Fréttatíminn - 14.09.2012, Page 4
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
• Stærð: 149 x 110 x 60 cm
Er frá Þýskalandi
ÚTSALAN ER HAFIN
YFIR 40 GERÐIR
GRILLA Á ÚTSÖLUNNI
39.900
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
ÚTSALA
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Hjólaævintýri
fjölskyldunnar
Boðið verður upp á hjólreiðaferðir með
leiðsögn undir yfirskriftinni „hjólaævin-
týri fjölskyldunnar“ á sunnudaginn, 16.
september. Hjólað verður frá þremur upp-
hafsstöðum á höfuðborgarsvæðinu á milli
vatnavinja þar sem áhugasamir fræðimenn
segja frá náttúrufyrirbærum á svæðinu.
Hjólaævintýrin hefjast klukkan 10.30 og
þeim lýkur í Árbæjarsafninu klukkan 14, en
þar tekur við hátíðardagskrá umhver-
fisráðuneytisins í tilefni Dags íslenskar
náttúru. Upphafsstaðirnir hjólaleiðanna
eru við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi,
Ástjörn í Hafnarfirði og í Álafosskvosinni
Mosfellsbæ. Hjólaævintýrin henta allri
fjölskyldunni og eru þátttakendur hvattir
til að hafa með eigið nesti, en jafnframt
vakin athygli á íslenskum pönnukökum
í Árbæjarsafninu. Að dagskránni standa
Náttúruskóli Reykjavíkur, Landssamtök
hjólreiðamanna, Landvernd, Hjólafærni
á Íslandi, Fuglavernd og Framtíðarlandið.
Leiðarlýsingu og kort hjólaleiðanna er að
finna á vef Reykjavíkurborgar. - jh
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Suðlæg átt Sunnantil en auSt-
lægari fyrir norðan. Víða rigning
undir kVöld og fremur milt.
HöfuðborgarSVæðið: SUðveStLæg
Átt, SkýjAð og RigNiNg.
SnýSt í norðlæga átt, fyrSt norðantil
og rigning Víða um land. áfram fremur
milt.
HöfuðborgarSVæði : SNýSt Í NoRðLægA Átt
og styttiR upp síðDegis.
Vaxandi norðVeStanátt og úrkoma
norðantil en þurt um SunnanVert
landið.
HöfuðborgarSVæðið: NoRðLæg Átt
og SkýjAð Með köFLUM.
Vætusamt um allt land
Helgarveðrið einkennist af umhleypingum. Á
morgun má búast við suðvestanátt suðvestan-
til síðdegis með rigningu, en hægviðri og
úrkomulausu veðri austantil fram á kvöld. Um
landið norðvestanvert lítur út fyrir austlæga
átt og úrkomu. Á laugardag snýst í norð-
lægar áttir, rigningu eða súld fyrir norðan
en vestlægar áttir og dálitla vætu
allra syðst. Á sunnudag lítur svo
út fyrir hægt vaxandi norðan og
norðvestanátt með úrkomu
norðantil, en þurrviðri
syðra. Hiti á bilinu 1-10 stig,
hlýjast S- og SA-lands.
6
5 5
5
7
8
7 7 6
9
6
5 5
4
7
elín björk Jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
OYSTER PERPETUAL SUBMARINER DATE
Michelsen_255x50_J_0612.indd 1 14.06.12 16:56
skólamál Bregðast þarF við vímueFnaneyslu og BrottFalli
Margrét Pála vill
útskrifa stúdenta
Margrét Pála
Ólafsdóttir,
stofnandi
Hjalla stefn-
unn ar, vill
brúa bilið milli
grunnskóla
og framhalds-
skóla til að
bregðast við
þeim vanda
sem blasir
við fram-
haldsskóla-
nemendum,
sem er vímu-
efna neysla og
brottfall. Hún
vill taka við
börnum 12 ára
á efsta stig
grunn skólans
og skila þeim
af sér með
stúdents próf
18 ára.
á fengisneysla íslenskra ungmenna byrjar í upphafi framhaldsskóla-göngunnar og fleiri hætta námi en í
löndunum sem við berum okkur saman við.
Tvöfalt fleiri börn neyta áfengis á fyrsta ári
í framhaldsskóla en á síðasta ári grunnskól-
ans, þriðji hver fyrsta árs nemi. Helmingur
þeirra sem hefja nám í framhaldsskóla lýkur
náminu á tilsettum tíma samanborið við ná-
lægt 70 prósent í löndunum í kringum okkur.
