Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1941, Síða 37

Læknablaðið - 01.10.1941, Síða 37
LÆKNAB LAÐ IÐ 123 ingunum eftir 2—3 daga og fær þá sjúklingurinn úr því oftast insulin 2—3 sinnum á dag. ASgerðir á sjúklingum með syk- ursýki reyndust áður fyrr stór- hættulegar, en horfurnar hafa smám saman batnað stórum, eftir að insulinið kom til sögunnar. Mortalitet er þó ennþá allmikiö. Störring telur, að horfurnar séu ekki að ráði lakari fyrir sykursýk- issjúklinga en aðra, ef allt er rétt í pottinn búið. Coma diabeticum ætti sjaldan að konia fyrir hjá sjúklingum. sem fengið hafa sæmilega með- ferð og ráðleggingar, nenta ef hirðuleysi þeirra sjálfra væri um að kenna. Samkvæmt skýrslu frá Mayo klinikinni var orsökin til coma oftast nær (83%) sú, að regl- ur um mataræði höfðu verið frek- lega brotnar, insulin ekki tekið af einhverjum ástæðum, eða i þriðja lagi infectiones. Comasjúklingur þart'nast stöð- ugs eftirlits læknis og getur með- ferðin naumast verið viðunandi, nema í sjúkrahúsi. Störring bendir með réttu á, að ekki liggi minna við að flýta því, að comasjúklingur fái rækilega meðferð, heldur en ef um magaperforatio væri að ræða. Sjúklingar, sem fá rétta meðferð þegar í byrjun, batnar að jafnaði, nenia ef einhver banvænn fvlgi- kvilli skyldi riða þeim að fullu. Hafi corna staðið lengi, þegar með- ferð hefst, verða horfurnar slæm- ar og eftir 8—12 stundir mega þær teljast afleitar. Komi læknir 'til sjúklings, sem ekki er rænulaus með öllu og get- ur kyngt, er meðferðin næsta ein- föld. Eru ]tá strax gefiiar 30—50 einingar af insulini undir húðina -og siðan 15—20 einingar á tveggja stunda fresti, þangað til acidosis er bötnuð. Ef ekki eru tök á að á,- kveða blóðsykur og mæla sykur- magn í þvagi, er hyggilegt að gefa 20 gr. af sykri á undan hverri injectio, til þess að fyrirljyggja hypoglycæmia. Finni læknir sjúkling í djúpu coma diabeticum, skal undir eins gefa 40—aoo einingar af venjulegu insulini og er heppilegast að gefa nokkurn hluta þess intravenöst. Jafnframt er sjálfsagt að gefa stimulantia (t. d. sympatol, ejthe- drin, coramin eða coffein) og senda sjúklinginn tafarlaust á sjúkrahús, ef þess er kostur. Að öðrum kosti má læknirinn ekki víkja frá sjúkra- heðinum, því að ekki er ráðlegt að' fela hjúkrunarkonu meðferðina. Joslin ræður til að gefa insulin á hálfrar stundar fresti til að byrja með. Þeir, sem lengi hafa gengið með diabetes, þarfnast oft mjög stórra skammta af insulini, stund- um jafnvel allt að 1000 einingar, áður en þeir rakna við. Læknirinn verður þó að hafa hugfast, að börn og unglingar, sem nýlega liafa veikst af dialtetes og fá coma, eru jafnan furðu næm fyrir insulin- áhrifum og vakna stundum eftir aðeins 30—40 einingar: Væru þeim gefnar icoo einingar, en hinum, sem stóra skammta þurfa með, að- eins 30—40 einingar, yrði árang- urinn bágborinn. Margir læknar, þar á meðal Umber, gefa auk þess talsvert af drúfusykri t'yrsta sólarhringinn. Er hann gefinn í æð, undir húð, per os eða jier rectum, allt aftir á- standi sjúklingsins. Virðist það hyg'Sf'l6? öryggisráðstöfun fyt'ir lækna, sem ekki hafa tækifæri til endurtekinna blóðsykurrannsókna, að gefa nokkuð af drúfusykri, einkum með mjög stórum insulin- skömmtum.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.