Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 14.09.2012, Blaðsíða 78
Segðu það með  Borghildur Erlingsdóttir lögfræðingur í lyftingum Kraflyftingameistari stjórnar Einkaleyfastofu Borghildur Erlingsdóttir, nýráðinn forstjóri Einkaleyfastofu, á að baki stuttan en glæsilegan feril í kraftlyftingum. Hún hefur sankað að sér titlum og verðlaunum og er Íslandsmeistari í sínum kvennaflokki í íþrótt sem hún byrjaði að stunda fyrir tilviljun fyrir þremur árum. Borghildur æfir þrisvar í viku og alltaf seinni part dags. „Vegna þess að maður þarf helst að vera búinn að borða nokkrar mál- tíðir áður en maður fer að lyfta svona þungu.“ l ögfræðingurinn Borghildur Er­lingsdóttir er 42 ára. Hún starfað á Einkaleyfastofu frá árinu 1997 og var skipuð í starf forstjóra í byrjun september. Borghildur er einnig Íslandsmeistari í kraft­ lyftingum kvenna í 57 kílóa flokki og gefur ekkert eftir þegar hún tekur á stöngunum. „Ég villtist bara í þetta sport fyrir tilviljun þegar ég byrjaði hjá einkaþjálfara fyrir þremur árum,“ segir Borghildur. „Það er ekki lengra síðan en hann áttaði sig strax á því að ég væri kannski með smá krafta í kögglum og hvatti mig til þess að drífa mig í keppni og ég fór á mitt fyrsta mót í maí 2010. Þá má segja að þetta hafi byrjað fyrir alvöru og ég er búin að keppa á nokkrum mótum. Nú síðast á Íslandsmeistaramótinu í mars.“ Og árangurinn hefur ekki látið á sér standa og Borghildur er búin að setja nokkur met og krækja sér í nokkra titla. „Ég er allt í einu búin að fylla hillurnar inni í stofu af bikurum,“ segir Borghildur sem var kjörinn Íþróttamaður Seltjarnar­ ness árið 2011. Hún hafði einnig forgöngu, ásamt æfingafélögum sínum, um að Grótta á Seltjarnarnesi stofnaði kraftlyftingadeild sína en um sextíu manns eru nú skráðir í deildina. „Þetta hefur allt verið mjög óvænt og skemmtilegt og þetta hefur undið alveg ótrúlega upp á sig á Seltjarnarnesinu.“ Um helgina fer fram Íslandsmót í kraft­ lyftingum. Borghildur ætlar þó að sitja hjá að þessu sinni en hefur litlar áhyggjur af titlinum sínum. „Það er einmitt Íslands­ meistaramót núna um helgina. Ég ætla reyndar ekki að keppa en þarna verða fimmtán konur í keppni. Fjölgunin í þessu sporti er búin að vera ótrúlega mikil og er eitt það skemmtilegasta sem hefur komið út úr þessu öllu saman. Ég mæti á mótið til að aðstoða. En ég á ekki von á því að metið mitt verði slegið,“ segir Borghildur og hlær. Litla systir Borghildar keppir um helgina í 57 kílóa flokki. Dóttir Borghildar er einnig komin á kaf í lyftingarnar og keppir í annað sinn um helgina en þær mæðgur kepptu saman á Íslandsmótinu í mars. Borghildur segir kraftlyftingarnar vera bestu líkamsrækt sem hún hefur kynnst. „Mér finnst þetta frábær íþrótt og mjög skemmtilegt sport. Maður er líka bæði að keppa sem hluti af liðsheild og svo líka stöðugt að keppa við sjálfan sig. Þetta er ótrúlega gaman.“ Borghildur og félagar hennar æfa hjá World Class á Seltjarnarnesi og njóta það leiðsagnar þjálfara. „Við erum í raun bara að gera þessar klassísku kraftlyftingaæf­ ingar. Hnébeygju, réttstöðulyftu og bekk­ pressu. Við njótum nákvæmrar leiðsagnar og þetta er allt mjög fagmannlegt.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Mér finnst þetta frá- bær íþrótt og mjög skemmti- legt sport.  