Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 36
hefði týnt honum á stóru grasflötinni fyrir utan æf- ingahúsnæði kórsins. – Þeg- ar ég kom aftur að húsnæð- inu og stóð fyrir utan það minnkaði von mín um að finna lykilinn. Ekki var nóg með að grasið hafði ekki verið slegið í nokkurn tíma heldur var komið haust og grasið farið að gulna og var nákvæmlega eins á litinn og lykillinn. Daginn áður hafði ég gengið um allt svæðið. Ég leitaði ákaft í fjörutíu og fimm mínútur án þess að finna lykilinn. Þá datt mér allt í einu í hug að Chamuel hlyti að geta hjálpað mér. Ég sá fyrir mér að ég fyndi lykilinn í grasinu og sýndi Chamuel hann. Svo gekk ég aðeins um svæðið en án árangurs. Allt í einu sagði Chamuel að við skyldum fara í leikinn „Að fela hlut“. Ég hugsaði með mér að nú væri að slá út í fyrir mér. Ég get ekki verið hér í grasinu og leikið Að fela hlut með engli! Það var einum of mikið. En svo komst ég að því að það myndi enginn annar vita að ég væri að því. Fólk myndi bara sjá að ég væri að leita að einhverju í grasinu eins og ég var búin að gera undanfarna klukku- stund. Ég byrjaði. „Kaldur“. Ég fór í aðra átt. „Heitari, heitari, heitt. STOPP!“ heyrðist frá Chamuel. Þetta tók nákvæmlega fimm sekúnd- ur. „Nú er ég í einhverju rugli,“ hugsaði ég, „þetta er fáránlegt.“ En þegar ég leit niður lá lykillinn í grasinu á milli fóta minna.“ Mörg dæmi nefna þær í bókinni, til dæmis hvernig hægt sé að biðja um að verkir séu teknir frá þeim sem finnur til og færðir yfir á þann sem biður og þær segjast sannfærðar um að allir hafi þennan hæfileika: Þetta sé alltaf spurning um að biðja og hlusta. Englaskólinn Í fimm ár hafa þær rekið andlegan skóla, Astarte Education, sem í daglegu tali er kallað Englaskólinn: „Þar höldum við sjálfshjálparnámskeið með andlegu ívafi, en sambandið við englana er miðpunkturinn. Við teljum að allir ein- staklingar eigi möguleika á að ná slíkum samböndum sem veita inn- blástur og aðstoðar fólk við leit að sannleikanum um eigið líf. Þetta er þriggja ára nám, en fólk getur valið milli eins veturs, tveggja eða þriggja. Alla jafna er mætt í skólann tvisvar í viku, en stundum dveljum við heila viku saman. Nemendafjöldinn er mismunandi og á fjöl- breyttum aldri, frá tvítugu upp að sjötugu. Konur eru í meirihluta en þó nokkuð af karlmönnum hefur sótt skólann.“ Að fylgja visku hjartans Þær segjast vera „á næst- um því sama aldri“ – Elisabeth er gift og býr ásamt eiginmanni, fjórum börnum og tveimur hund- um rétt fyrir utan Osló, en Märtha Louise prinsessa er nýflutt il Bretlands með eiginmanni sínum, Ari Behn rithöfundi og leik- skáldi, og þremur börnum þeirra. En ala þær börn sín upp í trú á engla? „Okkar skoðun er sú að hver og einn verði að finna sína lífsleið – meira að segja börnin okkar...! Það sem skiptir allra mestu máli er að reyna að hafa þau áhrif á þau þannig að þau séu sönn í því sem viska hjartans býður þeim. Sjálfar höfum við verið forvitnar alla okkar ævi og vissar um að það hljóti að vera eitthvað meira til en það sem augað sér!“ Allir geta verið í tengslum við engla Þegar ég spyr þær hvort þær séu ánægðar með þann árangur sem þær hafa náð við að hjálpa fólki að finna verndarengla sína, hvort sem það er í gegnum bækurnar eða skólann svara þær: „Það er gjöf að geta miðlað þessari visku til fólks um allan heim og við erum svo sannarlega þakklátar fyrir þann möguleika. Við sjáum og upplifum þetta þannig að hver og einn hefur sinn verndarengil, en allir geta verið í tengslum við marga engla í einu eftir því hvað við- komandi liggur á hjarta í hvert sinn.“ Margir þekkja mörg englanöfn eins og Mikael, Raziel, Gabriel og svo framvegis. En er hægt að segja hversu margir englar eru til? „Ríki englana er mjög stórt. Opnið hjarta ykkar og þið munuð verða hissa á þeirri gnægð sem þar er að finna.“ „Það er ekkert leyndarmál að við eig- um samskipti við engla. Mikið af boð- skapnum í þessari bók hefur orðið til vegna samtala við englana og hvatn- ingu frá þeim. Það kemur greinilega fram í textanum, en einnig sem bein til- vitnun í samtöl við þá. Við deilum upp- lifun okkar og annarra í tengslum við englana. Hver og einn hefur einstakan möguleika á að finna sinn eigin sann- leika og upplifa þannig englana. Ef til vill getur þessi bók orðið hvatning fyrir þig að leita inn á við í þínum guð- dómlega alheimi. Það eru óendanlega margir englar sem hægt er að upplifa – og vertu viss; þeir vilja gjarnan hafa samband við þig.“ Í bókinni kemur Märtha Louise Nor- egsprinsessa með skemmtilega sam- líkingu á því hvernig hægt er að upplifa engil og prinsessu: „Þegar ég sinni opinberum störfum, sem getur verið heimsókn á heimili fyr- ir fatlaða eða íþróttamót, er sjaldgæft að ég sé klædd síðum kjól, með orður og djásn. Það getur verið erfitt að út- skýra þetta fyrir börnum sem hreykin koma til mín og mamma þeirra vill taka myndir af okkur. Oft stoppa börnin fyr- ir framan mig og líta ringluð í kringum sig: „En mamma, hvar er prinsessan?“ Mamman svarar pirruð: „Hún stendur beint fyrir framan þig. Stilltu þér nú upp hjá henni svo ég geti tekið mynd- ir af ykkur saman.“ Þá fer barnið að leita að flaueli eða blúndum – alla vega lítilli gullkórónu. Stelpan snýr sér að mömmu sinni sem bendir aftur á mig og er orðin rauð í andliti. Andlitsdrætt- irnir breytast úr hrifningu í vonbrigði þegar barnið uppgötvar að það er í raun prinsessan sem stendur fyrir framan það. Engin kóróna. Enginn glæsilegur kjóll. Aðeins venjuleg kona sem heldur á nokkrum blómum. Það er bara ég sem er prinsessan.“ úr LEyndArmáLum EngLAnnA „Það er gjöf að geta miðlað þessari visku til fólks um allan heim og við erum svo sannar- lega þakklátar fyrir þann möguleika. Við sjáum og upplifum þetta þannig að hver og einn hefur sinn verndarengil.“ 36 viðtal Helgin 14.-16. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.