Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 18
B ylgja Kærnested lætur sér ekki nægja að bjarga mannslífum á vinnutíma heldur nýtir hún frítímann einnig í þágu sjúklinga sinna. Hún er hjúkrunardeildarstjóri hjartadeild- ar Landspítalans en hefur einnig staðið fyrir söfnun á búnaði fyrir sjúklingana sem deildin hafði ekki ráð á að fjárfesta í vegna niður- skurðar. Tuttugu konur á hjarta- deild hlupu í fyrra í Reykjavíkur- maraþoni og söfnuðu áheitum. Afraksturinn var nær hálf milljón króna sem notuð var til þess að kaupa loftdýnu fyrir veikustu sjúklinga hjartadeildarinnar, sjúk- lingana sem geta lítið sem ekkert hreyft sig og eiga á hættu að fá legusár. Svona er staðan á hjartadeild. Þar er ekki hægt að fjárfesta í búnaði sem þessum. En Bylgja fór ekki í hjúkrun launanna vegna. Hún valdi hjúkrun því hún vill láta gott af sér leiða. Hún hlakkar til á hverjum morgni að fara í vinnuna – og segir það forréttindi. Forréttindi Bylgju felast í því að láta nánast ómögulega hluti ganga upp svo bjarga megi mannslífum. Starfsfólki á Landspítalanum hef- ur fækkað, laun þess hafa lækkað, sjúklingum fjölgað og þeir eru Með líf fólks í höndum sér Bylgja Kærnested, hjúkrunardeildarstjóri hjartadeildar Landspítalans, fór ekki í hjúkrun launanna vegna. Hún valdi hjúkrun af því að hún vill láta gott af sér leiða. Hún hlakkar til á hverjum morgni að fara í vinnuna – og segir það forréttindi. Forréttindi Bylgju felast í því að láta nánast ómögulega hluti ganga upp svo bjarga megi mannslífum, líkt og Sigríður Dögg Auðunsdóttir komst að þegar hún hitti hana á fjórðu hæð á Landspítalanum við Hringbraut. veikari en áður því einungis þeir allra veikustu eru lagðir inn og tækjabúnaður er úr sér genginn. Ekkert má klikka – og allir leggj- ast á eitt. Tuttugu ára mónitorar Sumir mónitorarnir á sjúkrastof- unum eru yfir tuttugu ára gamlir. Þeir eru lífsnauðsynleg tæki sem segja til um ástand sjúklingsins. Starfsfólk leggur á sig aukna vinnu til þess að koma á móts við þörfina á nýjum tækjum. Sjúklingar eru sífellt færðir á milli tækja þannig að veik- ustu sjúklingarnir fái tækin sem eru nýjust og ólíklegust til að bila. Því það er ekki hægt að færa tækin. Það er hins vegar hættulegt að færa veika sjúklinga. Hættan sem skap- ast ef tækin bila er þó meiri. Það eru alltaf mannslíf í húfi. „Við höf- um þurft að leita til velunnara með endurnýjun á tækjabúnaði vegna fjárskorts á Landspítala og má geta þess að Hjartaheill - Landsamtök hjartasjúklinga hafa mikið stutt við bakið á deildinni í þágu sjúklinga. Þeir gáfu til dæmis í fyrra sjónvörp á flestar stofur deildarinnar og einn monitor. Þetta er ómetanlegt fram- lag og við erum þeim mjög þakklát,” segir hún. Auðvitað vill Bylgja, eins og allir aðrir, geta tryggt öryggi allra – alltaf. Stærstu áhyggjur hennar varðandi rekstur hjartadeildar- innar eru hins vegar tækjaskortur- inn. „Hér er valinn maður í hverju rúmi,“ segir hún um starfsfólk sitt. „Ég gæti hins vegar ekki fækkað fólki meira. Þá yrði hættulegt að liggja hjá mér,“ segir Bylgja. Bylgja ólst upp í Breiðholti og fór með vinkvennahópnum í Kvennó. Henni fannst spennandi að fara í miðbæinn og yfir því var ákveðin rómantík. Úr Kvennó lá leiðin í hjúkrun í Háskóla Íslands. „Ég hafði áhuga á þessu mannlega við hjúkrun og vildi láta gott af mér leiða og geta verið til staðar fyrir sjúklingana,“ svarar hún þegar hún er spurð hvers vegna hún hafi valið hjúkrun. „Hjúkrunarfræð- ingar geta haft mikil áhrif á með- ferð og horfur sjúklinga. Fólk gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því í hverju starf hjúkrunarfræðings felst fyrr en það leggst sjálft inn á spítala eða einhver nákominn því.“ Lestrarhestur á hestbaki Bylgja er þriggja barna móðir. Hún á 15 ára dóttur sem hóf nýverið nám í Menntaskólanum í Reykja- vík og 10 og 6 ára syni. Hún er mikil fjölskyldukona og notar gjarnan sinn frítíma í með börnum sínum og fjölskyldu. Þegar hún er ekki í vinnunni eða að njóta sam- vista með börnunum sínum stund- ar hún í hestamennsku. „Ég var í hestamennsku með afa mínum í gamla daga og hef tekið upp þráð- Allir svo yndislega góðir Gyða Ólafsdóttir er einn af sjúk- lingunum á hjartadeild. Hún fékk vægt hjartaáfall í júlí og var ný- lögst aftur inn vegna gruns um nýtt áfall. Hún lætur vel af starfsfólk- inu á deildinni en segir aðbúnaðinn mega vera betri. „Það er mjög gott að liggja hér. Allir eru svo yndislega góðir að ég á ekki orð yfir það,“ segir Gyða. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gyða þarf að leggjast inn á spítala, „enda er ég orðin svo gömul,“ segir hún, „85 ára.“ Hún liggur á fjórbýli en hefur ekki reynt það fyrr. Aðspurð segir hún umganginn dálítið óþægilegan þótt hann hafi ekki truflað sig mik- ið. „Verst er að komast á klósett- ið. Það er svo langt að fara,“ segir hún, en ekkert salerni er á sjúkra- stofunni. „Það mætti tína margt til sem betur mætti fara. Við erum til dæmis ekki með sjónvarp,“ bætir hún við. Hún er afskaplega ánægð með hjúkrunarfræðingana þótt hún seg- ist finna fyrir því að fjöldi starfs- manna sé í lágmarki. „Stundum er eins og það sé skortur á starfsfólki og hjúkrunarfræðingarnir séu ekki nógu margir,“ segir Gyða. „Starf þeirra er fórnfúst og mikilvægt. Ég gerði mér enga grein fyrir því hvers eðlis starf þeirra er fyrr en ég lagðist sjálf inn á spítala.“ Hún segist vel sjá þörfina fyrir nýjan spítala. „Vissulega er þörf á nýjum spítala. Það er allt orðið svo svakalega lúið. Það er agalegt að það skuli ekki vera hægt að kaupa tæki án þess að allt fólkið í landinu skuli þurfa að safna fyrir þeim. Það á að vera sjálfsagt mál að kaupa ný tæki,“ segir Gyða. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Framhald á næstu opnu Fólk gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því í hverju starf hjúkr- unarfræð- ings felst fyrr en það leggst sjálft inn á spítala eða einhver nákominn því. Bylgja Kærnested: „Ekkert má klikka – og allir leggjast á eitt. Það eru alltaf manns- líf í húfi.“ 18 viðtal Helgin 14.-16. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.