Fréttatíminn - 14.09.2012, Side 10
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tækifæri
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm
99.900
139.900
Kæli- og
frystiskápar
KG 36VNW20 (hvítur)
KG 36VVI30 (stál)
Tækifærisverð:
kr. stgr. (hvítur)
(Fullt verð: 129.900 kr.)
Tækifærisverð:
kr. stgr. (stál)
(Fullt verð: 179.900 kr.)
M
eð tilkomu Facebook erum við
öll orðin okkar eigin fjölmiðill
og margt ungt fólk rekur nokk-
urskonar ímyndarherferð á int-
ernetinu. Samkvæmt áhugaljós-
myndurum færist það sífellt í aukana að stúlkur
setji sig í samband og vilji láta „alvöru“ ljósmyndara
taka myndir í stúdíói, með réttri lýsingu og mynd-
vinnslu. „Já, það er mikill áhugi á að fá svona mynd-
ir,“ segir Ólafur Harðarson, áhugaljósmyndari og
öryggisvörður, sem er vinsæll þegar kemur að svona
myndatökum og hikar ekki við að taka erótískar
myndir en „ég mynda ekkert klám,“ segir hann. Að-
spurður hvort strákar hafi samband til að fá af sér
myndir berum að ofan eða þvíumlíkt segir hann að
það hafi ekki gerst.
„Ég er nú bara í þessum fitnessmyndum,“ segir
annar áhugaljósmyndari, Arnold Björnsson, sem
tekur ekki þátt í að mynda stelpur undir tvítugu.
Hann segist ennfremur viss um að það sé „fullt af
fólki þarna úti sem gleypir loft þegar það sér þessar
myndir en það er kannski að breytast.“
En myndirðu að segja að svona myndir hlutgeri
konur?
„Nei. Þetta eru í grunninn bara eins og hverjar
aðrar spánarmyndir og að þú þarft ekki annað en að
fara inn á bleiku svæðin á þessum netmiðlum, eins
og til dæmis Vísir.is, til að sjá að það er mikil eftir-
spurn eftir svona myndum af konum,“ segir Arnold.
Fitnesmódel klippa kvikmyndir
Síðustu ár hefur mikil umræða átt sér stað í sam-
félaginu um það hvernig konur birtast í fjölmiðlum
og á netinu og hversu mótandi þær birtingarmyndir
eru á ungar stúlkur. Þeir sálfræðingar sem haft
var samband við vegna vinnslu greinarinnar sögðu
útlitið að nokkru vera félagslegan gjaldmiðil fyrir
konur í heimi sem er að langmestu leyti stjórnað af
karlmönnum og því ætti það ekki að koma neinum
á óvart að ungar konur birti eins fallegar myndir af
sér og þær geta, jafnvel af sér fáklæddum.
Hinsvegar segja þær ungu konur sem birta fá-
klæddar fyrirsætumyndir af sér á netinu að þær geri
það á eigin forsendum:
„Við klæðum okkur nákvæmlega eins og okkur
sýnist og birtum þær myndir af okkur sem við vilj-
um,“ útskýrir Eva Lind Höskuldsdóttir en hún og
Færri föt á
Fleiri konur
birta myndir af
sér á Facebook
sem eru teknar
af svokölluðum
áhugaljós-
myndurum, rétt
lýstar og unnar í
myndvinnslufor-
ritum. Náms-
ráðgjafi setur
spurningamerki
við þessa þróun
en eldri konur
eru auðvitað
fyrirmyndir
þeirra yngri.
Stelpunum í
módelfitness og
öðrum fyrir-
sætustörfum
finnst ekkert
mál að vera
fáklæddar á
Facebook og
samt krefjast
virðingar í
karllægum
heimi.
vinkona hennar og samstarfskona, Eyrún Helga Guð-
mundsdóttir, klippa kvikmyndir, stunda svokallað mód-
elfitness og „ganga í bleiku ef okkur langar að ganga í
bleiku.“ Þær hika heldur ekki við að birta
myndir af sér á bikini á Facebook og segja
að þeim sé alveg sama hvað fólki finnst um
það almennt.
