Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 48
B ændur um allt land, sérstak-lega fyrir vestan, norðan og austan, nýttu oft haustið til
að gróðursetja skógartrén, af því
annir við sauðburð á vorin og síðan
annar búskapur tóku allan tímann
frá því snemma á vorin og fram yfir
heyskap.
Skrúðgarðyrkjuverktakar gróð-
ursetja helst bara á haustin og vet-
urna, eða svo lengi sem jörð er þíð.
Það er vinnusparandi, þarf ekkert
að vökva, og trén eru tilbúin í slag-
inn um leið og vorar. Rætur vaxa
svo lengi sem jörð er þíð.
Nýtum haustin
Sex þurrkasumur í röð, alla vega
sunnanlands og vestan, hljóta að
kenna okkur að nýta rakann og góð-
viðrisdagana á haustin til gróður-
setningar. Planta sem gróðursett
er að hausti, rótfestir sig og kemur
sér fyrir svo lengi sem jörð er þíð.
Næsta vor er hún betur sett með öfl-
ugt rótarkerfi og fljótari að ná sér í
raka, bjargar sér betur sjálf, þó að
enn eitt þurrkasumarið skelli á. Ein-
hvern veginn er það nú þannig að
við erum alltaf svolítið sein til verka
með gróðursetningar á vorin og oft
er komið fram á sumar er maður
loksins rýkur til að gróðursetja, en
þá er kominn þessi þurrkur, vindur
og sólarsteik eina ferðina enn og
þarf að vökva næstum upp á hvern
dag, svo að vor- og sumargróður-
setningarnar skrælni ekki. Fimm
heilir vinnudagar á milli helga á
sumrin í þurrki, vindi og sól og þú
mætir aftur í sumarbústaðinn að
vökva, en allt hefur skrælnað þá
þegar! Gróðursetning á haustmán-
uðum er skynsamlegri.
Veldu góðviðrisdaga
Víðast hvar í nálægum löndum er
haustið aðalgróðursetningartím-
inn. Einn finnskur kollegi minn
sagðist ekki skilja hvers vegna við
gróðursettum svona mikið fyrripart
sumars, þegar von er á sólarsteik
og þurrki. Hvort við værum alltaf
svona dugleg að vökva? Hjá honum
(hann er staddur á ca. 64 breidd-
argráðu eins og t.d. Reykjavík) er
aðalsölutíminn frá ágúst og fram í
október, eða svo lengi sem hægt er
áður en jörð frýs.
Auðvitað velur maður bara góð-
viðrisdaga. Það er ástæðulaust að
pína sjálfan sig og plönturnar og
brölta með þær í vondu veðri. En um
leið og hægist um, er um að gera
að halda áfram. Það þarf nefnilega
ekki að hafa áhyggjur af vökvun á
haustin. Jörð er svöl og haustregnið
oftast nægilegt.
Ávaxtatré gróðursett að hausti
fram í nóvember og aftur í mars um
leið og þiðnar aftur, standa sig öll
vel og skila góðum og hraustleg-
um vexti næsta sumar. Best er að
skipta fjölærum blómum og flytja
til um haust. Stór tré af hvaða tagi
sem er, ilmreynir, alpareynir, silfur-
reynir, birki, greni, askur, hlynur,
beyki, eik, linditré og alls konar
skrautrunnar standa sig miklu bet-
ur næsta sumar ef gróðursett eru
að hausti. Stóru trén verður maður
að sjálfsögðu að staga og binda vel
við staura hvort sem gróðursett er
að hausti eða sumri.
Flott líkamsrækt
Í nýjum görðum þar sem allt er til-
búið fyrir gróðursetningu er engin
ástæða til að bíða næsta sumars.
Það er um að gera að gróðursetja
limgerðisplönturnar núna strax
og allar sterkustu tegundirnar af
trjám og runnum. Undirritaður
gróðursetti meira að segja tré dag-
inn sem byrjaði að snjóa í fyrra, 26.
nóvember. Þau komu stálhraust
undan vetri og uxu hressilega í
sumar. Aspir gróðursettar í hundr-
aðatali í janúar í einum þíðukafl-
anum spruttu strax fyrsta sumar-
ið svo hressilega að varð að setja
stuðning við þær er leið að hausti.
Skógarplöntur af birki, greni, lerki,
furu, öspum og víði gróðursettar
fram eftir öllum október og aftur
í febrúar árið eftir, lifa flest góðu
lífi áfram.
