Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.1961, Page 63

Læknablaðið - 01.09.1961, Page 63
LÆKNABLAÐIÐ 131 1. súrefnisflutningur frá lung- um til vefjafrumna. 2. kolsýruflutningur frá vefj- um til lungna. 3. þátttaka i að viðhalda réttu sýrustigi blóðsins (þ. e. að oxyhæmoglobin og reducer- að hæmoglobin vinnur sem veik sýra gegn kalium-salti hæmoglobins). Af þessu stinga fyrstu tvö at- riðin mest í augu. Bezt væri því e.t.v. að slcilgreina blóðleysi sem minnkaða bæfni rauðra blóð- korna til súrefnisflutnings. Við það bíða svo allar vefjafrumur likamans tjón á starfshæfni sinni og þær þó mest, sem mest- ar kröfur eru gerðar til. Þessi skilgreining greiðir fyrir skiln- ingi á, að blóðleysi er ekki að- eins lág hæmoglobin prósent, lieldur sjúklegt ástand, sem ábrif hefur á starfshæfni liverr- ar einustu frumu líkamans. Minna mætti í þessu skyni á sambandið milli Iilóðleysis og sýruleysis í maga. Algengast mun, að læknar álykti, að blóð- leysi stafi af sýruleysinu. Myndi bitt þó ekki einnig vera algengt, að blóðleysið — og súrefnis- skortur, sem því fylgir, sé or- sök minnkaðrarsýruframleiðslu frumnanna i maganum, einkum þegar litið er til þess ótrúlega mikla starfs, sem af þeim er krafizt við tilteknar aðstæður. Blóðmyndun fer fram í merg, milta og reticulo-endothelial vef annars staðar, með aðstoð lifr- ar og meltingarfæra. Eyðing rauðra blóðkorna, að loknn ævi starfi þeirra, verður fyrir til- verknað reticulo-endothelial frumna, einkum í miltanu. Ef nú er athugað, bvers við þarf, til þess að eðlileg blóðmyndun geti farið fram, má sjá bið belzta á töflu II. TAFLA II. 1) Járn 2) Protein 3) Vitamín C 4) Thyroxin 5) Vitamín B12 6) Folinsýra 7) Málmar („trace elements“). Þegar rauðu blóðkornin ger- ast gömul og slitin eða ef þau eru sjúk af öðrum sökum, eyð- ast þau fyrir tilstilli reticulo- endotbelial frunma, einkum í miltanu. Ganga blóðkornin und- ir nákvæma rannsókn þessara frumna rnörg þúsund sinnum dag hvern, og sýni þau sjúk- dómseinkenni eða brörnun, eru þau jafnskjótt tekin úr umferð, en efniviður þeirra geymdur til nýmyndunar blóðs. Miltað má því kalla kirkjugarð rauðu blóð- kornanna fremur en sláturbús. Nýlegar atbuganir (með geislavirkum ísótópum) bafa leitt í ljós, að meðalaldur rauðra blóðkorna er nálægt 127 dagar, og kemur það vel heim við nið- urstöður fyrri rannsókna, er gerðar voru með öðrum hætli. Við venjulegar aðstæður eyðast þannig 7—10 milljónir rauðra

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.