„Ætlum við að sætta okkur við að þriðj-
ungur barna byrja í neyslu og að stór hluti
lendir í brottfalli? Ég samþykki það ekki,“
segir Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri
og stofnandi Hjallastefnunnar. „Ég vil tengja
saman unglingastig grunnskólans og fram-
haldsskólann því akkúrat við 16 ára aldurinn
eru börn mjög viðkvæm. Þau eru í miðjum
unglingafasa og eiga þá að kveðja skóla sem
þau hafa haft öryggi sitt í og náð að varpa
akkerum og stíga yfir í framhaldsskóla með
fullorðnu fólki 19 og 20 ára og jafnvel eldra,“
segir hún. „Þau eru ennþá börn og eftir að
sjálfræðisaldurinn var hækkaður í 18 ára er
þessi umræða ekki síður tímabær.“
„Þarna missa þau mjög oft fótanna og
byrja í neyslu sem er það hættulegasta sem
hendir börn í okkar heimi. Þarna byrjar
brottfallið. Stór hluti drengja nær ekki ár-
angri og finnur sig ekki,“ segir hún.
Margrét Pála auglýsir eftir sveitarfélagi
sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunar-
starfi sem miðast að því að breyta umhverfi
framhaldsskólabarna. „Mig dreymir um að
tengja saman unglingastig og framhalds-
skólann, að skólakerfin skarist og verði
jafnframt samtengd. Við, í Hjallastefnunni,
byrjum með okkar krakka 5 ára og myndi ég
vilja getað útskrifað börn úr framhaldsskóla
18-19 ára,“
Í flestum löndunum í kringum okkur er
framhaldsskólinn þrjú ár. Í Bretlandi og
Bandaríkjunum útskrifast börn með stúd-
entspróf úr grunnskólum 18 ára (Secondary
School í Englandi en High-School í Banda-
ríkjunum) og á Norðurlöndunum útskrifast
stúdentar 19 ára. Í Ítalíu er skólaskylda til 18
ára aldurs, á Spáni er skólaskylda til 16 ára
en börn geta haldið áfram í grunnskóla í tvö
ár og lokið stúdentsprófi.
Mikið hefur verið unnið í því undanfarin
ár að brúa bilið milli leikskóla og grunnskóla
og hefur verið brugðist við því með ýmsum
hætti. „Nú þurfum við að skoða að gera hlut-
ina öðruvísi og brúa bilið milli grunnskóla
og framhaldsskóla þannig að við náum betri
árangri. Ég vil taka við börnunum 12 ára
inn á efsta stig grunnskólans og skila þeim
af mér 18 ára með stúdentspróf. Ég er til ef
eitthvert sveitarfélag og eitthvert afl undir
sólu er tilbúið með okkur. Tækifærin eru
óendanleg. Það þarf kjark og nýja hugsun í
skólamálum,“ segir Margrét Pála.
Sigríður dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þarna
missa
þau
mjög oft
fótanna
og byrja
í neyslu.
Margrét Pála Ólafsdóttir segir að tekist hafi að brúa bilið milli leikskóla og grunnskóla. Nú þurfi kjark og nýja
hugsun til að gera slíkt hið sama varðandi framhaldsskólana. Mynd Hari
opin fyrir öllum góðum hugmyndum
„Við erum opin fyrir öllum góðum hugmyndum enda er engin
ein leið rétt í skólamálum,“ segir katrín jakobsdóttir mennta-
málaráðherra um hugmyndir Margrétar Pálu um að taka
framhaldsskólann inn í grunnskólann og útskrifa nemendur
með stúdentspróf 18 ára. „Ég minni hins vegar á að við fórum
í róttækar breytingar á framhaldsskólakerfinu árið 2008 eftir
víðtækt samráð við fagfólk. eitt af því sem þá var skoðað var
hvort stytta ætti grunnskólann og niðurstaðan var að gera
það ekki. við höfum hins vegar innleitt breytingar á borð við
aukið samstarf við foreldra og aukið sérfræðiþjónustu við
börn,“ segir katrín.
Hún segir að þótt vissulega sé vímuefnaneysla ungmenna í
framhaldsskólum áhyggjuefni stöndum við ágætlega í alþjóð-
legum samanburði. „Auðvitað koma börn inn í annan kúltúr í framhaldsskóla en þau eru
vön úr grunnskóla því þar eru saman lögráða einstaklingar og börn undir lögaldri. Hins
vegar hafa skólarnir tekið á þessu með ýmsum hætti og margt hefur breyst til batnaðar
á síðasta áratug,“ segir hún. -sda
katrín jakobsdóttir
menntamálaráðherra.
4 fréttir Helgin 14.-16. september 2012