Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 37
Heilsa
Kynningarblað Helgin 26.-28. ágúst 2011
L
íkamsræktarstöðin World Class
býður upp á mikinn fjölda af
námskeiðum og opnum tímum
í vetur; það er ekki ofsögum
sagt því tímarnir eru 430 á viku.
„Heilsurækt á að vera skemmtileg. Við bjóð-
um upp á svo mikið og fjölbreytt úrval af
námskeiðum og opnum tímum að það ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“
segir Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri hjá
fyrirtækinu. Hún nefnir líka að námskeið-
unum fylgi gott aðhald. „Ef þú mætir ekki er
hringt í þig.“
Opnir tímar eru æfingatímar fyrir alla
sem eru með líkamsræktarkort hjá World
Class en fyrir námskeiðin er greitt sér-
staklega. Gígja segir að opnum tímum og
námskeiðum fylgi ýmsir kostir. „Rannsóknir
hafa sýnt að fólk sem æfir í hópi er líklegra
til að haldast í heilsurækt en þeir sem fara
einir,“ segir hún, og nefnir hvað félagslegi
þátturinn er mikilvægur. „Það myndast svo
góð stemning í tímunum við að sjá alltaf
kunnugleg andlit og með tímanum fer fólk
að þekkjast. Í sumum hópunum er fólk sem
hefur mætt í mörg ár og þekkist því orðið
ágætlega. Það hittist stundum utan tíma,
t.d. í Baðstofunni, og sumir hóparnir halda
jafnvel árshátíð. Það er mjög gaman,” segir
Gígja.
Vinsælustu opnu tímarnir eru spinning,
heitt jóga (hot yoga) og lotutímar eins og
tabata, en þar eru gerðar æfingar af fullum
krafti í skorpum, mikið reynt á sig í skamm-
an tíma og svo hvílt örstutt. Í tilviki tabata er
æft af fullum krafti í tuttugu sekúndur, hvílt
í tíu, og þetta er gert átta sinnum við hverja
æfingu. „Þetta er mjög gott æfingaform;
reynir vel á hjartað, æðakerfið og styrkir
vöðva,“ segir Gígja. Nýjasti lotutími World
Class er svokallað HIIT Fit. Þar er kennar-
inn ekki bundinn við það að láta fólk æfa í
tuttugu sekúndur og hvíla í tíu. „Kennarinn
setur upp fjölbreytta skiptingu á átaki og
hvíld. Fólk fær mikið út úr tímanum því
æfingarnar eru ekki fyrirsjáanlegar,“ segir
hún. Þjálfarar World Class settu saman
þetta æfingakerfi, HIIT Fit, úr æfingum
sem hafa reynst þeim vel í gegnum tíðina.
Golf jóga – fyrir golfarann
Í haust verður boðið upp á golf jóga. „Golf
er vinsæl íþrótt og áhugamál margra. Það
gleymist stundum að liðleiki í hryggnum og
styrkur í kvið- og bakvöðvum er lykilatriði
til að ná árangri í golfi. Fólk þarf að vera
mjúkt í hreyfingum,“ segir Gígja. Blaða-
maður nefnir hann sé of stirður til að þora
í jóga. „Þeir sem eru stirðir þurfa á jóga að
halda! Þetta er bara spurning um að byrja
og prófa,“ segir hún.
World Class blandar ýmsum æfingum
saman í eitt æfingakerfi, eins og í HIIT Fit.
Í vetur verður boðið upp á Jóga Fit; þar er
blandað saman góðum jógaæfingum og
hefðbundum styrktaræfingum. Andrúms-
loftið í tímunum er mitt á milli jógatíma og
hefðbundinna æfingatíma, að sögn Gígju.
„Við erum líka að byrja á skemmtilegum
tímum sem heita Buttlift, þar eru gerðar
æfingar fyrir neðri hluta líkamans, með
sérstaka áherslu á rass og læri. Með og án
lóða. Æfingarnar eru mótandi fyrir rass og
læri,“ segir Gígja. „Ekki verra að fá góðan
stútrass.“
Púlsspinning er nýjasta viðbótin við
spinningatímana. Þátttakendur eru með
púlsmæli á meðan þeir hjóla og svitna í tím-
anum. „Það hefur reynst rosalega vel því
fólk er meðvitað um hvað það getur og hvað
þarf til að ná æskilegum púlsi,“ segir Gígja.
Boðið er upp á púlsspinning í World Class í
Spönginni en það stendur til að bjóða upp á
það á fleiri stöðum.
Sautján námskeið
World Class býður upp á sautján mismun-
andi námskeið þar sem þátttakendur geta
náð árangri undir handleiðslu kennara.
„Þar færðu líka aðhald frá kennurum; það er
hringt í þig ef þú mætir ekki og boðið upp á
fræðslu,“ segir Gígja. Næstu námskeið hefj-
ast 5. september.
