Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1961, Page 25

Læknablaðið - 01.09.1961, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 103 sjúkdómum og barnadauða. 1 stuttu máli: Þær breytingar, sem bætt viðurværi hefur haft á einstaklinga og beilar þjóðir á fáum undanförnum árum, eru svo víðtækar og róttækar, að ekki er viðlit að gera sér fulla grein fyrir þeim. Auk hinna lífsnauðsjmlegu efna i næringu mannsins koma einnig ýmis aukaefni til greina, sem hafa og mikilvægu hlut- verki að gegna, eins og t. d. ilm- og bragðgjafarnir. Ekki er hægt að vanmeta liin lystaukandi á- lirif þeirra, sem eru sérstaklega þýðingarmikil í lífi liins tauga- næma fólks menningarland- anna. Mat raunverulegs gildis þeirra er þó mjög erfitt, þvi að það breytist eftir því, livaða fólk á í hlut. Rannsóknir á sviði næringar- efnanna eiga vafalaust enn eft- ir að taka miklum framförum, enda er þróun hinnar kemisku efnagreiningar orðin svo ör og byltingarkennd, að slíkt verður auðveldara og einfaldara með bverju ári, sem líður. Auk þess að leiða í ljós bina fjölmörgu liði næringarefnanna, hafa nær- ingarrannsóknirnar það jafnan að markmiði að skilgreina, til hvaða þáttar efnabyltingarinn- ar hvert einstakt liinna lífsnauð- synlegustu næringarefna sé not- liæft. Um og eftir 1930 sannaðist það, að sum vítamínin koma a. m. k. fyrir í coenzymhluta ým- issa enzyma og eru þannig nauðsynleg sem byggingarefni þeirra. T. d. sýndi sig, að lacto- flavinphosfat var coenzymhluti hins gula öndunarenzyms. Einn- ig er kunnugt, að ýmis önnur vítamín eru i tengslum við co- enzymmyndunina: thiamin, ni- cotinsýra, pyridoxin, pantothen- sýra, biotin og ef til vill D-víta- mín. Uppgötvun vítamínanna átti sér yfirleitt stað, áður en kunn- ugt var um þátt þeirra í coen- zymmynduninni. Undantekning frá því er þó nicotinsýra og ni- cotinsýruamid, sem Warburg fann sem lið í co-dehydrogenase, áður en vítamíneðli þess var þekkt. Sumir vísindamenn eru þeirrar skoðunar, að vítamín séu aðeins virk í sambandi við sér- greind eggjahvitusambönd. — Þetta eru þó aðeins kennisetn- ingar, sem ekki eru fullsannað- ar. Þó að C-vítaminið sé orðið tiltölulega gamalþekkt, er samt ýmislegt um verkanir þess og starfsferil, ef svo má að orði kveða, hreinar ágizkanir. Augljóst er, að rannsókn- ir á kemískum viðbrögðum efnaskiptingarinnar skipta afar- miklu máli til þess að skilja verkanir og mikilvægi ýmissa næringarefna. Ýmislegt merki- legt og mikilvægt vita menn um þessi efni, þó að sú þekking sé um flest enn á byrjunarstigi. Þar hefur notkun kola og köfn- unarefnisisotopa komið að mik-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.