Og varðandi hvort þær fái minni virðingu
í þessum karlaheimi sem kvikmyndabrans-
inn er þá viðurkennir Eva að það komi körl-
unum oft á óvart að þær Eyrún geti klippt
kvikmyndir: „Og ef ég spyr: „Er það af því
að ég er kona? Eða af því að ég er í bleiku?“
þá segja þeir að þeim finnist við bara ekki
vera týpurnar sem geti klippt bíómynd.“
„Sæta, sæta„ og læk á það
Elva Björk Ágústsdóttir námsráðgjafi segir það gott þeg-
ar hver og einn fær að vera eins og hann eða hún vill:
„Ef einhver stúlka hefur áhuga á því að vera fyrirsæta á
kvöldin og forstjóri á daginn þá er það auð-
vitað bara frábært,“ segir hún en Elva hef-
ur unnið mikið með stúlkum og þá hvaða
tilfinningu þær hafi fyrir eigin líkama og
segir að almennt séu stelpur ekki ánægðar
með líkamsvöxt sinn.
Elva setur því ákveðið spurningamerki
við hvaða skilaboð er verið að senda ung-
um stúlkum með því að þær eldri birti
myndir af sér í einhverjum pósum á Fa-
cebook. „Auðvitað er það ákveðin leið til
að styrkja sjálfsmyndina að birta mynd-
ir af sér og fá kannski skilaboðin „sæta,
sæta“ eða nokkur læk til baka. En oft dugar
það ekki til og getur þá snúist upp í andstæðu sína og
kannski í grunninn birtingarmynd af því að þeim líði til
að byrja með eins og þær séu ekki nógu góðar,“ segir
Elva og bendir á að það sé einnig hættu-
legt ef stúlkur setji of grófar myndir af sér
þarna inn og nauðsynlegt sé að foreldrar
séu mjög meðvitaðir um hvað börnin þeirra
eru á gera á netinu.
„Það má líka alveg spyrja stelpurnar að
því hvaða mynd þær eru að birta af sér sem
konum ef þær eru að birta myndir af sér á
bikini á Facebook,“ heldur Elva áfram en
hún telur að margar stúlknanna sem gangi
of langt í þessum efnum muni sjá eftir því
þegar þær verði eldri. Útlit skiptir miklu
máli í því samfélagi sem við búum í og því
kannski ekkert svo skrítið að fólk leiti að
samþykki annarra á útliti sínu með þessum
hætti. En sem betur fer er samfélagið síbreytilegt og
þótt mikið sé um útlitsdýrkun núna þá muni það vonandi
breytast eins og annað.
Hætt með myndaseríur á Bleikt.is
Hlín Einarsdóttir, ritstjóri eins bleikasta
vefs landsins, Bleikt.is, veit hvaðan þessar
ungu konur og stúlkur eru að koma sem
vilja birta „sexí“ myndir af sér á Facebook:
„Ég veit að mörgum konum finnst gam-
an að láta dást að sér og hrista upp í fólki,“
segir Hlín sem fékk fyrrnefndan Ólaf Harð-
arson til að taka myndir af sér á sínum tíma
þegar hún var einhleyp og skrifaði pistla
á netinu um samskipti kynjanna. „Það er
samt liðin tíð,“ segir hún.
Hún segir að á myndatökum sem þess-
um sé þó skuggahlið og það sé þegar ungar stúlkur
gangi þvert á öll heilbrigð mörk og séu jafnvel að senda
klámmyndir eða setji inn á vafasama vefi. Þau á Bleikt.is
hafa fjallað um slík tilfelli og slík umfjöllun hefur breytt
þeirra sýn á myndir af fáklæddum konum en Hlín segir
að hún sé hætt að birta myndaseríur á Bleikt.is.
„Ég er samt á því að það sé gott þegar konur gera ná-
kvæmlega það sem þeim sýnist. Í dag er miklu meira
frjálsræði og kona getur verið flott og sexí en samt kraf-
ist virðingar í karlaheimi,“ segir Hlín.
