Læknablaðið - 01.09.1961, Qupperneq 61
LÆKNABLAÐIÐ
129
dJkeodór Sí
'íuiaóon:
BLÓÐLEYSI
OG jAryskortlr
ERINDI FLUTT Á FUNDI L.R. 1 □. DESEMBER 195B
Herra formaður,
góðir starfsbræður!
Mér er sem ég sjái, hvernig
ykkur hefur orðið við, er þið
lásuð fundarboðið a þessu sinni,
og ég þykist vita, að þið hafið
hugsað sem svo: Hvað skyldi
maðurinn halda, að hann geti
sagt okkur um þetta efni, sem
við vitum ekki þegar? Þetta er
laukrétt! Ég get það ekki og
ætla mér það ekki.
Hitt er svo annað mál, að ein-
mitt vegna þess hve öllum lækn-
um er þetta efni vel kunnugt
og hve sú kunnátta á sér lang-
an aldur, er hætt við, að nokk-
urs sljóleika gæti, eins og ofl
vill verða um þá hluti, er menn
þykjast gjörþekkja og iiafa dag-
lega fyrir augum. Þótl blóðleysi
vegna járnskorts sé efalítið einn
þeirra sjúkdóma, sem læknar
þekkja bezt og eru vanastir
lækningu á, vilja samt koma
fyrir mistök, sem venjulega eiga
rót sína að rekja til of vana-
hundinnar hugsunar um þenn-
an hversdagslega sjúkdóm.
Af þessum sökum hef ég tal-
ið, að upprifjun einfaldra stað-
reynda um þetta efni ætti rétt
á sér. Miklu auðveldara hefði
að sjálfsögðu verið að taka til
umræðu einhvern mjög sjald-
gæfan sjúkdóm, sem flestum
viðstöddum væri lítt kunnur.
Þetta ætti að nægja sem af-
sökun fyrir efnisvalinu. Það er
sem sé ekki ætlun mín að móðga
neinn, og eklci er það vanmat
á kunnáttu lækna, sem því veld-
ur, að liér verður talað um al-
genga hluti á einfaldan hátt.
Mætti og minna á útlenda lækn-
inn, sem átti að lialda erindi í
konunglega hrezka læknafélag-
inu og var strengilega varaður
við að tala af of miklum lær-
dómi, þar sem meðal áheyrenda
Iians væru margir frægustu vís-
indamenn heimsins.
Hvað er þá blóðleysi? Ykkur
mun ekki þvkja fróðlega spurt,
en sannleikurinn er sá, að mér
er ekki kunn fullnægjandi skil-
greining á þessu liugtaki. Al-
gengast mun að miða við til-
tekin hæmoglobin-prósent, eins
og þetta mælist við athuganir
lækna. Við þetta er sitthvað að
athuga og þó fremur öðru mis-
munandi mælingaraðferðir.
Sumir læknar nota enn í dag