Fréttatíminn - 14.09.2012, Side 14
Baðst afsökunar á
eyðilögðum tónleikum
Hljómsveitin Sigur Rós hefur beðist afsök-
unar á tónleikum sínum á Bestival-hátíðinni
á sunnudagskvöld. Tónleikarnir fóru fram
í björtu, vegna krafna Stevie Wonder. Það
eyðilagði sýninguna og upplifun aðdáenda
hljómsveitarinnar sem mættir voru til að berja
hana augum.
Fjölgum karlkennurum
Karlmennskan er alls konar
H afið þið velt því fyrir ykkur hvað sonur ykkar hittir marga karlmenn á
dag? Og hafið þið borið það saman
við hversu margar konur verða á
vegi dóttur ykkar?
Leikskólakennarar eru almennt
konur og sama á við grunnskóla-
kennara. Leiðbeinendur
á frístundaheimilum eru
einnig flestir kvenkyns. Jú,
íþróttaþjálfarar kannski, þó
svo að reynsla mín sýni að
meirihluti þeirra er ungar
stúlkur.
Drengirnir hitta flestir
– þó ekki allir – föður sinn
daglega. En hvað svo?
Hverjar eru fyrirmyndir
drengja? Karlmenn í fjöl-
miðlum? Íþróttamennirnir
og poppararnir? Hvað með
þessar „venjulegu“ fyrir-
myndir sem skipta svo miklu máli í
að móta sjálfsmynd barna?
Hvernig eiga stúlkur að geta
mótað sér eðlilegar og heilbrigðar
hugmyndir um karlmanninn þegar
eini karlmaðurinn í lífi þeirra er
pabbi þeirra?
Skiptir ekki meira máli að fjölga
körlum í kennarastétt en að fjölga
konum í stjórnum fyrirtækja?
Hvort er mikilvægara fyrir börnin
okkar – og fyrir samfélagið til
framtíðar litið?
Abigail Norfleet James, doktor
í kennslusálfræði, er stödd hér á
landi og hélt fyrirlestur í vikunni
undir yfirskriftinni „Kynjamunur
og heilinn: leiðbeiningar fyrir for-
eldra“. Hún fór yfir rannsóknir
sínar á kynjunum og hvernig heili
þeirra þroskast á ólíkan hátt og
hvernig nýta megi þessa þekk-
ingu til að beita ólíkum kennsluað-
ferðum á drengi og stúlkur í því
skyni að nýta styrkleika þeirra til
hins ýtrasta og vinna með veikleika
þeirra.
„Mjög ung börn sjá fullorðið fólk
ekki sem fyrirmyndir. Það gerist
ekki fyrr en við 12-14 ára aldurinn,“
segir Abigail. „Það er hins vegar
samt sem áður mjög mikilvægt
fyrir jafnt stúlkur og drengi að
hafa karlkennara þó svo að það sé
af ólíkum ástæðum. Drengir þurfa
karlkennara því það er mikilvægt
fyrir þá að sjá karlmenn í skólaum-
hverfinu. Það gefur þeim leyfi til að
standa sig vel í námi. Þeir þurfa að
kynnast því að karlmennskan getur
verið alls konar, ekki bara eitt, og
það gera þeir með því að umgang-
ast sem flesta karlmenn. Þeir þurfa
hins vegar líka kvenkennara meðal
annars vegna þess að þeir munu
þurfa að vinna undir stjórn konu
einn daginn,“ segir hún.
„Stúlkur eru almennt með mjög
rómantíseraða hugmynd um karl-
mennskuna vegna þess hve þær
hitta fáa karla. Þær dreymir um
hinn fullkomna karl sem er eins
og riddarinn á hvíta hestinum sem
kemur og segir þeim hvað hann
elski þær mikið. En raunveruleik-
inn er ekki þannig. Þær þurfa að
kynnast því að allir karlmenn geta
verið úrillir og pirraðir, ekki bara
pabbi. Þær þurfa að kynnast raun-
verulegum karlmönnum,“ segir
Abigail.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarHóll
Teboð ungra sjálfstæðismanna
Félagar í Sambandi ungra sjálfstæðis-
manna boðuðu sókn gegn sósíalisma á
veggspjaldi sem vakti mikla athygli. Að
því er virðist þó aðallega hjá fólki sem
telur sig eiga litla samleið með Sjálf-
stæðisflokknum.
Það er svo gaman að fara inn á FB í dag. Í
hvert sinn sem ég rek augun í „sókn gegn
sósíalisma“ plakat Susaranna fer ég að
hlæja... Takk kæru börn... (hvað má maður
vera gamall Susari?)
Helga Vala Helgadóttir
Slam dunk, SUS.
Sunna Valgerðardóttir
Æska landsins leggur ekki árar í bát. Það
er gott að vita af þessu fallega, hughrausta
æskufólki sem ber merki Íslands í hópi
þjóðanna. Gott mál.
Baldur Hermannsson
HAHAHAHHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHA-
HAHHAHA
Margrét Gauja Magnúsdóttir
HeiTuSTu kolin á
kindur í háska
Óvænt fannfergi og ofsaveður skall á
fyrir norðan í byrjun vikunnar og fjöldi
kinda lenti í sjálfheldu en gengið var í
björgunaraðgerðir af alíslenskri einurð
og festu.
Aumingja aumingja blessuðu elsku litlu
kindurnar,....
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
Já, tek undir með þér, aumingja kindurnar,
en er fegin að þær eru í ull. Vona að hún
haldi sem mest á þeim hita.
Guðrún Kristjánsdóttir
Rosalega er íslenska rollan harðgerð að þola
þetta.
Heimir Már Pétursson
Var að heyra að bændur fyrir norðan vilji fá
ríkisstjórnina norður til þess að aðstoða við
leitina, þar sem hún væri einstaklega lagin
við að finna annarra manna fé ;) ~
Anna Birgis
Umvafinn
kvenfólki
Þegar dregið var um sæti í sal
Alþingis leit Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hornsæti sitt
hornauga en úr skák bætti að
hann er þar umvafinn
kvenfólki, Unni
Brá Konráðs-
dóttur, Guðfríði
Lilju Grétars-
dóttur og Ólínu
Þorvarðar-
dóttur.
Góð vikA
fyrir
Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann
Slæm vikA
fyrir Sigur Rós
ÞEKKTU RÉTT ÞINN Á VINNUMARKAÐI.
KÍKTU Á ASIUNG.IS
ÞAÐ ER EKKI DÓNASKAPUR AÐ ÞEKKJA
RÉTT SINN OG STANDA FAST Á HONUM
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ SEMJA UM ÞETTA FYRIR ÞIG!
Hvað með þessar „venjulegu“ fyrirmyndir sem skipta svo miklu
máli í að móta sjálfsmynd barna?
14 fréttir Helgin 14.-16. september 2012 vikunnar