Læknablaðið - 01.09.1956, Síða 30
70
LÆKNABLAÐIÐ
eina sem getur bjargað honum
er ef læknir er við liendina til
|)ess að gefa honum adrenálin
inn í æð. Anti-histamin kemur
ckki að neinu gagni þegar
svona stendur á, því að sjúkl-
ingurinn deyr áður en ])að nær
að verka.
I Bandaríkjunum liafa um
100 anafylaktisk losl verið til-
kynnt á ári af þessum sökum
og um þriðjungur þeirra hef-
ur leitl til bana. Feinberg taldi
víst að slík viðbrögð væru
miklu algengari en tilkynning-
arnar greina og gerði ráð fyrir
að um .350 manns deyi árlega
í Bandarikjunum af þessum
sökum.
Sjálfsagt er að fara varlega
i að gefa penicillin öllum þeim
sem vitað er um að hafa of-
næmistilhneigingar, því að
sjúklingur sem hefur reynzt of-
næmur fyrir penicillini getur
dáið af penicillindælingu, sein
hann fær seinna. Ef nauðsvn-
legt skyldi vera að gefa penicil-
lin af einhverjum ástæðum ætti
aldrei að gefa slíkum sjúklingi
það án ]),ess að hafa gefið hon-
um anti-histamin klukkutíma
áður og hafa adrenalindæluna
tilbúna ef bann fer að veikjasl.
Við krufningu eflir slíkan
anafylaktiskan dauðdagafinnst
bjúgur í lungum og blæðingar
og oft bjúgur í munni. Stund-
um finnst periarteriitis, og
nýrnaskemmdir geta einnig
fundizt. Ef hjartarafrit hefur
verið tekið koma iðulega fram
breytingar á því.
Ef nægileg varúð er viðhöfð,
er unnt að forðast þessa hættu-
legu anafvlaxi. Með því að
dæla penicillin- upplausn
1:1000 inn í hörund á sjúkl-
ingnum er auðvelt að ganga
úr skugga um hvort hann sé
ofnæmur fyrir meðalinu. Ef
bvítur bjúgur kemur í stung-
una og roði í kring er um
greinilegt ofnæmi að ræða og
ekkert vil i að dæla penicillini
i sjúklinginn.
Hins vegar getur hörunds-
svarið verið tillölulega litið hjá
þeim sem fá ,e. k. serumsjúk-
dóm af meðalinu, þ. e. veikj-
ast ekki fyrr en mö.rgum dög-
um seinna. En þau viðbrögð
verða sjaldan hættuleg og anti-
histamin koma þá að miklu
gagni. Ekki er þó svo að skilja,
að liörundsprófanir séu gagns-
lausar, en þær bregðast fr,ekar
gagnvart þeim sem veikjast
seint af penicillini.
Tuto-])enicillin hafa sumir
viljað halda fram að væri laust
við ofnæmishæltu, en Feinberg
sagði að því væri ekki treyst-
andi.
Einkennilegt er að flestir sem
dáið hafa af penicillini, hafa
fengið procain-penicillin, en
þó er víst að procainið á eng-
an þáll i því.
Ofnæmi fyrir salicyl-sam-
böndum er algengt. M. Samter
frá Bandaríkjunum gerði grein