Læknablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
153
vatns og frárennslis, eftirlit með
nýbyggingum og skipulagningu,
með skólabyggingum, veitinga-
stöðum og öðrum skemmtistöð-
um, íþróttabúsum, þvottahús-
um, rakarastofum og yfirleitt
öllum stofnunum, sem veita op-
inbera þjónustu. 2. deild liafði
umsjón með mengun lofts, eink-
um í iðjuverum, loftræstingu og
ljósaútbúnaði í opinberumbvgg-
ingum; alla eiturfræði (toxico-
logi) í sambandi við iðnað,
ábættu af liávaða á vinnustöð-
um og áhættu af geislaverkun
í iðnaði og á spítölum. 3. deild
bafði með höndum allt mat-
vælaeftirlit. Hver þessara
þriggja deilda bafði sérstaka
rannsóknarstofu til umráða. 4.
deild sá um alla heilsugæzlu í
skólum og hafði eftirlit með
börnum og unglingum. Undir 5.
deild heyrðu sóttvarnir, fram-
leiðsla blóðvatns og ónæmis-
aðgerðir. Þarna voru margar
rannsóknarstofur, sem virtust
vel útbúnar að tækjum, og ekki
var að siá, að skorti vinnuafl.
Athyglisverðust fannst mér
veirurannsóknarstofan, sem tók
við sýnum til greiningar frá
poliklinikum og spítölum. 1
Moskvu eru 4 veirurannsóknar-
stofur fvrir hagnýta veiru-
fræði og auk þess 3 aðrar, sem
einkum fást við vísindalega
veirufræði, en tvær þeirra fást
auk þess að nokkru leyti við
veirugreiningu. (5. deild er fvr-
ir sníkj udýrafræði (parasito-
logi), þ. e. malariu, ormaveiki,
frumdýr í þörmum og skordýr.
A 7. deild eru rannsóknarstofur
fyrir almenna sýklafræði, líf-
efnafræði, accustik og geisla-
fræði. Þarna eru framkvæmdar
rannsóknir á lofti, vatni, jarð-
vegi, matvælum, leikföngum,
alls konar sýni frá spítölum,
veitingahúsum, hávaði mældur
á vinnustöðum og annars staðar
og geislamögnun mæld, þar sem
þess þarf með. Siðast, en eklci
sízt ber þessi deild ábyrgð á öll-
um úrgangi frá kjarnorkustöðv-
um. 8. deild fer með skipulagn-
ingu á vinnu stofnunarinnar,
spjaldskrá og sér um námskeið
fyrir það fólk, sem er í þjón-
ustu stofnunarinnar. 9. deild
fer með fjármál og sér um all-
an úlbúnað annarra deilda.
lÖnæmisaðgerðir eru ekki lög-
skipaðar í Sovétríkjunum, en
þrátt fyrir það er þátttaka sögð
góð. Þessar aðgerðir eru ýmist
framkvæmdar á Sanepid eða í
skólum, poliklinikum, barna-
heimilum eða öðrum stofnun-
um. Berklapróf er gerl á öllum
skólabörnum, en ekki eru Rúss-
ar, frekar en Bandaríkjamenn,
mjög ákafir í að bólusetja gegn
berklaveiki. Fullbólusett er gegn
bólusótt, barnaveiki og tauga-
veiki.
Ég spurðist sérstaklega fyrir
um mænusótt. Þar eru hinir
venjulegu stofnar á ferðinni,
oftast 1. og 3. stofn, í fvrra bar
mest á 2. stofni, en í ár aftur