Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.1946, Side 31

Læknablaðið - 01.01.1946, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ 19 engan veginn óhugsandi. Til- raunadýr ]jola betur sulfalyf ef mikið af hvítuefnuni er i fóðrinu. Að sjálfsögðu gilda ekki ætíð sömu reglur um menn og dýr, en samt finnst mér að læknar ættu að hafa þetta í liuga og reyna eftir niegni að fá sjúklinga, er neyta sulfalyfja til þess að horða mikið af hvítuefnum. Þetta get- ur vissulega verið erfitt þegar um fárveikt fólk er að ræða. Iljá dýrum, sem fengið hafa sulfalyf, finnst næsta oft eos- inophil infiltratio í innri lif- færum, svo sem hjarta og lif- ur, stundum samfara frumu- dauða (necrosis). Samskonar hreytingar liafa ósjaldan fund- ist hjá mönnum, sem dóu stuttu eftir notkun sulfalvfja. Þá er talið, að breytingar á lijarta- rafritun, (electrocardiogram) séu tíðar hjá mönnum, meðan þeir nota sulfalyf. Vafalaust batnar þetta oftast að fullu, þegar lyfjanotkun er hætt. Hitt er þó ekki ósennilegt, að varan- legar skemmdirgeti orðið á við- kvæmum líffærum eftir lang- ar og endurteknar lyfjagjafir. Hafa sumir læknar talið, að hjá þessu fólki geti síðar meir komið fram sjúkdómar, svo sem cirrliosis liepatis og dege- neratio mjæcardíi. Ef til vill eru þessir læknar of bölsýnir, en rök þeirra virðast mér þó svo þung á metunum, að ástæða er til að fara varlega i sakirn- ar, og nota ekki sulfalyf nema skynsamleg ástæða sé til. Einna mestu máli skiptir, að allmargir þeirra, sem nota sul- falyf verða ofnæmir fyrir þeim og það svo, að ekki er viðlit að láta þá taka lyfin síðar meir. Ofnæmi þetta kemur oftast í ljós —10 dögum eftir að lyfja- notkun hófst. Helztu og áþreif- anlegustu einkennin eru liiti, úthrot og kláði. Óvíst er enn, hversu lengi ofnæmi þetta stendur, en reynzla er þegar fengin um, að það getur stað- ið árum saman. Áður en byrjað er að gefa sjúklingi sulfalyf, er hyggilegt að spyrjast fyrir um, livort hann liafi notað þess háttar lyf áður og livernig þau hafi þol- azt. Hætt er við að sá maður, sem fékk einkenni um eitrun eftir eitthvert þessara lyfja, fái samskonar einkenni eða enn verri, ef hann fær sulfalyf aft- ur. Ofnæmi fyrir einu sulfalvfi liefir þó hvergi nærri ætíð i för með sér ofnæmi fvrir öll- um öðrum sulfalyfjum. Ef telja má víst, eða leiki grunur á um alvarleg einkenni eftir notkun sulfalvfja og þyki bera nauð- syn til að reyna sulfameðferð aftur, skal velja annað lyf en það, sem eitruninni olli. Ef ekki liegur því meira við, ætti fyrst að gefa 20—30 ctgr. til reynslu og siá hvað setur næsta dægrið. Verði á þeim tima engra óþæg- inda vart eftir prófskammtinn,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.