Fréttatíminn - 14.09.2012, Side 66
60 bíó Helgin 14.-16. september 2012
Hann er
kannski
búinn að
klippa
mig allan
út.
Frumsýndar Guðjón Pedersen alltaF Gaman að vinna með Baltasar
v issirðu ekki af því að ég er kvik-myndastjarna?“ spyr Guðjón Peder-sen glaðhlakkalegur þegar hann er
spurður hvað varð til þess að hann steig fram
sem leikari í fyrsta sinn eftir langt hlé. „Ég
hef ekki leikið í mörg, mörg, mörg ár. Balti
fékk mig bara í þetta og ég veit ekkert. Hann
er kannski búinn að klippa mig allan út,“
segir Guðjón sem útskrifaðist frá Leiklistar-
skóla Íslands árið 1981 en er þekktari sem
leikstjóri og leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu
frá árinu 2000 til 2008.
Guðjón og Baltasar hafa þekkst lengi og
Guðjón segir alltaf gaman að vinna með leik-
stjóranum. „Balti er alltaf Balti og er með
ósköp gott hjarta,“ segir Guðjón. „Þetta var
mjög skemmtilegt verkefni. Þetta var svolítið
skrítið fyrir mig fyrst vegna þess að ég hef
ekkert leikið síðan einhvern tíma á síðustu
öld. En ég fór smám saman að fíla þetta og
þegar kom að lokatökunni þá hugsaði ég með
mér hvað þetta væri nú helvíti gaman.“
Ólafur Darri leikur sjómanninn Gulla,
sem kemst einn lífs af þegar bátur hans
ferst við Vestmannaeyjar. Með önnur stærri
hlutverk fara Jóhann G. Jóhannsson, Stefán
Hallur Stefánsson, Björn Thors, Þröstur Leó
Gunnarsson, Walter Geir Grímsson, Þor-
björg Halla Þorgilsdóttir, Theodór Júlíusson,
María Sigurðardóttir og svo Guðjón sem
slapp við að leika úti á hafi þar sem Baltasar,
vinur hans, var svo almennilegur að ráða
hann í hlutverk landkrabba, lækninn Erling.
„Balti vildi að ég léki einhvern lækni sem
rannsakar Darra eftir að hann kemst lifandi
úr sjávarháskanum.“
Handrit Djúpsins er eftir þá Baltasar og
Jón Atla Jónasson en handritið er lausbyggt
á samnefndum einleik Jóns Atla. Djúpið var
frumsýnt á Kvikmyndahátíðinni í Toronto
fyrir skömmu og hefur fengið prýðilega
dóma. Hún er sögð kraftmikil mynd sem
sýnir náttúruöflin í sínum svakalegasta ham.
The Hollywood Reporter hrósar Baltasar sér-
staklega fyrir raunverulegar senur frá sjávar-
háskanum sem jafnist á við það besta hjá
leikstjórunum James Cameron og Wolfgang
Petersen sem báðir hafa sökkt skipum með
tilþrifum á hvíta tjaldinu. Cameron í Titanic
og Petersen í The Perfect Storm.
Þessi tíðindi að utan hafa ekki farið fram
hjá Guðjóni. „Maður les bara um Balta í
blöðunum núna nema þegar maður hringir í
hann svona stöku sinnum. Mér sýnist honum
hafa tekist að gera þetta að fallegri mynd og
held að það sé alveg rétt hjá honum að þeir at-
burðir sem myndin byggir á sitji enn í hjarta
stórs hluta þjóðarinnar.“
Biðin eftir frumsýningu á Djúpinu eftri Baltasar Kormák tekur loks enda þegar myndin hefur
göngu sína í kvikmyndahúsum á Íslandi um næstu helgi. Myndin fjallar, eins og flestir vita, um
einstakt afrek ungs Eyjamanns sem synti í land í ísköldum sjá eftir að bátur hans fórst árið 1984.
Ólafur Darri Ólafsson leikur sjómanninn unga. En í myndinni skýtur einnig Guðjón Pedersen upp
kollinum sem leikari í fyrsta sinn í háa herrans tíð.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Sýningar eru hafnar á írönsku kvikmynd-
inni A Seperation í Bíó Paradís. Myndin er
margverðlaunuð og hlaut meðal annars
Óskarsverðlaunin sem besta erlenda
myndin fyrr á þessu ári. Þá er hún fyrsta
myndin frá Íran sem hlýtur Golden Globe-
verðlaunin í flokki erlendra mynda og
einnig sú fyrsta sem hlýtur tilnefningu til
BAFTA-verðlaunanna. A Seperation segir
frá hjónum í Íran sem standa framm fyrir
erfiðum ákvörðunum. Eiginkonan Simin vill
flytja frá landinu ásamt eiginmanni sínum,
Nader, og dóttur þeirra. Nader vill aftur á
móti ekki skilja alzheimers-veikan föður
sinn eftir í Íran þannig að Simin bregður á
það ráð að fara fram á skilnað. Simin flytur
heim til foreldra sinna en dóttir þeirra
hjóna ákveður að vera eftir hjá föður
sínum og við taka atburðir sem eiga eftir
að draga dilk á eftir sér.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.6, Rotten Tomato-
es: 99%, Metacritic: 95%
Hjónaband brestur í Íran
Simin og Nader vilja fara hvort sína leið.
