Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 32
ioó LÆKNABLAÐIÐ og dvaldist þar vi8 nám í henni og- öSrum sjúkrahúsum um eins árs skeiö. Þegar eftir heimkomuna 1893 fékk Jón læknir veitingu fyrir 13. læknishéraöi. Fljótsdalshéraði, og sat hann í því embætti fram til 1896. Þaö ár fór hann til fram- haldsnáms bæði til Kaupmanna- Jón Jónsson. hafnar og Lundúna. Við heimkom- una þaðan var liann 1897 skipaö- ur héraðslæknir i 14. læknishér- aöi, Vopnafiröi og 1906 fluttist hann í Blönduóslæknishérað, sem honum var þá veitt, en 1922 sótti hann um lausn vegna heilsubil- unar og var síðan embættislaus alla æfi. Þegar Jón læknir Iét af em- bætti, var hann 54 ára, en þótt heilsa hans meinaði honum að standa í feröalögum, eins og þeim háttar hjá héraöslæknum úti á landi, var fjarri því aö áhugi hans væri þrotinn. Hann lagði því enn út i lönd til frekara náms, bæöi til Kaupmannahafnar og Berlín- ar, og lagöi þá aðallega stund á tannlækningar. Eftir heimkomuna stundaöi Jón læ'knir þá lækningagrein bæöi i Reykjavík og víðar um land, allt til dauðadags, enda þótt liann heföi alltaf aðsetur sitt í Reykja- vík, Áriö 1903 gekk hann að eiga Sig- ríði Arnljótsdóítur Ólafssonar.hins þjóðkunua prests í Sauðanesi, og ngnuðust þau 9 börn. Af þeim komust þó aöeins 7 á legg, 4 dæt- ur, sem giftar eru erlendis, og 3 synir, sem búsettir eru i Reykja- vík. Fljótt á litiö kann æfi Jóns læknis að vera áþekk æfi venju- legra héraðslækna, eins og þær gerast og ganga. en betur aö gáö ér hún nokkuð frábrugöin þvi venjulega. Þaö er ekkert last um héraöslækna fyrr og síðar, aö þeir lé'u sár þaö nægja, aö leita auk- ins náms erlendis einu sinni um dagana, þaö eina skipti, sem þeir eru skyldir til aö gera þaö, og verður ekki aö því fundið. En Jón læknir leitaði þrisvar út i þeim erindagerðum, og síðast, þeg- ar hann var tekinn nokkuö aö reskjast. Sannleikurinn er sá, að Jón læknir var um margt hinn merk- asti maður, og sérstaklega var hann áhugasamur um almenn mál er alþýöu varðar. Hitt er annað, að fyrir einhverra hluta sakir áttu samtiöarmenn hans nokkuð erf- itt meö að koma auga á það, og hann naut því ekki þeirrar við- urkenningar, sem honum bar. Þetta er sorglega almennt, og mörgum manni veröur þetta liaft um fót og dregur úr honum kjark til framtaks, en svo var ekki um Jón lækni, því hann haföi ein- mitt þann áhuga, sem ekki ætlast til annarra launa en verksins.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.