Læknablaðið - 01.12.1960, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
157
A þessari poliklinik er fvlgzt
nieð drykkjusjúklingum. A
þeim árum, þegar maður las
Turgenev, Tolstoy og Gorkv, þá
fannst manni, að þau öfl, sem
stjórnuðu rússnesku þjóðinni,
væru keisarinn, guð og vodka.
Hvað sem til er í þessu, þá mun
það vera staðreynd, að til
skanims tíma hefir áfengisbölið
verið mikið alvörumál með
þjóðunum, eins og marka má
af ræðu Ivrúsjovs fyrir 2 árum
gegn ofnevzlu áfengis.
Áður en ég fór að heiman,
hafði ég heyrt margar sögur af
gestrisni og drykkjuvenjum
Rússa, svo að ég hét á magann
í mér að duga vel. Hann gerði
það, enda var þolraunin ekki
eins mikil og ég hafði húizt við.
Ég sat margar veizlur og kom
á marga opinhera staði án þess
að verða var við ofdrykkju. Vod-
ka og vín var á borðum, menn
urðu hreifir og drukku sér til
prýði, að mér fannst. Á götu
sá ég tvívegis drukkinn mann.
tJkraínumenn eru sagðir gleði-
menn mikhr. Þeir neyta einkum
víns, en minna af vodka. Á vín-
stofum í Kiev og í Jalta sá ég
mikinn gleðskap, en ekki drukk-
ið fólk.
Mér var tjáð, að ræða Ivrús-
jovs hefði háft mikil áhrif. Á
2 árum hefir framleiðslan á
vodka verið minnkuð um 15%
og verðið hækkað, en vinfram-
leiðsla liins vegar verið aukin.
Nú þykir það mikill ljóður á
manni, ef hann sést drukkinn.
Almenningsálitið er brýnt með
fyrirlestrum á vinnustöðum og
i áróðurskvikmyndum. Ef það
hendir menn að vanrækja vinnu
eða heimili sitt vegna of-
drykkju, fá þeir fyrst áminn-
ingu. Ef sagan endurtekur sig,
er dregið af kaupi þeirra eða
þeir settir í aðra vinnu, sem
er erfiðari og verr launuð. En
þrátt fyrir þetta er vandamálið
enn tímabært.
Ofdrykkjumenn eru sendir á
poliklinikina. Þar fá þeir sið-
ferðislegan styrk, vítamín-
sprautur, og svo eru þeirra skil-
yrðisbundnu viðbrögð æfð með
apomorfini. Ef drvkkjusjúkl-
ingar eru líkamlega veikir, eru
þeir sendir á spitala eins og ann-
að fólk.
Einn hlekk fannst mér vanta
i keðjuna, og það voru skemmti-
staðir, sem þetta fólk gat leit-
að til í tómstundum sínum sér
til afþreyingar, í líkingu við það,
sem þekkist vestan hafs á veg-
um A.A. og á Norðurlöndum
á vegum Hánd i hánd-hrevfing-
arinnar.
Ég eyði ekki tíma í það að
lýsa sérdeildaspítala. Þeir eru
allir kennslustofnanir, en það
eru einnig margir almennu spit-
alarnir. Sá sem ég sá, var vel
útbúinn að tækjum. T. d. sá ég
þar gervilunga og gervinýra,
sem hvorttveggja var rússnesk
smíði, og á röntgendeildinni var
nýjasta gerð af röntgentækjum,