Að gróðursetja að hausti og vetri
þýðir að maður hefur meiri tíma til
að njóta sumarsins til annarra lysti-
semda, til dæmis að skipuleggja
framhaldið, grafa stóru holurnar,
blanda húsdýraáburði og kalki í
moldina og gera klárt fyrir gróður-
setningarnar um haustið. Það er al-
deilis flott líkamsrækt, léttklæddur
í steikjandi sól að puða við jarðveg-
sundirbúning og vera ekki að eyða
tíma í vökvun allt sumarið. Ekki er
síðra að eiga meiri tíma til að sinna
alls konar fjölskyldusýslan í sól og
sumaryl.
Ólafur Sturla Njálsson, garðyrkju-
sérfræðingur í Nátthaga, Ölfusi
40 garðar Helgin 14.-16. september 2012
Garðar valkvíði veGna litaúrvals Garðar Ólafur í nátthaGa seGir haustið Gott til GrÓðursetninGar
Undirritaður gróður-
setti meira að segja
tré daginn sem byrjaði
að snjóa í fyrra.
Haustlaukar
Haustlaukavertíðin fer nú í gang og um leið hellist alvarlegur
valkvíði yfir ræktendur því úrvalið er svo fjölbreytt. Fjöl-
breytni haustlaukanna birtist með margvíslegum hætti. Hægt
er að fá lauka í öllum regnbogans litum, með mismunandi
blómgunartíma, misstór blóm og mishávaxna. Það er því ekki
að undra að ræktendur standi tímunum saman frammi fyrir
haustlaukarekkum garðyrkjuverslana og klóri sér í kollinum.
Flestir setja laukana niður í görðum sínum, ýmist í blóma-
beðum eða jafnvel í grasflatir en þeir sem ekki eiga garða geta
hæglega komið sér upp litríku vori því laukarnir geta komið
mjög vel út í kerjum og pottum.
Við val á laukum í ker og potta er sniðugt að hafa það að
leiðarljósi að laukarnir blómstri á mismunandi tíma vorsins,
það lengir vorið verulega og eykur væntanlega á gleði rækt-
andans. Þannig gæti til dæmis verið sniðugt að velja saman
krókusa sem koma mjög snemma, síberíuliljur sem koma fljót-
lega á eftir krókusunum og eldtúlípana eða jafnvel páskaliljur
til að reka lestina. Aðferðin við gróðursetninguna er sú að
velja frekar vítt ker, sæmilega djúpt. Neðst í kerið þarf að setja
möl eða vikur til að tryggja afrennsli vatns úr moldinni. Ofan
á vikurinn kemur svo moldarlag, 3-5 cm þykkt. Laukunum er
raðað þannig í kerið að stærstu laukarnir eru neðst og minnstu
efst. Stærstu laukunum er nú raðað ofan á moldina og þarf að
gæta þess hvernig þeir snúa. Mjóa totan á laukunum á alltaf
að snúa upp. Rétt er að hafa í huga að millibilið milli laukanna
verður óhjákvæmilega aðeins minna en gefið er upp á umbúð-
um en þó má ekki raða þeim alveg þétt saman, gott er að hafa
5-7 cm milli laukanna. Þegar fyrsta laukalagið er komið þarf
að fylla varlega með mold milli laukanna og dálítið lag ofan á
þá líka. Þá er komið að næsta laukalagi, til dæmis síberíulilj-
unum en þeir laukar eru millistærð miðað við tegundavalið
hér að ofan. Gott er að reyna að setja þá ekki beint ofan á
stærstu laukana fyrir neðan. Aftur er fyllt upp með mold og
dálítið lag sett ofan á og þá er komið
að síðasta laukalaginu, krókusunum.
Þeir geta staðið þéttar en stóru lauk-
arnir enda eru þeir mun smærri. Að
síðustu er kerið fyllt upp með mold og
skilið eftir dálítið borð fyrir báru efst.
Kerið er nú vökvað létt með vatni og
það látið standa í skjóli utandyra yfir
veturinn, allt þar til fyrstu laukarnir
láta á sér kræla, vonandi ekki síðar
en seinni partinn í febrúar. Eftir að
laukarnir fara að koma upp er gott að
vökva aðeins yfir kerið í hlýju veðri
en þó verður að gæta þess að drekkja
ekki laukunum.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufræðingur
Laukar
2012.
Tulipa
greigii
„Red
Riding
Hood“
– Dílatú-
lípani.
Haust- og vetrargróð-
ursetningar
Ólafur Sturla Njálsson segir að
í nágrannalöndunum sé haust-
ið aðalgróðursetningartíminn
og við Íslendingar ættum að
nýta það betur. Síðustu sex
þurrkasumur (sunnanlands og
vestan) ættu að kenna okkur
að nýta rakann og góðviðris-
dagana fram undan.
Nýta á haustið til gróðursetningar.
Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vökva á haustin.