Má þar nefna til að mynda Zumba dans-
námskeið, sem er suður-amerískur dans
með einföldum sporum. „Þetta er fyrir fólk á
öllum aldri, bæði konur og karla. Í dansinum
er mikið fjör og mikið svitnað. Það er virki-
lega gott fyrir sálina enda mikið af gleði-
hormónum sem losna þegar við dönsum,“
segir hún.
World Class verður með unglinganám-
skeið fyrir 13-16 ára, sem heitir Fit 4 U.
„Tilgangur námskeiðsins er að kenna
unglingum að æfa og auka meðvitund um
mikilvægi góðrar heilsu. Við sýnum þeim
hvað er æskilegt og hvað er óæskilegt að
gera í líkamsrækt. Oft vantar táninga færni
í grunnæfingum og þeir geta haft ranghug-
myndir um lóðalyftingar og heilbrigði. Það
er ekki æskilegt að lyfta þungum lóðum
á vaxtarárunum,“ segir Gígja. Almennt er
aldurstakmarkið í æfingasalinn 15 ára, en
ýmsir hafa fengið undanþágu, t.d. til að æfa
með foreldrum sínum.
Pilates
Boðið er upp á pilates-námskeið, bæði „core“
og „peak“. „Peak hefur verið rosalega vin-
sælt í mörg ár; þar eru gerðar hefðbundnar
pilates-æfingar sem styrkja kvið og bak og
bæta líkamsstöðuna. En nú höfum við bætt
við því sem kallað er core pilates-æfingar, en
þær eru gerðar á stórum æfingabolta. Þetta
er aðeins öðruvísi útfærsla á pilates-æfing-
um sem styrka hina djúpu kvið- og bak-
vöðva og minnka hættu á bakvandamálum.
Svo eru þetta lúmskt erfiðar æfingar. Líkam-
inn verður fallega mótaður því maður notar
einungis eigin líkamsþyngd,“ segir Gígja.
Pilates-æfingarnar eru fyrir fólk á öllum
aldri því hver og einn æfir á sínum hraða.
Jóganudd (Thai Yoga Massage) er
skemmtileg nýjung hjá World Class en
kennarinn fór til Taílands til að læra
listina. Þátttakendur í námskeiðinu eru
nuddaðir inn í hinar ýmsu jógastöður
og komast þannig oft dýpra í stöðurnar
en þeir gætu af sjálfsdáðum. Þrátt fyrir
nafnið liggja rætur þess í indversku jóga.
Talið er að indverskir búddamunkar hafi
flutt með sér hefðina til Taílands fyrir um
2.000 árum. „Þetta eru frekar rólegar
jógaæfingar, en kennarinn aðstoðar hvern
og einn við að ná dýpra inn í hverja stöðu
og teygju. Kennarinn ýtir fólki lengra og
leiðréttir stöðu. Þetta er rosalega skemmti-
legt,“ segir Gígja.
Það er að sjálfsögðu líka boðið upp á
námskeið þar sem allt er á fullu allan tím-
ann. Þar ber hæst súperform, Cross Fit og
Fit 4 All . Í Fit 4 All-námskeiðinu vita þátt-
takendur aldrei hverju þeir mega eiga von
á því það eru nýjar æfingar í hverjum tíma.
Námskeiðin tengjast að vissu leyti því þeir
sem eru í Fit 4 All æfa í Cross Fit-sal sem
býður upp á fleiri möguleika við æfingar.
Cross Fit
„Cross Fit tröllaríður öllu núna,“ segir
Gígja. „Við erum að bæta Cross Fit-salinn
okkar í Kringlunni og ætlum að taka þetta
með trompi í vetur! Við höfum fjölgað
tímum og ætlum að gera Cross Fit enn
betra. Við bjóðum upp á grunnnámskeið
og fjölgum opnum tímum, þ.e. WOD (e.
workout of the day), sem er fyrir þá sem
hafa lokið grunnnámskeiði.“
Gígja segir að haustið sé alltaf skemmti-
legur tími. „Allir eru fullir af orku og
margir nýta vendipunktinn til að drífa sig
aftur í ræktina.“ Hún leggur hins vegar
áherslu á að fólk fari varlega af stað, til
að fyrirbyggja meiðsli, og hvetur alla til
að nýta sér ráðgjöf frá starfsfólki World
Class. Til dæmis hafi korthafar aðgang að
þjálfurum sér að kostnaðarlausu, hægt sé
að ráðfæra sig við þá um æfingaplan og
hvernig gera eigi æfingar.
KYNNING
NámsKeið í WorLd CLass
Heilsurækt er
skemmtileg og
úrvalið mikið
Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri hjá World Class.
Ánægðir æfingafélar á Crossfit-námskeiði hjá World Class.