Læknablaðið - 01.01.1928, Síða 7
14- árg.
1.-2. blað.
lEinitiiiBii
Reykjavík, janúar-febrúar 1928.
Röutgenstotan 1926—7.
Á h ö 1 d og e n d u r b æ t u r. Þessi tvö ár liafa veriö gerðar nokkrar
umbætur á tækjum til röntgenskoöunar. Háspennunetiö hefir veriö auk-
iö, þannig, aö einu boröi, til sjúklingaskoöunar, mátti bæta viö. Húsrúm-
ið er því orðið tilfinnanlega þröngt. Auk aukningar á háspennunetinu
hafa verið útvegaðar mjög vel einangraðar leiðslur, þar sem þær korna
nálægt sjúklingum (trochoskop-skoöun). Er það einkar þörf öryggisráð-
stöfun. Það er aldrei of varlega farið, þar sem unniö er meö alt aö 90
þúsund volta spennu — í þröngu húsrúmi.
Mikil endurbót er aö nýju, amerísku aluminium-borði — Potter-Bucky-
borði, — meö tilheyrandi „stativi“, til notkunar í sambandi við Potter-
,,blænde“, sem áður var til. Hafa þessi áhöld orðið til þess aö Ijæta rönt-
genmyndiraar aö stórum mun, meö því aö bægja frá „sekundær“-geislum,
er vilja gera gráar og óskýrar myndir af gildum líkamspörtum. Nýja
boröið kostaði rúmar 1500 krónur.
Mjög óþægilegar og kostnaðarsamar bilanir urðu, á síöastl. ári, á tækj-
unum til röntgenlækninganna (Induktor-áhöld). Varö óhjákvæmilegt að
kaupa nýjan Induktor (sem getur framleitt 40 ctm. eldingu), og gera við
þann garnla. Má nota hann til vara. Kostnaöur af þessu varð um 1800
krónur.
Sérstakt áhald var fengiö til þess að geta tekiö ,,serie“-myndir, á nokk-
urra sekúnda fresti, af pylorussvæði magans. Ennfremur nokkur vernd-
artæki, til notkunar við gegnlýsing. — Loks var útvegaður nýr ljósskáp-
ur (Forssells) til skoðunar á röntgenfilmum, stærri og að ýmsu leyti
betur útbúinn, en sá sem áður var til.
R ö n t g e n s k o ð u n. Skrá um þá sjúklinga, sem röntgenmyndir voru
teknar af, er á þessa leið:
Röntgenskoðun (diagnostik).
1926 1927
Höfuð (aðallega sin. paranasales) 44 60
Tennur ............................... 26 33
Öxl og efri útlimir .................. 109 115
Brjóstið (oftast lungun) ............. 260 257
Hryggur ............................. 130 117
Meltingarfæri (oftast maginn) ....... 129 134
Lifur .............................. 37 39
Þvagfæri (venjulega nýrun) ........... 31 26
Mjaðmargrind og ganglimir ........... 150 140
Skoðanir samtals 916 921
Sjúklingar samtals 823 793