Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 37

Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 37
íslenskt grænmeti Sölufélag garðyrkjumanna hauSt 2012 Það kom aldrei annað til greina en að búa í sveit“ segir sigrún H. Pálsdóttir garðyrkjubóndi á Flúðum. Hún er fædd og uppalin á Selfossi og segist ekki hafa haft áhuga á því að flytjast til Reykjavíkur. „Hugurinn stefndi alltaf í sveitastörfin“, segir Sigrún. Hún er eigandi garðyrkjustöðvar á Flúðum, sem ber nafn hennar, Garðyrkjustöð Sigrúnar. „Við stundum fjölskyldubúskap og vinnum saman að ræktuninni“. Sambýlismaður Sigrúnar, Þröstur Jónsson húsasmíðameistari, vinnur við stöðina og eins hafa börnin hennar þrjú gert það. Nú eru dæturnar tvær farnar að heiman og eru afla sér menntunar, en sonurinn Páll Orri, sem er í framhaldsskóla býr enn heima og er liðtækur við ræktunina. Sigrún er stærsti hvítkálsræktandinn hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, en frá henni fara um 120 tonn af hvítkáli á markaðinn á ári. Hún ræktar einnig kínakál, rauðkál, blómkál og spergilkál. „Í ár hef ég einnig sent grænkál á markaðinn, sem hefur verið vel tekið, enda sannkallað ofurfæði. Það var ræktað við hvern sveitabæ í áratugi, en svo dró úr ræktuninni, en landsmenn kunna nú að meta það á nýjan leik“. „Ég kynntist garðyrkjunni fyrst hjá tengdaforeldrum mínum á Reykjabakka í Hrunamannahreppi. Þar kviknaði áhuginn á garðyrkju og þau miðluðu til mín ómetanlegri þekkingu varðandi ræktunina. Ég vann einnig á Garðyrkjustöðinni Laxárhlíð í fjölda ára“, segir Sigrún. Sigrún byrjaði að rækta rófur á smá skika til að drýgja tekjurnar samhliða garðyrkjustörfum í Laxárhlíð. Smám saman urðu umsvifin meiri og hún fékk land við Reykjabakka, þar sem hún rekur nú garðyrkjustöðina með miklum myndarbrag. Sigrún hefur fylgst mjög vel með allri þróun og framförum í ræktun og hefur sótt sér viðbótarþekkingu meðal annars til erlendra ræktunarráðunauta. „Það koma hingað íslenskir og erlendir ráðunautar á hverju ári og líta yfir ræktunina. Við þiggjum öll góð ráð og nýtum okkur þau til að bæta ræktunina“, segir Sigrún. Garðyrkjubændur eru miklir veðurfræðingar, enda er afkoma þeirra sem eru með útiræktun háð veðri. „Það hafa orðið miklar breytingar á veðurfari á síðustu tíu til fimmtán árum. Undanfarin ár hefur verið þurrt og kalt á vorin og lítil spretta, en svo koma hlýindin og þá þarf að vökva vel til þess að eitthvað komi upp úr moldinni“, segir Sigrún. Garðyrkjustöðin fjárfesti nýlega í búnaði til að vökva garðana en einnig eru notaðir akrýldúkar til að breiða yfir þá meðal annars til að auka vöxt plantanna og verja þær fyrir klulda. „Það er alltaf mikil spenna í kringum þessa ræktun. Við eru algjörlega háð veðri og það getur nú brugðið til beggja vona þegar það er annars vegar“. Forvitnir útlendingar koma oft við þegar verið er að vinna út í görðunum og vilja vita hvernig hlutunum er hagað hérlendis. Sigrún segir að það sem veki mikla athygli útlendinga sé jarðhitinn og hreina vatnið sem íslenskir garðyrkjubændur hafa. „Við garðyrkjubændur ákváðum fyrir nokkrum árum að sérmerkja alla okkar uppskeru, þannig að fólk geti rakið grænmetið til þeirra sem rækta það. Þetta er gríðarlega mikið aðhald fyrir okkur og verður til þess að við erum alltaf vakandi fyrir því að bæta ræktunina og gera betur þannig að landsmenn séu ánægðir með grænmetið sem við sendum á markað. Þetta er einnig nauðsynlegt til að neytendur viti hvað þeir eru að kaupa, hvort um íslenska framleiðslu er að ræða eða erlenda“. kál í tonnatali - sérmerkt sigrúnu - hvítkál, blómkál, spergilkál, rauðkál, kínakál og grænkál gægjist upp úr moldinni á hverju sumri í Garðyrkjustöð Sigrúnar Gulrót Full af A-vítamíni Blómkál Boðar gæfu í draumi Hvítkál Í fimm þúsund ár Grænkál Íslensk ofurfæða Listakokkar Matgæðingarnir og listakokkarnir nanna rögnvaldsdóttir og Helga mogensen eru höfundar uppskrifa í blaðinu, sem henta við flest tækifæri. h a ri El sa B jö rg M a g n ú sd ó tt ir geymið blaðið sigrún h. Pálsdóttir, Þröstur jónsson og Páll Orri Þrastarson.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.