Læknablaðið - 01.09.1956, Síða 38
78
L Æ K N A B L A Ð 1 Ð
lægri í smábæjunum. Þessir
samningar gilda aðeins til ára-
móta því að þá koma til fram-
kvæmda nýju lögin um al-
manna tryggingar samkvæmt
þeim skulu læknar á 1. verð-
lagssvæði fá smávegis greiðslu
frá samlagsmönnum fyrir við-
tal og vitjun. Er greiðsla fyrir
viðtal ákveðin kr. 5,00 en kr.
10,00 fyrir vitjun. Breytist
kaupgjaldsvísitalan um 10 af
hundraði eða meira kveða lögin
svo á að samræma skuli greiðsl-
urnar þeirri breytingu. Mun
Tryggingarstofnunin fyrir
hönd samlaganna kref jast lækk-
unar á fastagjaldi til lækna á
fyrsta verðlagssvæði og búast
má við verulegum ágreiningi,
þegar til samninga kemur, um
það hversu mikil tekjulind
lækna verði við þessar auka-
greiðslur. Það verður því hlut-
verk þessa fundar að kjósa
nefnd til þess að annast samn-
ingagerðina.
Ekki hefur heilbrigðismála-
ráðuneytið enn svarað bréfi
stjórnar L. 1., varðandi orlofs-
rétt lækna. Er þó komið há'tt á
annað ár síðan bréfið var sent
og beiðni um svar margsinnis
ítrekuð. Samninganefnd héraðs-
lækna ræddi einnig þetta mál
við ráðuneytið s.l. vetur en allt
kom fyrir ekki. Formaður L. I.
ræddi nýverið við skrifstofu-
stjóra og núverandi ráðherra
heilbrigðismálanna um orlofs-
réttinn og var heitið góðu um
skjóta afgreiðslu.
S.l. ár var mikill innflutning-
ur bifreiða og munu alíir lækn-
ar, sem þess óskuðu hafa fengið
nýja bifreið. Nú verður mjög
dregið úr þessum innflutningi
en Innflutningsskrifstofan
bjóst þó við að eitthvert slang-
ur kæmi af bifreiðum frá Rúss-
landi, Tékkóslóvakíu og Italíu.
Auk þess mun enn óráðstafað
nokkrum tugum bifreiða af
ýmsum gerðum, sem fluttar
voru inn í hálfgerðu leyfisleysi.
Það sem af er þessu ári hefur
aðeins einn læknir beiðzt að-
stoðar stjórnar L. I. um útveg-
un bifreiðar en allmargir lækn-
ar í Reykjavík eru í bifreiða-
hraki. Heilbrigðismálai'áðherra
hefur haft góð orð um að stuðla
eftir föngum að því að bætt
verði úr brýnustu bifreiðaþörf
lækna. Reykjavíkurlæknarnir
hafa þegar sent umsóknir sínar
til stjórnar L. R. Ef stjórn L. I.
á að vera öðrum læknum innan
handar um útvegun bifreiða,
þurfa umsóknir þar að lútandi
að koma sem allra fyrst.
Þegar Haukur Kristjánsson
fluttist frá Akranesi, var lækn-
isstaðan veitt Borgþóri Gunn-
arssyni, en auk hans höfðu sótt
um stöðuna þeir Ólafur Þ. Þor-
steinsson og Úlfur Gunnarsson.
Allir voru þeir að sjálfsögðu
taldir hæfir til starfsins. Borg-
þór tók aldrei við stöðunni og