Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.1928, Side 31

Læknablaðið - 01.07.1928, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ n 7 í haginn fyrir augnlækninn, svo aö hægt sé aö notfæra sér hina stuttu viðdvöl hans eins vel og unt er. Talning eins og sú, sem eg hefi látiö framkvæma, getur þá gert — og hefir þegar gert — mikið gagn. Hún veröur mikilvægur liður í erfiöinu viö aö koma hinum blindu til augn- læknis. Eg heifi þegar árið 1926 tekið þaö fram sjálfur, að hún sé ekki gallalaus, en ekkert mun aftra mér frá því að láta, þegar timar líða, fram- kvæma nýja talningu eftir sömu grundvallarreglum. Læknisskoðun allrar alþýðu. Eftir Stgr. Matthíasson. í greinargerðinni um Lundúnaferö mína í vetur gat eg um prófessor Haver Emerson frá New York, sem einn hinna málsnjöllustu og gagn- fróöustu af þeim mörgu, sem fluttu erindi á alþjóðafræðslumótinu. Hann hreif okkur meö sinni bjargföstu trú og áhuga á ýmsum nýtísku heil- brigðisráðstöfunum, sem nú eru gerðar i Bandarikjunum, eins og t. d. Scbick prófun og difteriimmunisatio og árlegri eða reglubundinni læknis- skoðun manna í því skyni að uppgötva veikindi i tima og koma í veg fyrir þau. Þesskonar reglubundin læknisskoðun hefir um hríð tiðkast hjá nokkrum liftryggingarfélögum og gefist svo vel að horfur eru á að smám- saman nái hún almennri útbreiðslu hjá Bandaríkjamönnum. Aftur og aftur hefi eg séö i tímaritum (eins og Brit. med. journal, Norsk Magasin og Ugeskr. f. Læger) að læknar hér i álfu hrífast með af áhuga Bandaríkjalækna og vilja aö hér sé einnig hafist handa á líkan hátt. I Danmörku veit cg að málið hefir verið til umræðu i læknafélögum, en án þess að fá verulegan byr. Menn vilja auðsjáanlega láta Ameríkumenn- ina gera duglega tilraun á sinum þjóðarlikama fyrst. Jeg verð að segja að jeg er fasttrúaður á, að allir skynsamir menn sann- færist smátt og smátt um þýðingu og nauðsyn reglubundinnar læknis- skoðunar á sjer og öðrum meö vissu millibili, á öllum aldri. Öldungis eins og nú leitar mikill þorri manna á mánaðarfresti tannlæknis síns til að láta hann líta eftir tönnum sinum og gera við þær sem farnar eru að bila, og öldungis eins og tanneftirlit og tannlækning og alrnent lækniseftirlit er komið á og talið sjálfsagt í alþýðuskólum, og öldungis eins og góðir verksmiðjueigendur sjá verkafólki sinu fyrir stöðugu lækniseftirliti og læknishjálp, og hjálparstöðvar eru komnar á fót fyrir berklaveika og fyrir mæður og ungl)örn — og í öllu þessu er fylgt þeirri stefnunni að upp- götva sjúkdóma í tíma og koma i veg fyrir hverskonar kvilla, eins trúi jeg því fast, að innan skemms verði þessi preventivráðstöfun gerð almenn, og fastur flokkur æfðra lækna verði settur til þess að r a n n s a k a al 1 a með ákveðnu millibili, t i 1 a ð k o m a s e m m e s t í v e g f y r i r s j ú k- dóma. Jeg sá nýlega í Brit med. journal getið um fyrirlestur, er hinn nafn- kunni hagfræðingur, próf. Irving Fisher við Yaleháskólann, hafði haldið um „Lenghtening of human life in retrospect and prospect'". Segir hann

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.