Læknablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
169
ætlaður allt annar tilgangur. —
Sem dæmi má nefna Sklifos-
ovski-stofnunina í Moskvu.
Þetta er merkisstaður, sem i
rúm 150 ár liefir komið mikið
við sögu rússneskrar læknis-
fræði. Höllin var bvggð í lok 18.
aldar og er sögð vera „a remark-
able bistorical monument of
Russian arcbitecture“. Frá byrj-
un 19. aldar og fram að bvlt-
ingu var þetta atbvarf upp-
gjafapílagríma og spítali fyrir
um 70 manns, sem tók einkum
við særðum hermönnum og
slösuðu fólki. Nú er þarna aðal-
slysavarðstofa Moskvu og tengd-
ar henni spítaladeildir fyrir alcút
kirurgi og medicin.
Höllin stendur við mikla um-
ferðagötu, og er framhliðin
prýdd súlum og skrauti, sem
mjög einkennir rússneska bvgg-
ingarlist, bæði forna og nýja.
Þegar inn er komið, verður fyr-
ir mikið anddyri. Þar er gólf
og veggir úr marmara og enn
fleiri súlur; veggmálverk eru
þar mörg, og endar loft and-
dyrisins í hvelfingu, sem er mál-
uð myndum af feitu kvenfólki í
Rubens-stíl og misjafnlega heil-
ögum karlmönnum, ef dæma
skal af glampanum í augum
þeirra, sem liorfa á kvenfólkið.
Miklar marmaratröppur liggja
upp á efri hæð hallarinnar, og
handrið er útflúrað.
í höllinni sjálfri er nú hluti
slysavarðstof unnar, rannsókn-
arstofur, kennslu- og fundarsal-
ir, en spítalinn er í nálægri bygg-
ingu, fornlegri. Þar eru stigar
og allt tréverk annað mjög úr
sér gengið. Dregill var eft-
ir endilöngum spítalagangi,
gluggatjöld efnismikil og bród-
eruð, eins dyratjöld; blómapott-
ar stóðu á gólfum og borðum.
Allt var þetta hreint, en ryksælt
lilaut það að vera.
Þessi spitali var ekki eins
dæmi. Margar vísindastofn-
anir eru i gömlum og úr sér
gengnum byggingum, sumar
þeirra böfðu aðeins tvö herbergi
til umráða, en aðrar heilar
liæðir.
I sliku umhverfi verkar það
andstætt að sjá hin nýjustu og
fullkomnustu tæki á skurðstof-
um, rannsóknarstofum og rönt-
gendeildum. Frágangur á ný-
byggingum, bæði spítölum og
íbúðarbúsum, stenzt ekki þær
kröfur, sem gerðar eru á Norð-
urlöndum. Leiðslur eru innan á
veggjum. Frágangur á stigum
og gólfum er lierfilegur. Gólf-
listar gliðnaðir frá veggjum,
dyraþrep féllu illa að gólfi,
liurðir illa að stöfum, og hurð-
arhúnaframleiðslan getur ekki
bafa staðizt áætlun. Gólf á
skurðstofum i nýjum spítölum
eru víða úr terrazzo, og var þar
alltaf sprunga, ein eða fleiri. Á
veggjum þurfti ekki að leila
lengi að stað, þar sem ryk og
sýklar gátu náð festu. Skurð-
stofur voru lakkmálaðar ofan
miðra veggja, en neðar voru