Læknablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 60
174
LÆKNABLAÐIÐ
akútastiginu er lokið, og fá þar
salicyl í tvær vikur af fjórum
næstu sex mánuði.
Það kemur ekki á óvart, þó
að vísindastarfsemi sé mikils
metin í vísindalega skipulögðu
þjóðfélagi. Mér er efi á því, að
annars staðar á jarðríki njóti sú
vinna meiri virðingar en iSovét-
ríkjunum, þvi að þar er hún tal-
in eitt af frumskilyrðunum fyr-
ir því, að hver 5 ára áætlun nái
tilgangi sínum til eflingar þjóð-
félaginu. Þvi meiri heilbrigði,
þvi fleira fólk og þeim mun
meiri lífshamingja, vinnugleði
og afköst.
Fjöldi vísindastofnana, bæði
sjálfstæðra og í sambandi við
iðjuver, eru dreifðar um lýð-
veldin, og liggj a þræðirnir til
og frá þeim allir í eina átt, til
vísindaakademíunnar i Moskvn.
Sú deild hennar, sem fer með
heilbrigðismál, ákveður verk-
efnin og skiptir þeim niður á
vísindastofanirnar, og til lienn-
ar eru niðurstöðurnar sendar.
Akademian er ráðgjafi heil-
brigðisráðuneytanna, en þau sjá
um, að niðurstöður vísinda-
mannanna verði bagnýttar og
koini þannig þjóðfélaginu að
gagni. Er sama, hvort um er
að ræða nýjar aðferðir í fvrir-
girðingu eða lækningu, ný lvf,
breytingar á vinnutækjum til
þess að forðast slys eða að koma
í veg fyrir atvinnusjúkdóma og
farsóttir.
1 vísindaakademíunni starfa
sem stendur 20 nefndir, sem
gera tillögu um það, bvaða við-
fangsefni krefjast belzt lausn-
ar í þann og þann svipinn. Það
sem ákvarðar nauðsvnina, er
þýðing viðfangsefnisins fyrir
þjóðarbúskapinn. Viðfangsefn-
in eru síðan afhent einni eða
fleiri rannsóknarstofnunum eða
spítölum til lausnar, en þessar
stofnanir eru nú alls 26, og
vinna tvær eða fleiri stofnanir
að hinu sama viðfangsefni, allt
eftir því hversu flókið það er.
Starfslið vísindaakademíunnar
er um 9000 manns, þar af 1600
með akademíska gráðu, en 7400
eru teknikerar og annað aðstoð-
arfólk.
Ég ætla að minnast lítillega
á þrjár vísindastofnanir, sem
við heimsóttum. Fyrst er það
Pavlov-stofnunin skammt fyrir
utan Leníngrad. I kringum þá
litlu byggingu, sem Pavlov liafði
til afnota, eru nú að rísa marg-
ar nýjar. Verður þetta smáþorp
af rannsóknarbyggingum, og á
það að heita Pavlova. Þarna
vann fjöldi manns, og voru við-
fangsefnin margbrotin, ekki að-
eins fvsiologi manna og dýra,
heldur einnig jurta. Þessi stað-
ur er miðstöð sovézkrar bio-
logi. Vinnustofur Pavlovs eru
nú safn, þær standa eins og
bann dó frá þeim. Reiðbjólið
Iians stendnr upp við vegg í
anddyrinu.
Allt, sem kemur frá þessum
stofnunum, er skrifað á rúss-