Fréttatíminn - 14.09.2012, Page 24
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Þú gerir samkomulag í Netbankanum
eða næsta útibúi um mánaðarlega
lækkun yfirdráttarheimildar niður í
0 kr. á allt að þremur árum. Á móti
lækka vextirnir sem auðvelda þér að
koma reikningnum úr neikvæðri í
jákvæða stöðu. Þá geturðu valið þér
eina af sparnaðar leiðum Íslands banka
og byrjað að fá greidda vexti í stað þess
að greiða þá.
Dæmi: Ef þú greiðir 360.000 kr. yfir-
drátt niður um 15 þúsund kr. á mánuði
í 24 mánuði þá sparar þú 53.611 kr. í
vaxtakostnað.*
Svona virkar Greiddu niður yfirdráttinn
0 kr.
-100.000 kr.
-200.000 kr.
-300.000 kr.
-400.000 kr.
Sparnaður: Greiddu niður yfirdráttinn
Þegar þú semur við Íslandsbanka um að greiða niður yfirdráttinn lækkum við vext-
ina. Þetta er einhver besti sparnaður sem völ er á. Þú færð hjálp við að skipuleggja
niðurgreiðsluna og lækka vaxtakostnaðinn svo um munar með þrepalækkun
Íslandsbanka.
Snúðu
dæminu
við
Þú færð nánari upplýsingar á islandsbanki.is og hjá ráðgjafa í þínu útibúi.
*Miðað við að yfirdráttarvextir lækki úr 12,55% (Gullvild) í 9,80% (þrepalækkun) skv. vaxtatöflu 1. september.
Lægri vaxtaprósenta skilar 10.313 kr. lækkun og lækkandi yfirdrætti 43.298 kr. – samtals 53.611 kr.
Á lagið er það mikið að foreldrar gefast upp og leiðir skilja,“ seg-ir Óli Ásgeir Stueland Kerans-
son. Frá því í maí hefur hann einn séð
um þriggja og hálfs árs son sinn, Keran,
sem er eitt veikasta barn landsins. Hann
og æskuástin hans, Sigrún Óskarsdóttir,
skildu. Hún var aðeins átján og hann 23ja
ára þegar þau eignuðust fyrri drenginn
sinn sem snemma greindist með hrörn-
unarsjúkdóminn SMA1.
„Það mætti vera meiri aðstoð við for-
eldra. Álagið er þannig að það er nauð-
synlegt að fá sálfræðihjálp til að komast
í gegnum þetta.“
Heimili þeirra feðga er látlaust og fal-
legt. Á hverjum degi koma hjúkrunar-
fræðingar og sinna litla drengnum. Inni
í herbergi Kerans eru tvær öndunarvélar,
sog- og súrefnistæki og hóstavél. Hann
er með sontu og stöðugt með öndunar-
vél tengda í gegnum hálsinn. Hann getur
beint augunum að föður sínum en liggur
annars hreyfingarlaus í sjúkrarúminu í
herberginu sínu. Hreyfingarlaus að öllu
leyti fyrir utan að hann getur hreyft ann-
an litla putta. Faðir hans spyr sig að því
hvort hreyfingin sé ósjálfráð eða ekki.
Kvefið lífshættulegt Keran
Keran er kvefaður og Sigrún Sveinbjörns-
dóttir hjúkrunarfræðingur er á heimilinu
og sogar upp úr honum slímið. Hún hefur
fylgt drengnum frá fimm mánaða aldri
hans. Hún lýsir því hvernig Keran er sett-
ur á sýklalyf þegar útlit er fyrir að hann
sé að fá kveisu. Þau fái hann til að fyrir-
byggja veikindi. „Ef hann fær lungna-
bólgu getur hann lent inn á gjörgæslu.
Það er svo miklu stærra vandamál. Það
er lífshættulegt,“ segir hún.
Keran er á tilraunalyfi sem á að draga
úr hrörnun. „En vart er hægt að hrörna
meira en komið er,“ segir nú 26 ára faðir
hans. „Það er allt farið. En hjartað slær og
augun eru í lagi.“ Kerani var ekki hugað
langt líf. Einu ári. „En svo eru tækin svo
góð. Þau halda í honum lífinu í dag,“ segir
Óli. „Hann myndi ekki lifa án tækja af
ýmsum toga.“
Í öndunarvél allan sólarhringinn
Sigrúnu finnst Óli sinna Kerani vel.
Ungi maðurinn, sem alinn er upp í Ör-
lygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð
og bjó með foreldrum sínum í Breiðavík
frá fermingaraldri, sé góður pabbi. „Það
eru ekki margir svona ungir foreldrar á
landinu með svona fötluð börn. Það eru
ekki mörg börn eins fötluð eins og Keran
– í öndunarvél annan sólarhringinn. Ég
held þau séu þrjú. Þar af einn drengur
sem er tveimur árum eldri en Keran
með sama sjúkdóm. En Keran hefur enn
minni hreyfigetu en hann og þarf mikla
umönnun.“
Hvenær var Keran í besta forminu
sínu? „Þegar hann var sem minnstur. Þá
var getan mest,“ svarar Óli þar sem við
sitjum við eldhúsborðið á heimili feðg-
anna í Kópavogi. „Þegar ég hugsa til baka
sé ég að það leið voðalega stuttur tími.
Fyrst gat hann sogið brjóst. Svo fór það.
Þá var hann settur á pela. Hann entist í
sólarhring. Þá fékk hann sontu í nefið.
Hann gat lengi vel hreyft sig í vatni og
brosað án þess að vera í vél.“ Sá tími sé
liðinn og litli Keran, sem skírður er eftir
afa sínum, orðinn þriggja og hálfs árs.
Faðir eins veikasta barns landsins
Óli Ásgeir og
Keran eru einir.
Tæki sem mælir
súrefnismettun
og hjartslátt
sonarins stýrir
lífi þeirra. Á því
sér ungur faðir
hans, 26 ára,
hvernig honum
líður hverju
sinni, en einnig
þurfi hann að
stökkva til og
blása lífi í litla
drenginn sinn
og bjarga lífi
hans. Kerani var
aðeins hugað líf
í eitt ár en hann
er nú þriggja
og hálfs. Hann
er stöðugt í
öndunarvél og
hjúkrunarfólk er
á heimili þeirra
feðga daglega.
Óli óttast þá
stund þegar
Keran kveður.
„Já, þú getur
rétt ímyndað
þér það. Þetta
er barnið mitt.“
Feðgarnir Óli Ásgeir og Keran á heimili sínu á miðvikudag. Keran hefur verið mjög kvefaður, sem getur verið lífshættulegt litla drengnum með
hrörnunarsjúkdóminn SMA. Óli er einstæður faðir með eitt veikasta barn landsins. Mynd/Hari
24 á allra vörum Helgin 14.-16. september 2012