Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 34
ILVA Korputorgi s: 522 4500 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 www.ILVA.is Nýjar Nýjar vörur erum að taka upp - einfaldlega betri kostur nýtt sALoon fLowers Ljósakróna með 9 skermum. 49.900,- Þ egar Märtha Louise Noregs-prinsessa og Elisabeth Nor-deng hittust fyrst fyrir tæpum tíu árum voru þær á námskeiði um skyggnigáfnu. Staðurinn var Osló en líklega var enginn hissa á að prins- essan færi sínar eigin leiðir. Það hafði hún alltaf gert og stóð með sjálfri sér og sannfæringu sinni. Þetta varð þó ekki „vinátta við fyrstu sýn“, þær höfðu verið saman á námskeiðinu í tvö og hálft ár þegar þær urðu vinkonur og hófu samvinnu. Märtha Louise prinsessa og Elisabeth Nordeng segja það ekkert leyndarmál að þær eigi samskipti við engla og hafa skrifað tvær bækur um þá upplifun sína. Sú fyrri, „Hittu verndarengil þinn“, kom út fyrir þremur árum og nú kemur út í íslenskri þýðingu bókin „Leynd- armál englanna“. Þær Elisabeth og Märtha Louise eru komnar til landsins til að kynna og árita bók sína og halda jafnframt fyrirlestur um upplifun sína af englum á sunnudagsmorguninn í sal Þjóðdansafélags Reykja- víkur, Álfabakka 14, klukkan 10 til 12. Meðal þess sem höfundarnir segja um bókina er eftirfarandi: „Þú munt sjá tækifæri þar sem aðrir sjá hörmungar, þú munt sjá ljós þar sem aðrir sjá myrkur og þú munt geta skapað kringumstæður sem eru til góðs fyrir þig og þá sem þú elskar.“ Reyndi að vera „eðlileg“ eins og hin börnin Þegar ég spyr þær hvenær og hvernig þær hafi fyrst upplifað tengsl sín við engla verður Märtha Louise fyrir svörum: „Elisabeth átti í samskiptum við engil sem hún kall- aði „Stelpuna“ þegar hún var barn, en hún lokaði fyrir samskiptin og reyndi að vera „eðlileg“ eins og allir aðr- ir. Sjálf á ég ekki beinlínis minningar frá bernskuárum mínum sem tengjast englum, en minnist þess að hún hélt að allir fyndu fyrir þeim tilfinningum sem ég tók inn á mig frá öðrum. Þegar ég var rúmlega tvítug las ég bók sem heitir „Spurðu englana þína“ („Ask your angels“) og upplifði þá tenginguna mjög sterkt. Það opnaði djúpt samband milli mín og englaheimsins.“ „Það var eðlilegt í mínum augum að vera í sambandi við verndarengil minn,“ segir Elisabeth. „Þegar ég var í sambandi við þennan kraft þarfnaðist ég einskis annars – ég fann fyrir öryggi og var umvafin kær- leika. Það rann svo upp fyrir okkur báðum löngu áður en við kynntumst að fólkið í kringum okkur skynjaði hlutina ekki á sama hátt og við. Það varð til þess að við reyndum að loka á þessi sambönd og tilfinningar og misstum þannig leiðsagnarkerfið fyrir lífið sem okkur var gefið. Við urðum feimnar, óöruggar, einmana og okkur leið einkennilega. Samt blundaði í okkur báðum forvitni sem leiddi okkur áfram.“ Rósailmur og kærleiksrík nærvera „Á fyrsta fundi mínum með verndarengli mínum fann ég rósailm og kærleiksríka nær- veru sem var svo sterk að ég gat ekki litið framhjá henni.. Frá þeim degi breyttist lífið hægt, en örugg- lega og ég fór að skoða andleg mál af alvöru, byrjaði að fylgja hjarta mínu og endaði á námskeiði um skyggnigáfu þar sem Elisabeth var líka þátttakandi og þar hófst vinátta okkar síðar.“ Treystum bæði á Guð og engla Þær segja fyrstu upplifun sína af að hitta engil síður en svo hafa verið vandræðalega og fremur megi líkja þessu við að þær hafi verið að hitta vin. Verndarenglar þeirra hafi verið þeim sem birtust þeim fyrst. En eru englar almennt viðurkenndir í Noregi eða eru margir sem leggja ekki trúnað á frásagnir ykkar? „Fleiri og fleiri samþykkja skoðanir okkar og trúa á engla eins og við, en vissulega verður alltaf einhver hluti sem mun ekki trúa á engla. Hvað okkur sjálfar varðar finnst okkur mjög mikilvægt að treysta bæði á Guð og englana. Og svo verður hver og einn auðvitað að treysta á sjálfan sig.“ Þær segja trú sína á engla ekkert hafa með það að gera að þær hafi ekki verið sáttar við sjálfar sig og líf sitt. „Nei, alls ekki. Við vorum bara forvitnar stelpur sem voru alltaf vissar um að það væri eitthvað meira og stærra „þarna úti“. Við erum bæði líkami og sál og þess vegna minna englarnir okkur stöðugt á að við erum guðlegar verur. – Það er hægt að spyrja englana að öllu, á hvern þann hátt sem hver vill og eins oft og fólk vill. Þannig geturðu beðið þá um leiðsögn ef það er það sem þér finnst þú mest á að halda á einhverri stundu.“ Í feluleik með engli Í bókinni segir Märtha Louise meðal annars frá því þegar hún týndi lyklum á gríðarstórri grasflöt. Hún hafði leitað lengi og var búin að gefa upp vonina að finna þá þegar henni datt í hug að biðja engilinn Chamuel um aðstoð: „Dóttir mín var í kór. Utan við staðinn þar sem kóræfingarnar voru var stór grasflöt. Ég fór með dóttur mína inn og þar sem það var fallegur haustdagur og ég þurfti að hringja mörg símtöl gekk ég um grasflöt- ina meðan ég talaði. Ég settist hér og þar en að mestu gekk ég um á meðan ég talaði. Daginn eftir átti að vera kennsla í Astarte Education og þegar ég stóð fyrir utan dyrnar og ætlaði að opna komst ég að því að ég hafði týnt lyklinum sem hafði legið laus í vasa mínum. Ég varð örvæntingarfull, því ef við týnum lykli að húsnæð- inu verðum við að skipta um lása í allri byggingunni. Það var neyðarlegt að það skyldi einmitt vera ég sem týndi lyklinum og það myndi hafa í för með sér kostnað sem við höfðum ekki reiknað með. Ég fann út að ég Umkringdar englum Elisabeth Nordeng og Märtha Louise Noregsprinsessa hafa skrifað tvær bækur um upplifun sína af englum og reka andlegan skóla sem í daglegu tali er kallaður Englaskólinn. Þær eru forvitnar og vissar um að meira sé til en það sem augað sér. Märtha Louise og Elisabeth komu hingað til lands í gær. Fréttatíminn ræddi við þær um sambandið við englana. Elisabeth Nordeng og Märtha Louise Noregsprinsessa: „Það rann svo upp fyrir okkur báðum að fólkið í kringum okkur skynjaði hlutina ekki á sama hátt og við. Það varð til þess að við reyndum að loka á þessi sambönd og tilfinningar og misstum þannig leiðsagnarkerfið fyrir lífið sem okkur var gefið. Við urðum feimnar, óöruggar, einmana og okkur leið einkennilega. Samt blundaði í okkur báðum forvitni sem leiddi okkur áfram.“ Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Framhald á næstu síðu 34 viðtal Helgin 14.-16. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.