Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 54
46 bílar Helgin 14.-16. september 2012
ReynsluakstuR MeRcedes Benz B-class BílaR Peugeot 208
Skráning og upplýsingar á imark.is
CUSTOMER
EXPERIENCE AND
CUSTOMER HAPPINESS
Hádegisfyrirlestur með
vörumerkjamsérfræðingnum
Bernd Schmitt
Í fyrirlestrinum leggur Bernd Schmitt fram
þrjár mismunandi aðferðir til að breyta
viðskiptavinum í trygga aðdáendur sem
öll fyrirtæki geta tileinkað sér.
„Einn besti og mest skapandi
markaðshugsuður sem
ég þekki, sérfræðingur
í vörumerkjum,
viðskiptatryggð og
skapandi áætlunum“
- Kevin Keller
19/09/12
Audi, Cadbury,
Hilton Hotels, Motorola,
IBM, Procter & Gamble,
Vodafone Group,
Vogue Magazine.
Kraftmikil Sport-útgáfa Explorer
Ford í Bandaríkj-
unum hefur kynnt
til sögunnar Sport
útgáfuna af nýja Ford
Explorer jeppanum, að
því er fram kemur á síðu
Brimborgar. Sport er
fínasta útgáfa jeppans,
með 3,5 lítra V6
EcoBoost vélinni. „Ford
Explorer er venjulega
útbúinn vél sem telst
þó nokkuð öflug enda
skilar staðalvélin 290
hestöflum. En það getur
munað mikið um 75 hestöfl til viðbótar og sést það best á því að með V6 365 hestafla vél
Ford Explorer Sport er bíllinn öflugri en V8 gerðirnar af Dodge Durango og Jeep Grand
Cherokee. Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað sú að eldsneytisnotkunin er mun betri
með öflugri V6 vél en með aflminni V8 vélunum,“ segir enn fremur.
Eins og Fréttatíminn greindi frá í júlí var nýr Explorer kynntur hér í sumar, sjö manna
jeppi með V6 bensínvél sem skilar 290 hestöflum. Eyðsla hans er 10, 3 lítrar á langkeyrslu.
Bíllinn er búinn 6 gíra SelectShift sjálfskiptingu.
É g er þessi týpa sem tek upplýstar ákvarðanir þegar ég kaupi hluti. Þegar kemur að því að endurnýja
fjölskyldubílinn er því lagst í rannsókn-
arvinnu. Ég verð reyndar að viðurkenna
að ég hef ekki oft keypt bíl – þrisvar.
Fyrsta bílinn keypti ég 26 ára. Þá varð ég – því ég átti árs-
gamalt barn og þurfti að fara langa leið í vinnu. Skódi varð
fyrir valinu – hann var ágætur – og ég hafði ráð á honum.
„Bíll er bara bíll og til þess ætlaður að koma manni milli
staða,“ var mitt bílamottó á þessum tíma.
En síðan eru liðin ansi mörg ár. Börnunum hefur fjölg-
að, ábyrgðin aukist í samræmi við það og bensínverðið
hækkað. Og hækkað.
Í dag er það öryggið sem skiptir mestu máli – og að
bíllinn sé sparneytinn. Hvorttveggja á við um hinn nýja
Mercedes Benz B-Class sem ég prófaði í vikunni. Hann
eyðir – í alvörunni – helmingi minna bens-
íni en bíllinn minn, Volkswagen Sharan
árgerð 2005, um 5 lítrum á hundraðið í
innanbæjarakstri. Þetta skiptir máli.
Ég myndi spara 30 þúsund krónur á
mánuði í bensínkostnað ef bíllinn minn
eyddi svona litlu. Það eru ekkert stuttar
vegalengdir sem foreldrar með ung börn
í Reykjavík þurfa að keyra í viku hverri
ætli þau að leyfa börnum sínum að stunda
íþróttir og tómstundir. Það er bara mýta
að hægt sé að búa í miðborginni bíllaus.
Íbúðin er við Ráðhúsið, leikskólinn í Þing-
holtunum, skólinn í Öskjuhlíð, fimleik-
arnir á Seltjarnarnesi, fótboltinn í Hlíðar-
enda, vinnan í Sætúninu og Krónan úti á
Granda. Ekki séns að fara þetta á hjóli. Til
þess þarf miklu meiri skipulagshæfileika
og aga en ég hef yfir að búa.
En aftur að bílnum. Hann er sem sagt
sparneytinn. Flott. Hann drepur til að mynda á sér í
kyrrstöðu þegar hann er orðinn heitur og startar sér
aftur þegar fóturinn er tekinn af bremsunni. „Vá, þetta
er svona Herbie-bíll,“ sagði maðurinn minn þegar ég
lýsti því fyrir honum að bíllinn hafi farið sjálfur í gang
eftir nokkra stund í kyrrstöðu fyrir utan Valsheimilið.
Sennilega vegna þess að vélin var að kólna of mikið. En
það er dáldið málið. Þetta er pínulítið töfrabíll. Hann gerir
alls konar hluti fyrir mann.