Rannsakar Ólaf
Darra í Djúpinu
Guðjón Pedersen er ábúðarmikill í sínu fyrsta hlutverki í mörg ár en hann leikur lækninn Erling í Djúpinu.
riFF Heimildarmynd um vændiskonur í amsterdam
Tvíburasystur stunduðu vændi áratugum saman
Hollenska heimildarmyndin
Ouwehoeren, eða Meet the
Fokkens, frá síðasta ári hefur
vakið umtalsverða athygli enda
viðfangsefni hennar óneitan-
lega áhugavert. Í myndinni
rekja leikstjórarnir Gabriëlle
Provaas og Rob Schröder sögu
systranna Louise og Martine
sem stunduðu vændi í rúm
fimmtíu ár.
Systurnar eru eineggja tví-
burar og þekkt andlit í Rauða
hverfinu í Amsterdam. Þær
byrjuðu í vændi þegar þær voru
í kringum tvítugt, voru fljótar
að losa sig undan oki dólga
sinna, ráku eigið hóruhús og
stofnuðu fyrsta óformlega
verkalýðsfélag vændiskvenna.
Í byrjun myndarinnar sýnir
Martine glaðhlakkaleg klefann
sinn í Rauða hverfinu en Louise
hafði gefið sinn klefa frá sér
skömmu áður en tökur á mynd-
inni hófust þar sem gigtverkir
voru farnir að gera henni lífið
leitt.
„Í gamla daga bankaði
löggan á gluggann ef einhver
stúlkan sýndi of mikið af ökkl-
anum á sér, núna selja stelp-
urnar kókaín út úr klefunum
sínum,“ segja þær systur sem
bera sig vel þótt þær dragi enga
dul á að þær hefðu gjarnan
viljað finna sér annað ævistarf
en vændið.
Meet the Fokkens verður
sýnd á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Reykjavík
sem hefst síðar í þessum mán-
uði og til stóð að bjóða gömlu
konunum til landsins, af því
tilefni, og fá þær til að sitja fyrir
svörum áhorfenda. Því miður
reyndust þó launakröfur þeirra
kvikmyndahátíðinni ofviða.
Louise og Martine Fokkens seldu aðgang að líkama sínum í Rauða
hverfinu áratugum saman og segja sögu sína í Meet the Fokkens.
Núna selja
stelpurnar
kókaín út
úr klefun-
um sínum.
Resident Evil:
Retribution
Milla Jovovich gefur ekkert eftir í
baráttu sinni við ógeðslega mannætu
uppvakninga og mætir nú til leiks í
fimmtu Resident Evil-myndinni. Paul
W.S. Anderson (Event Horizon, Alien
vs. Predator) stjórnar hamagang-
inum að þessu sinni en hann hefur
verið með puttana í flestum Resident
Evil-myndunum og býður nú upp á
hasarinn í þrívídd. T-vírusinn heldur
áfram að breiðast yfir heimsbyggðina
og breyta fólki í uppvakninga og sem
fyrr er Alice, sem Milla leikur, eina von
mannkyns og má hafa sig alla við í
baráttunni.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.1, Rotten Tom-
atoes: - Metacritic: -
The Campaign
Gamanleikararnir Will Ferrell og
Zach Galifianakis takst á í The
Campaign þar sem Ferrell leikur
þingmann sem hefur fullan hug
á að halda sæti sínu. Voldugir
forstjórar vilja hins vegar losna
við hann og tefla einfeldingi,
sem Galifianakis leikur, gegn
honum. Ferrell verst með kjafti og klóm og
grefur undan mannorði mótframbjóðandans
sem ákveður að svara í sömu mynt. Þar með
hefst kostuleg barátta þessara ólíku manna
og kosningastjóra þeirra og eina spurningin
er hve langt þeir eru tilbúnir að ganga til að
eyðileggja hvor fyrir öðrum.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.4, Rotten Tomatoes:
66%, Metacritic: 50%
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
TILNEFND TIL
KVIKMYNDAVERÐLAUNA
NORÐURLANDARÁÐS
MEISTARAVERK SEM HLAUTÓSKARINN
2012 SEM BESTA ERLENDA MYNDIN
A SEPERATION