Læknablaðið - 01.12.1960, Síða 29
LÆKN ABLAÐI Ð
155
viðvíkjandi faröldrum og opin-
berri heilsugæzlu í hverfinu.
Hann á að taka þátt í almenn-
ingsfræðslu um heilbrigðismál,
bæði á poliklinikinni og á
vinnustöðum. Á þessari poli-
klinik unnu 86 læknar, og voru
26 almennir læknar. Síðastliðin
tvö ár komu daglega að jafnaði
1100 manns á poliklinikina, og
vitjanir voru á milli 160 og 170
á dag.
Nú kann einhver að spyrja:
Hvernig kemst alm.læknir með
3000 manna praksis yfir alla
J)essa vinnu? Ef lil vill er skýr-
ingin þessi: Poliklinikin befur
akút vakt allan sólarhringinn,
á daginn einn læknir og ein
sjúkrabifreið, á kvöldin og' nótt-
unni tveir læknar og tvær
sjúkrabifreiðar. Að jafnaði eru
40 akút kvaðningar ásólarbring.
Barnapraksis og kvensjúkdóm-
ar lenda hjá sérfræðingum í
þeim greinum. í hverju hverfi
eru hjúkrunarkonur, er fylgjast
með fólki, sem er undir læknis-
hendi. A öllum meiri háttar
vinnustöðum cru poliklinikur,
sem fólk getur snúið sér til meö
smámuni. Ef læknirinn kemst
ekki yfir vinnuna, þá fær bann
annaðlivort hjálp eða vinnur
yfirvinnu og fær fyrir það auka-
greiðslu.
Viðtalstími læknanna er
breytilegur frá degi til dags, til
hægðarauka fvrir fólkið, svo að
það geti valið þann tima, sem
því hentar bezt. Hver poliklinik-
deild hefir greiðan aðgang að
sérfræðingum, sem annaðbvort
vinna á poliklinikinni eingöngu
eða á spítalanum. Þarna var vel
útbúin röntgendeild og rann-
sóknarstofa. Efnaskiptiáhald og
bjartarafritari voru ekki af nýj-
ustu gerð, en annars staðar sá
ég bjartarafritara, sem ritaði
beint á blaðið, einnig bjarta-
hljóðin.
Spítalinn, sem er tengdur
])essari poliklinik, er í 6 hæða
nýbyggingu, sem er snotur að
utan, en að innan eins og aðr-
ar nýbyggingar, og vík ég að
því seinna. Bvrjað var á þessari
byggingu á miðju ári 1955. í
apríl 1957 var hægt að laka á
móti 300 sjúklingum, og í októ-
ber 1958 var hann fullbyggður
fyrir 600 sjúklinga, tæpu 3V2
ári eftir að verkið var hafið.
Einn kostur við bygginguna var
sá, að eldhúsið var á efstu hæð,
en það fyrirkomulag befir gef-
izt vel, bæði vestan hafs og aust-
an. Þó að þetta væri kallaður
almennur spítali, var lionum
samt skipt í sérdeildir.
Deild fvrir orkulækningar
(fysiotherapi) er á öllum spít-
ölum, en einkum þó á hressing-
ar- og hvíldarheimilum suður á
Krím. Þessar deildir eru vel út-
búnar að öllum tækjum. Þar eru
alls konar rafstraumstæki,
vatnsböð, leirböð, sundlaugar,
æfingasalir og klefar fvrir nudd.
Röntgendeildin var glæsileg. Öll
tækin báru rússnesk merki. Þar