Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.10.1941, Qupperneq 13

Læknablaðið - 01.10.1941, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ 99 svipuö meö diabetes. Leitið, og þér nnmuð finna! En væri nú diabetes eins sjald- séður og dánartölurnar benda til, mætti ætla að orsökin lægi aö ein- hverju leyti í mataræði okkar og lifnaðarháttum. Væri verkefni fyrir íslenzka lækna að leysa þá gátu. Og þó að diabetes kunni að hafa verið fágætur hér, má gera ráð fyrir að sjúklingum með hann fjölgi hér sem annarsstaðar. 'Það gæti því orðið hlutskipti svo að segja allra ísienzkra lækna aö greina og meðhöndla diabetes, og ríður þá stundum ekki síður á skjótri diagnosis og réttri meðferð, heldur en þó að um appendicitis perforans væri að ræða. í þessu erindi mínu vinnst ekki tími til þess að ræða neitt ýtarlega um diabetes. En eg ætla að byrja með því, að minnast lítilsháttar á glycosuria, gljææmia og acidosis, en rannsókn á þessum einkennum er eins og kunnugt er notuð til þess að þekkja sjúkdóminn. Glycosuria er það kallað, þeg- ar svo mikill sykur er í þvaginu, að hægt er að finna hann með venjulegum kliniskum rannsókn- araðferðum. Annars finnast jafnan í þvagi „reducerandi" efni og má ætla að meðal þeirra sé vottur af drúfusykri, en það er of lítið til þess að verka á Fehlings vökva, eða aðra álika næma ,,reagensa“ Ef Irlóðsykur nær ákveðnu marki, kernur sykur i þvagið. Þvagsykurinn er kominn undir magni blóðsykursins og nýrna- þröskuldinum fyrir drúfusykur. Við þennan þröskuld er skilið það blóðsykurmagn, sem hjá einum og sama nianni orsakar að svo mikill sykur kemur í þvagið, að það finnist við venjulega þvagskoðun. Blóðsykurmagnið, sem þarf til þess að fram komi sykur i þvagi, er mjög mismunandi hjá ýmsum mönnum, en hjá sama einstaklingi virðist það vera samt við sig. Þó er talið, að það hækki lítið eitt með aldrinum og er oft allhátt hjá dia- betes-sjúklingi, sem lengi hefir gengið með sjúkdóminn. Talið er, að glycose síist í gegnum glome- ruli, en resorberist svo aítur í tu- buli. Má því búast við að sjúkdóm- ur í nýrum geti valdið nokkurri truflun á þessari starfsemi nýrn- anna. Sem vænta mætti er nýrna- þröskuldur oft óeðlilega lágur við nephrosis. Við ýmsar eitranir, graviditas og fleira, geta lika orð- íð breytingar. Flestir hafa glycose- þröskuld milli 170—igo mgr%, en hjá einstaka manni er hann mun hærri og hjá öðrum lægri. Talið er, að hann sé óeðlilega lágur, ef hann er undir 140 mrgc/c. Marcel Labbé og fleiri hafa getið um all- marga diabetes-sjúklinga, sem höfðu blóðsykur um og yfir 300 mgr%, án þess að sykur fyndist í þvagi. Til skamms tíma var talið, að hyperglycæmia hjá diabetes-sjúk- lingi stafaði einungis af því, að sykurinn brynni ekki í likamanum og safnaðist þar fyrir (passiv hyperglycæmia). Himsworth fann við rannsókn á diabetes-sjúklingi, að hversu mikill sykur sem fór for- görðum með þvaginu, þá var svo langt frá að glycæmia minnkaði við það. Væri sjúklingnum gefin 50 gr. af drúfusykri per os og diuresis aukin, hafði allur sá sykur og meira til farið forgörðum með þvaginu eftir 4 tima, en þrátt fyrir það var blóðsykur mun hærri en á undan sykurgjöfinni. Sykursýk- issjúklingur heldur því við hyper- glycæmia ,,aktivt“, og allar líkur til að það sé honum Iifsnauðsyn.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.