listahátíð framkvæmdastjórinn sEgir upp í mótmælaskyni Guðrún segir upp hjá Listahátíð Guðrún Norðfjörð hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík. Upp­ sögnin kemur í kjölfar þess að Hanna Styrmisdóttir var ráðinn listrænn stjórnandi hátíðarinnar. „Ég er ekki sátt við niðurstöðu stjórnarinnar og ákvað að segja upp í kjölfar hennar. Maður þarf að geta verið af heilum hug í þessu starfi og ég er ekki sannfærð að þetta hafi verið rétt ákvörðun stjórnar­ innar,“ segir Guðrún. Stjórn Listahátíðar ákvað í vor að auglýsa starfið laust til umsóknar, þrátt fyrir að undanþáguákvæði væri fyrir hendi um að ráða megi sitjandi stjórn­ anda án auglýsingar. Hrefna Haraldsdóttir, sem gegnt hefur starfi listræns stjórnanda Listahátíðar undanfarin fjögur ár, var einn 23 umsækjenda um stöðuna en hlaut ekki náð fyrir augum stjórnar. Þær Guðrún hafa unnið lengi saman við skipulagn­ ingu hátíðarinnar; Hrefna alls í tólf ár og Guðrún síðustu sjö ár. Guðrún, sem átti tvö ár eftir af sínum samnings­ tíma, kveðst óska Hönnu Styrmisdóttur alls hins besta í nýju starfi. Hún segist aftur á móti sannfærð um að Hrefna hefði átt að fá hljóta starfið. Kjartan Örn Ólafsson, stjórnarformaður Listahá­ tíðar í Reykjavík, segir að stjórnin hafi talið rétt að auglýsa starfið og vísar til áherslu um endurnýjun og nýsköpun í skipulagsskrá hátíðarinnar. Hann segir að Capacent hafi haldið utan um ráðningar­ ferlið og þær Hrefna og Hanna hafi skarað fram úr öðrum umsækjendum. „Hanna kynnti okkur mjög spennandi framtíðarsýn sína á Listahátíð, hún hefur víðtæka reynslu af stjórn menningarvið­ burða, og skaraði fram úr hvað varðar menntun á þessu sviði,“ segir Kjartan. „Þessi niðurstaða kom mér og mörgum öðrum á óvart en ég virði auðvitað niðurstöðu stjórnar­ innar og óska eftirmanni mínum alls hins besta,“ segir Hrefna Haraldsdóttir. Hún segir að Listahátíð hafi gengið vel undanfarið þrátt fyrir erfitt árferði, peningamál séu í góðu lagi, aðsóknin hafi aldrei verið betri og yngri gestum hafi fjölgað mikið. „Og ég hef ekki tölu á öllum fimm stjörnu dómunum.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Guðrún Norðfjörð og Hrefna Har- aldsdóttir láta báðar af störfum hjá Listahátíð í Reykjavík. Ljósmynd/Hari Árni gefur út Ár kattarins Árni Þórarinsson sendir frá sér nýja spennusögu um blaðamann­ inn Einar í næsta mánuði. Bókin kallast Ár kattarins og heyrist því hvíslað að meðal umfjöllunarefna séu fjármál stjórnmálaflokkanna. Það kann að vera einhverjum áhyggjuefni því Árni hefur oft þótt forspár um það sem koma skal með umfjöllunarefnum sínum. Það eru ekki bara aðdáendur Árna hér á landi sem fagna útgáfunni því úti í heimi bíða margir spenntir eftir nýju efni frá honum. Bækur Árna hafa selst í um 300 þúsund ein- tökum um heim allan, samkvæmt upplýsingum frá Forlaginu. Kvartett í Kiljunni Páll Baldvin Baldvinsson hefur ákveðið að hætta sem bókagagnrýnandi í Kiljunni í Ríkissjónvarpinu. Sigrún Stefánsdóttir hefur gengið frá því að Kolbrún Bergþórsdóttir heldur áfram í þættinum en ekki duga færri en þrír til að fylla skarð Páls. Þau eru Eiríkur Guðmundsson, útvarpsmaður í Víðsjá, og þau Þröstur Helgason og Fríða Björk Ingvarsdóttir sem árum saman héldu utan um menningarumfjöllun Morgun- blaðsins. Vegleg veisla á Grillinu Borgarfulltrúinn Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fagnaði fertugsafmæli sínu um síðustu helgi. Þorbjörg bauð hundrað manns til veglegrar veislu á Grillinu á Hótel Sögu á laugardags- kvöld. Veislan var óformleg og skemmtu gestir sér vel. Athygli vakti að aðeins tveir félagar Þorbjargar úr borgarstjórn Reykja- víkur voru á meðal gesta – þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sóley Tómasdóttir. 70 dægurmál Helgin 14.­16. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.