Læknablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 13
LÆ K N A B LAÐ 1 Ð
8 7
lyfjakostnaöur og læknishjálp á
sjúkrahúsununi og yfirleitt öll sú
sjúkrahjálp, sem hægt hefir verö
að láta í té á hverjum stað, t. d.
röntgenmyndir o. fl.
Fróölegt er aö gera samanburð
i þessu efni á Kaupmannahöfn og
Reykjavík, er sýni meðalkostnað
vegna sjúkrahúsvistar á meðlim
og meðalfjölda legudaga á með-
lim árin 1938 og 1939.
Fessi samanburður sýnir greini-
lega aðstöðumuninn. í Kaup-
mannahöfn kostar bæjarsjóður að
mestu rekstur sjúkrahúsanna af
fé, sem jafnað er niður eftir efn-
um og ástæðum, en hér bera allir
kostnaðinn jafnt með iðgjöldum
sínum, nema að því leyti sem
Reykjavík nýtur góðs af tiltölu-
lega lágum daggjöldum á Land-
spítalanum. Opinber styrkur ti!
Sjúkrahúskpstnaður á meðlim 193S
- — 1939
Legudagur á meðlim 1938
— 1939
sjúkrasamlaganna hér
engu í þessu efni, því að samlög-
in i Danmörku njóta svipaðra
fríðinda. Heildartekjur dönsku
samlaganna árið 1939 voru 79,663
millj. kr., þar af var opinber styrk-
ur kr. 20,479 millj. kr. Heildar-
tekjur íslenzku samlaganna voru
sama ár 2,141 millj. kr., en opin-
ber styrkur þar af 637 322 kr.
Um sjúkrahúskostnaðinn er
annars fátt að segja. Hann hefir
ekki hækkað hjá samlögunum sem
heild.hvorki þegar litið er á krónu-
töluna pr. meðlim né heldur sem
'hundraðshluti af heildarkostnaði.
Læknishjálp.
Greiðsla læknishjálpar er önn-
ur meginskylda samlaganna. Skal
hún greidd að fullu á sjfikrahús-
uni og hjá heimilislækni samlags-
manns utan sjúkrahúss. í fyrstu
var gert ráð fyrir, að samlags-
menn skyldu greiða 34 kostnaðar
við læknishjálp utan sjúkrahúsa,
en þegar eftir fyrsta árið var
ákveðið, að almenn læknishjálp
skyldi greidd að fullu. Er óþarft
að rekja hér ákvæði laganna.
Aðstaðá samlaganna til að
semja við læknana var æriö mis-
jöfn. Sum samlögin höfðu aðgang
að héraðslækni, og var því eölileg-
ast, að þau semdu á grundvelli
héraðslæknataxta gegn ákveönum
afslætti. Önnur samlög urðu að
semja við héraðslækni ásamt
starfandi læknum á staðnum, og
má segja, að samlögin hafi á þeim
stöðum flestum orðiö af þeim frið-
induin, sem vænta hefði mátt aí
aðstöðunni til að geta notið lækn-
ishjálpar héraðslæknis gegn
greiðslu samkvæmt héraðslækna-
taxta.
Enn önnur samlög, þ. e. sjúkra-
samlög Reykjavíkur og Akureyr-
ar, urðu að semja við embættis-
lausa, starfandi lækna eingöngu.
Læknar óskuðu undantekning-
arlaust eftir samningum, þar sem
greiðsla kæmi fyrir hvert unniö
verk. Stjórnir samlaganna óttuð-
ust, að kostnaðurinn við læknis-
hjálpina yrði samlögunuin ofviða
með því móti, einkum á þeim
stöðum, þar sem margir læknai
voru. Iðgjöldin varð að ákveða
við hæfi almennings, og stjórnir
samlaganna stefndu að því, að
sem mestur hluti iðgjaldanna yrði
Kaupmannahöfn
...... kr. 3,31
...... — 3,30
................... 4.27
................... 4>23
breytir
Reykjavík
kr. 22,68
— 21,01
2,99
2,73