Læknablaðið - 15.10.1955, Page 32
140
LÆKNABLAÐIÐ
I
T
l.l'HVÍK 1». \ O IIIIII \ I.
— I N MEMDRIAM —
LúSvík Norðdal var Hún-
vetningur að uppruna. 1 ritinu
Læknar á Islandi er náms og
starfsferill hans rakinn og læt
ég niér nægja að vísa til þess.
Árið sem Lúðvík lauk stúd-
entsprófi, kvæntist hann Ástu
Jónsdóttur frá Núpsstað, ágætr/
konu, sem nú lifir mann sinn.
Upp frá því urðum við, nokkr-
ir skólabræður hans og vinir,
stöðugir heimagangar á heim-
ili þ.eirra hjóna. Þó að efni
þeirra væru þá að vonum iítil
var alúð þeirra og risnugleði
svo niikil, að okkur gleymdist
að gæta þess að íþvngja ekki
heimili þ.eirra um of.
Leiðir okkar skólabræðr-
anna skildu að afloknum próf-
um. Nýtt iieimili þeirra i nýju
umhverfi varð snemma rómað
fyrir rausn og risnu. Er árin
liðu, stækkaði sá hópur vina
og venzlamanna, er vandi
þangað komur sínar. Öllum
leið þar vel, engum fannst sér
ofaukið. Á skólaárunum stund-
aði Lúðvík nám sitt vel, en
mestur var áhugi hans á hand-
lækningum. Hann viðaði þá
þegar að sér talsverðu af góð-
um hókum um það efni og
varð betur að sér i þeirri grein
en almennt gerðist. Hinn vand-
fýsni kennari okkar, Guð-
mundur Magnússon, hældi
honum einkum fyrir þau skil,
er hann gerði skriflegum verk-
efnum. Fór þar saman kunn-
átta hans og stilleikni. Mér var
kunnugt, að Lúðvik hefði
helzt kosið að stunda fram-
haldsnám í handlækningum og
var tvímælalaust vel til þess
fallinn, en ástæður leyfðu það
ekki. Hann gerðist starfandi
læknir á Eyrarhakka að prófi
loknu. Ekki leið á löngu, þar
til orð fór af lækningum lians,