Læknablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 40
166
LÆKNABLAÐIÐ
ins á vísindavinnu. Við liina
meiri liáttar háskóla eru vís-
indaklúbbar fyrir stúdentana.
Þátttaka er ekki skylda. Rldri
læknar lialda fyrirlestra og
kenna rannsóknarstofntækni, og
fá stúdentunum viðfangsefni,
sem þeir gera grein fvrir skrif-
lega. Þeir, sem vekja athygli á
sér, sitja jafnan fyrir um að-
gang að aspirantura. Aspirant-
inn þarf ekki að taka þátt í
hinni daglegu vinnu stofnunar-
innar, en lielgar sig eingöngu
þeim viðfangsefnum, sem hon-
um hafa verið fengin til lausn-
ar. Hann vinnur sjálfstætt, en
undir handleiðslu revndari
manns. Viðfangsefni hans verð-
ur að vera samþykkt af rann-
sóknarráðinu, og minnist ég á
það síðar. Ef hann er á spítala,
vinnur liann klukkutíma skem-
ur á dag en aðrir að spítala-
störfum; auk þess fær hann fri
einn mánuð á ári á fullum laun-
um, auk sumarlevfis.
Aspirant-vinnunni lýkur með
prófritgerð. Ef hún er tekin
gild, fær aspirantinn titilinn
kandidat. Þetta er akademísk
gráða, sem samsvarar banda-
rísku gráðunni Master of Scien-
ce. Nú getur kandidatinn haldið
áfram, ef hann vill, og er næsta
stig doctor scientiae. Þetta er
löng leið, sem lýkur að jafnaði
ekki fyrr en 8—10 árum eftir
aspirant-próf. Það er nærri
ógerningur að verða dr. scien-
tiae undir fertugu, því að menn
verða að hafa unnið að fleiri
viðfangsefnum en einu. Dokt-
orsritgerð er skilað í vélrituðu
eintaki. Ef liún fær samþvkki,
er hún prentuð í bókarformi á
kostnað þeirrar stofnunar, sem
hún lcemur frá. Dr. scientiae-
gráðan er það erfið og mikils
metin, að sá, sem nær henni,
er viss um að fá æðstu stöðu,
en aðeins svo fremi, að hann
sé ekki ber að einhverjum skap-
gerðargöllum, sem gætu dreg-
ið úr virðuleika lians.
Rússar munu liafa orðið fvrst-
ir til þess að koma á kerfisbund-
inni viðlialdsmenntun fvrir
lækna. Frá 1885 var til stofn-
un í St. Pétursborg, sem liafði
þetta lilutverk með höndum, og
eftir októberhyltinguna 1918
urðu strax til fleiri slíkar stofn-
anir, og viðhaldsmenntun sér-
fræðinga og almennra lækna
var aðgreind. Nú eru til 11 sjálf-
stæðar stofnanir (institut), er
sjá um viðhaldsmenntun sér-
fræðinga og auk þeirra þrjár
spítaladeildir tengdar lækna-
skólum. Allir sérfræðingar liafa
rétt til, en ekki skyldu, að taka
þátt í námskeiðum sér að kostn-
aðarlausu, a. m. k. á fimm ára
fresti. Námskeiðin eru mislöng,
allt frá 4—6 mánuðir í 10 daga
námskeið. A hi-num stytztu er
tekið fyrir eitthvert þröngt svið.
Sérstök deild svarar skriflegum
fýrirspurnum frá læknum. Er
þessi bréfaskóli einkum notað-
ur af læknum, sem vinna að