Hann er „grænn“ og því er hægt að
leggja honum ókeypis í miðborginni.
Frábært. En hann er líka eins öruggur
og bílar geta orðið. Fékk fimm stjörnur
af fimm mögulegum í virtu árekstr-
aprófi. Það skiptir máli. Hann er með
loftpúða út um allt og alls konar búnað sem gerir hann
öruggari í keyrslu. Svo er hann svo klár að hann „lærir“
hvernig maður keyrir og bregst við ef maður fer að keyra
eitthvað öðruvísi en venjulega, til dæmis ef maður gæti
hafa sofnað undir stýri. Þá vekur hann mann með bípi.
Sko, þetta er töfrabíll.
Og svo hjálpar hann manni að koma í veg fyrir að mað-
ur keyri of hratt. Hægt er að stilla bílinn þannig að hann
fari ekki yfir tiltekinn hraða, til dæmis 90 á vegum úti.
Þá þarf maður ekki alltaf að vera með augun á hraðamæl-
inum. Snilld. Og svo getur hann auðvitað haldið fyrir-
framgefnum hraða sem er oft þægilegt.
Handbremsan krefst ekki lengur hand-
afls. Nú er bara ýtt á lítinn takka vinstra
megin við stýrið og „voila“: bremsan á og
fer sjálfkrafa af þegar keyrt er af stað.
Bíllinn reyndist vel í þessu skutli. Hann
er ágætlega kraftmikill og tiltölulega hljóð-
látur af dísilbíl að vera. Það er þægilegt
að setjast inn í hann og fara út úr honum
og maður situr hátt miðað við hversu lítill
hann er. Hann er góður á lengdina og fóta-
rými í aftursæti er mjög gott. Hann er þó
helst til þröngur og fer ekki vel um ungling
á milli tveggja barnabílstóla í aftursætinu.
Gluggarnir aftur í eru jafnframt aðeins of
lágir þannig að útsýni barnanna var ekki
eins og best væri á kosið.
En svo eru það þessir litlu hlutir sem
skipta svo miklu máli. Stýrið er einstak-
lega fallegt og þægilegt með öllum tökkum
innbyggðum. Bakkmyndavél og fjarlægðarskynjarar.
Rúmgott og aðgengilegt skott þar sem vel er hægt að
koma fyrir barnavagni og minnst fimm innkaupapokum
til viðbótar. Hægt að kveikja ljósin afturí með rofa í seil-
ingarfjarlægð fyrir bílstjórann. Spegill er innan á sól-
skyggninu bílstjóramegin – með ljósi – eins og allar kon-
ur vita mætavel til hvers þarf að nota. Og mælaborðið er
eins og á Benz, þið vitið. Ég meina, Benz er náttúrulega
bíll með sjálfsvirðingu.
Sparneytinn og öruggur
töfrabíll með sjálfsvirðingu
Mercedes Benz B-Class er stór smábíll, öruggur og eyðslugrannur með aukahluti sem skipta máli.
Bernhard kynnti um síðustu helgi nýjan
Peugeot 208, flottan smábíl sem er
arftaki Peugeot 207. Bíllinn var fyrst
sýndur á bílasýningunni í Genf í mars
síðastliðnum en hann er settur saman í
verksmiðjum Peugeot í Trnava í Slóvakíu.
Bíllinn býðst í þriggja og fimm dyra út-
gáfum og nokkrum vélastærðum, bensín
og dísil. Eldsneytiseyðsla í blönduðum
akstri er frá 3,4 lítrum til 4,5 lítra á
hundraðið. Lengdin er 3,962 metrar og
breiddin 1,739 metrar, fyrir utan spegla.
Bíllinn er talsvert léttari en forverinn
en innanrými samt meira. Sama gildir
um farangursrýmið. Fótapláss í aftur-
sæti hins nýja 208 er 5 sentimetrum
meira en var í 207. Mikil metnaður var
lagður í hönnun Peugeot 208 en segja
má að bíllinn hafi verið endurhannaður
á öllum sviðum. Línur bílsins eru í senn
stílhreinar og sportlegar. Aðalljósin eru
búin LED og leiðarlýsingu. Yfirhönnuður
er Pierre Authier.
Að innan er upplýsingakjár í augnhæð
og stór snertiskjár. Stýrishjólið er nett og
meðfærilegt.
Peugeot 208 kostar frá 2.290.000
krónum.
Stílhreinn og sportlegur Peugeot 208
Fínasta útgáfa jeppans, Ford Explorer Sport.
Plúsar
+ Einstaklega öruggur
+ Umhverfisvænn og
sparneytinn
+ Bakkmyndavél
+ Handbremsan nánast
sjálfvirk
+ Rúmgott skott
Mínusar
÷ Helst til þröngt um
þrjá í aftursæti
÷ Aðeins of lágir
gluggar í aftursæti
Mercedes Benz B-Class er fallegur, öruggur og sparneytinn bíll sem kostar rúmar 4,5 milljónir. Ljósmynd/Hari
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is