Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.1946, Qupperneq 40

Læknablaðið - 01.01.1946, Qupperneq 40
28 L Æ Iv N A B L A Ð 1 Ð annað en það, sem úr vatninu fæst. Sumir telja, að F geti verk- að beint á tennurnar, utan frá. Hafa verið gerðar tilraunir með þetta þannig að 1—2% upp- lausn af NaF var borin á tenn- ur fjölmargra barna, en þó að eins öðru megin í munni; var þetta gcrl vikuiega í 8—15 vik- ur. Við atbugun eftir ár eða svo virtist minni aukning vera á tannskemmdum í þeim tönn- um, se'm NaF-upplausnin var borin á. Hefir ])etta verið skýrt á þann liátt, að bein, og eink- um glerungurinn, dragi F mjög auðveldlega til sin. Því fer þó fjarri, að þetta geli tal- izt fullreynt. Þar sem mikið er af fluor i neyzluvatni, svo að veruleg brögð liafa verið að fluorosis dentium, hefir verið reynt að ná þvi úr vatninu, en á þvi Iiafa þó verið nokkur vand- kvæði. En nú þykja þessar at- huganir á gildi fluor fyrir styrk- leika tannanna svo eftirtektar- verðar, að mikið liefir verið um það rætt i Ameríku a.m.k., að bæla F út i vatn, sem er mjög snautt af þvi, svo að það verði allt að 1 mg á lítra. Ilafa verið uppi ráðagerðir um ])að — og framkvæmd e.t.v. hafin — að taka til samanburðar Ivær borgir, eða allstór liverfi í sömu borg, þar sem lítið eða ekkert er af F i vatni og tann- skémmdir miklar, og álíka miklar á báðum svæðunum. Bæta síðan F í drykkjarvatn annarrar borgarinnar, svo að ])að verði um 1 mg/1, og atliuga síðan hvort munur verður á tíðni tannskennnda í borgun- um, er frá líður. Úrslitanna verður langt að bíða, eða um 10 ár, en fróðlegl verður að sjá, hver þau verða. Óneilanlega virðast talsverð rök benda lil þess, að fluor i bófi styrki tennurnar, einkum glerunginn, og samræmið milli tannskemmda og magns F í vatni á áðurnefndum svæð- um í Ameríku, er svo á- berandi, að það er vissulega freistandi að ælla, að um beinl orsakasamband sé að ræða. En fljótræðislegt væri þó, á þessu stigi málsins, að ætla, að þarna væri fundin hin eina orsök tannátunnar, eða jafnvel hin mikilvægasta, enda er því ekki haldið fram af þeim, sem feng- izt hafa við þessar rannsóknir. Nú er ástæða til þess að spyrja: Hvernig mundi þetta koma heim við reynsluna hér á landi? Þvi verður vitanlega ekki svarað svo fullnægjandi sé, fyrr cn hliðstæðar rannsókn- ir hafa farið fram hér, á fluor- magni drykkjarvatns og út- breiðslu tannskemmda á sörnu stöðum. En að óreyndu máli. virðist mjög hæpið, að um sams konar samræmi geti verið að ræða hér, og það er greint hef- ir verið frá. Enn sem komið

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.