán Baldursson og Þórunn Sigurðardóttir, og
hún var lengi í söngleikjum og hræddist álit annarra. En líkt og bróðir hennar segir þá komst hún yfir sjálfa
sig með árunum og þroskaðist bæði í móðurhlutverkinu og í leikhúsi. Hún var valin leikkona ársins í fyrra.
Fréttatíminn ræddi við hana um lífið og listina og allt annað en hvernig manninum hennar, Birni Thors,
tekst að sameina leiklistina föðurhlutverkinu.
Forstjóri
Einka-
leyfis-
stofu
Íslands-
meistari
í kraft-
lyfting-
um
70
dæGurMÁl
JL-húsinu
JL-húsinu Hringbraut 121 www.lyfogheilsa.is
Við opnum kl: Og lokum kl:
Opnunartímar
08:00-22:00 virka daga
10:00-22:00 helgar