Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 72
Sigurður Sigurjónsson leikstýrir Gulleyjunni sem verður frumsýnd í Borgar-
leikhúsinu í kvöld. Ljósmynd/Hari
Leikdómur dýrin í HáLsaskógi
Þjóðleikhús eins
og það á að vera
Um síðustu helgi frumsýndi Þjóðleikhúsið Dýrin í Hálsaskógi. Í sýningunni gengur nær allt
upp og var mikið hlegið þannig að bæði börn og fullorðnir skemmtu sér frábærlega. Dýrin í
Hálsaskógi eru verk sem sett er upp reglulega á Íslandi og er það vel því ef hér byggju milljónir
myndi sýningin keyra fyrir fullu húsi, ár eftir ár eftir ár, eins og bestu söngleikir stórborganna.
k annski eru Dýrin í Hálsaskógi svo gott leikrit að erfitt sé að klúðra uppsetningu á verkinu,
allavega í Þjóðleikhúsi, og þó – það er
eflaust hægt að eyðileggja allar sýn-
ingar en á frumsýningu Þjóðleikhúss-
ins á Dýrunum í Hálsaskógi gekk
næstum allt upp. Þarna var eigin-
lega allt gott. Góð sviðsmynd (Ilmur
Stefánsdóttir klikkar ekki frekar en
fyrri daginn), vel útsett tónlist (samt
mætti maður alveg fara að fá frið fyrir
hljómsveitum á sviðinu – prýðis tón-
listarmenn en ekki góðir leikarar),
frábær leikur, misfrábærir búningar
reyndar (María Th. Ólafsdóttir) og
leikstjórn til fyrirmyndar (sem kom
mér skemmtilega á óvart).
Eins og góður Mikki á að vera
Mikki refur Jóhannesar Hauks Jó-
hannessonar er eftirminnilegur og
hann er eins og góður Mikki á að
vera, kjánalegur og vondur en samt
svo simpatískur. Örn Árnason er
skemmtilegur Héraðstubbur bakari
og hinn nýútskrifaði Bakaradrengur,
Snorri Engilbertsson, vakti mikla
kátínu. Þar fer greinilega mikið efni
í góðan leikara. Lilli klifurmús var
hinsvegar ekki nógu sterkur hjá
Ævari Þór Benediktssyni en Mar-
teinn skógarmús bjargaði því með
skemmtilegum tilþrifum Jóhanns
G. Jóhannssonar. Kannski má helst
finna að frammistöðu Patta brodd-
gölts en þar sat leikarinn Hilmir
Jensson uppi með misheppnaðan
búning. Reyndar er þessari persónu
næstum ofaukið í verkinu en allt
annað var svo gott að það skipti ekki
máli.
Skemmtilegir krakkar
Ég verð að ljúka þessu á krökkunum.
Í sýningunni er krakkaskari sem
leikur mýsnar, íkornabörnin og auðvi-
tað Bangsa litla. Allir þessir krakkar
standa sig frábærlega og eiga mikið
hrós fyrir. Greinilegt að Ágústa kann
vel inn á krakkana og það skilar sér
líka til fullorðnu leikaranna sem feta
þá stigu að tala við áhorfendur full-
komlega. Þetta er sýning þar sem
manni líður vel í salnum með öllum
börnunum og þeim finnst ekki verra
að fá að kalla frammí til Mikka refs.
Ef þú ætlar bara á eina sýningu í vetur
með alla fjölskylduna, þá er þetta
sýningin. Dýrin í Hálsaskógi voru
síðast sýnd í Þjóðleikhúsinu 2003 en
þá höfðu liðið ellefu ár frá því síðast
Frumsýning guLLeyjan er Frumsýnd BorgarLeikHúsinu í kvöLd
Gulleyjan frá Akureyri til Reykjavíkur
„Langi Jón Silfur hefur verið mér hugleikinn
síðan ég var unglingur og las um ævintýri hans í
Sígildum sögum,“ segir Sigurður Sigurjónsson,
leikstjóri Gulleyjunnar, sem verður frumsýnt í
Borgarleikhúsinu í kvöld.