Önnur ung kona sem hefur fengið Ólaf
Harðarson til að mynda sig er Sólveig Gylfa-
dóttir en hún hefur lengið stefnt að því að
verða fyrirsæta en er að auki nemi við Söng-
skólann í Reykjavík, förðunarfræðingur og
í gospelkór. Hún, eins og reyndar Eva Lind
og samstarfskona hennar, Eyrún Helga,
stunda mjög heilbrigðan lífstíl og er annt
um útlitið: „Ég myndi aldrei birta nektar-
myndir af mér á Facebook,“ segir Sólveig
og bætir því við að allar þær myndir sem
hún hafi birt af sér séu smekklegar.
Eva Lind segir sjálf að henni finnist hún
bara „allt í lagi sæt,“ en í skóla á sínum tíma
var hún með lítið sjálfstraust, hún var svokallað nörd
og lesblind í ofanálag og varð fyrir einelti. Líkamsrækt
og heilbrigt líferni hefur hjálpað henni að byggja upp
heilbrigða sjálfsmynd, segir hún. „Auðvitað
þurfa ekkert allir að ganga um á bikini og
birta þannig myndir af sér til að bæta egóið
sitt. En það hjálpaði mér og ég vil standa
með sjálfri mér.“
Finnurðu ekki fyrir neinum fordómum?
„Jú, jú, það eru pottþétt fordómar gagn-
vart litlu bleiku stelpunum sem eru í fitness
og klippa svo bíómyndir og það verður bara
að hafa það. Daginn sem ég hætti að vera
sama um hvað öðrum finnst um mig þá fór
mér að líða vel. Ég vildi að ég hefði fattað
það miklu fyrr,“ segir Eva Lind.
Sjúkt í athyglina
Hildur Sverrisdóttir lögmaður segist enginn sérfræðing-
ur í hvernig mynd konur vilji birta af sér á Facebook en
henni finnst að konur eigi að fá að gera það
sem þeim sýnist svo lengi sem það skaði
ekki aðra. Sjálf er hún nýbúin að gefa út bók
sem heitir Fantasíur og inniheldur kynferð-
islegar fantasíur íslenskra kvenna.
„Auðvitað er mikil útlitsdýrkun í gangi
í þessum heimi,“ segir hún og bendir á að
fyrst eftir að Facebook kom hafi hún heyrt
af umræðu um að fólk væri með of fallegar
myndir af sér. „Sem ég skildi ekki alveg því
á opinberum vettvangi reynum við nú öll að
líta vel út. Við gerum okkur fín áður en við
förum út til að skemmta okkur.“
Og varðandi það að hægt sé að skrifa um
kynlíf og vera í forsvari fyrir Píkusögur,
eins og hún gerði fyrir nokkrum árum, jú eða klippa
bíómyndir og vera í módelfitness, og fá samt bara pláss
við borðið og geta gert þá kröfu um að fólk beri virð-
ingu fyrir sér þá segir hún að konur eigi
bara að gera sig breiðar á öllum þessum
stöðum. „Það sem var til skammar fyrir
einhverjum árum er það ekki lengur. Tím-
arnir breytast.“
Áhugaljósmyndararnir Ólafur Harðar-
son og Arnold Björnsson eru samt lítið að
spá í stöðu kvenna almennt heldur segir
Arnold að þetta fjalli um að mynda árang-
urinn í þessu módelfitness og Ólafur Harð-
arson skilur vel að „ef einhver póstar flottri
mynd af sér þá fær hún mikla athygli og
fólk er sjúkt í það.“ Hann segir ennfremur
að konur og stúlkur á öllum aldri og úr öll-
um stéttum hafi samband við sig til eiga flottar myndir
til að setja á Facebook. Samkvæmt honum fjallar þetta
ekki um nekt heldur það hvort ljósmyndin sé góð eða
ekki.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Hildur Sverrisdóttir.
Arnold Björnsson.
Eva Lind Höskulds-
dóttir og Eyrún Helga
Guðmundsdóttir .
Hlín Einarsdóttir.
10 úttekt Helgin 14.-16. september 2012