„Við sýndum þessa sýningu 50 sinnum fyrir
fullu húsi á Akureyri í fyrra og erum full til-
hlökkunar að bera þessar kræsingar á borð hér
fyrir sunnan,“ segir Sigurður en tekur það fram
að þetta sé samt ný sýning hérna í borginni. „Í
helstu aðalhlutverkum eru sömu leikarar en við
bætum nýjum við líka og fjölgum leikurum. Að
því leytinu til er um stærri sýningu að ræða.“
Siggi Sigurjóns, eins og hann er yfirleitt kall-
aður, er með fleiri járn í eldinum en Gulleyjuna.
Þannig leikstýrir hann sýningunni Á sama
tíma að ári en hann lék einmitt sjálfur í þeirri
sýningu 1996 og þá móti Tinnu Gunnlaugs-
dóttur þjóðleikhússtjóra. „Við leikstýrum þeirri
sýningu saman, ég og Bjarni Haukur Þórsson,
en við höfum brallað margt í gegnum árin:
Hellisbúa, Pabbann og Afann og öll þau verk-
efni,“ segir Siggi sem verður í Spaugstofunni á
Stöð 2 í vetur en að öðru leyti er líf hans óskráð,
að hans sögn.
„Ég vonast samt til að komast fljótt aftur á
svið til að leika. Þegar maður er kominn á minn
aldur ryðgar maður fljótt og ég vil halda mér í
formi,“ segir Siggi að lokum og hleypur aftur á
lokaæfingu á Gulleyjunni.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Mikki refur Jóhannesar Hauks Jóhannessonar er eftirminnilegur og eins og
góður Mikki á að vera, kjánalegur og vondur en samt svo simpatískur.
Niðurstaða:
Þetta er sýning
þar sem manni
líður vel í saln-
um með öllum
börnunum og
þeim finnst ekki
verra að fá að
kalla frammí
til Mikka refs.
Ef þú ætlar
bara á eina
sýningu í vetur
með alla fjöl-
skylduna, þá er
þetta sýningin.
dýrin í Hálsaskógi
Höfundur: Thorbjörn Egner. Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir. Tónlistar-
stjórn: Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir.
Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóð-
stjórn: Kristinn Gauti Einarsson og Halldór S. Bjarnason. Aðstoðarleik-
stjórn: Orri Huginn Ágústsson. Aðstoðarmaður leikstjóra og umsjón
með börnum: Anna Bergljót Thorarensen. Þýðing: Hulda Valtýsdóttir.
Ljóðaþýðingar: Kristján frá Djúpalæk. Tónlist: Christian Hartmann og
Thorbjörn Egner. Leikarar: Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ævar Þór
Benediktsson, Jóhann G. Jóhannsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Baldur
Trausti Hreinsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Örn Árnason, Snorri
Engilbertsson, Hilmir Jensson, Guðrún Gísladóttir, Orri Huginn Ágústsson,
Gunnar Hrafn Kristjánsson og Benedikt Gylfason.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
og þar áður fimmtán svo það er
aldrei að vita hvenær þau koma
aftur. Ekki missa af þessari
skemmtilegu og vel heppnuðu
sýningu.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gulleyjan – frumsýning í kvöld kl 19
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 14/9 kl. 20:00 3.k Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas
Lau 15/9 kl. 20:00 4.k Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k
Fim 20/9 kl. 20:00 5.k Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k
Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Fös 14/9 kl. 19:00 frums Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k
Lau 15/9 kl. 19:00 2.k Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Lau 6/10 kl. 14:00 9.k
Sun 16/9 kl. 16:00 3.k Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k
Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 SÝNINGAR Á 11.900 KR.
MEÐ LEIKHÚSKORTI
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 16/9 kl. 14:00 3.sýn Lau 13/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn
Sun 16/9 kl. 17:00 4.sýn Lau 13/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn
Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11.
sýn
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn
Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00
TÁKNMÁL
Lau 20/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 14/9 kl. 19:30 Fös 21/9 kl. 19:30
Lau 15/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:30 Frums Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fim 20/9 kl. 20:30 2.sýn Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Fim 8/11 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.
64 leikhús Helgin 14.-16. september 2012