Fréttatíminn - 26.08.2011, Blaðsíða 67
SÍÐASTA TILBOÐSHELGIN
fyrstu hæð Sími 511 2020 Erum á
40 - 70%
AFSLÁTTUR
NÝJAR HAUSTVÖRUR KOMNAR
kr. 9.890.-
kr. 29.490.-
kr. 21.490.-kr. 21.490
Nýtt frá
Marie Claire
Nýr Landspítali háskólasjúkrahús við Hringbraut:
Almennur kynningArfundur
um drög Að nýju deiliskipulAgi
*Nýr Landspítali ohf. hefur það að markmiði að standa að nauðsynlegum undirbúningi og láta bjóða út byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Í kjölfar þess að skipulagsráð Reykjavíkur heimilaði almenna kynningu á drögum að deiliskipulagi á lóð
Landspítala við Hringbraut þann 24. ágúst sl. efnir NLSH*, ásamt Landspítala og Háskóla Íslands, til
kynningarfundar fyrir almenning nk. miðvikudag, 31. ágúst, kl. 17:30 í stofu 105 á Háskólatorgi.
Forstjóri Landspítala, rektor
Háskóla Íslands og fulltrúar
hönnunarhópsins SPITAL
kynna verkefnið og drög að
deiliskipulagi á lóð Landspítala
á fundinum. Veggspjöld með
uppdráttum og
þrívíddar myndum verða til
sýnis og sérfræðingar á vegum
verkefnisstjórnar NLSH verða á
vettvangi til að svara
spurningum gesta.
Kynningardagar verða
einnig 1.-6. september
í Heilsuverndarstöðinni
við Barónsstíg þar sem gestir
og gangandi geta skoðað
veggspjöld og rætt við
starfsfólk verkefnisstjórnar.
Kynningarefni verður
aðgengilegt frá 1. september í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar
á Höfðatorgi, á vefsíðu
Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is,
og á verkefnavef NLSH;
www.nyrlandspitali.is.
Ábendingar og athugasemdir
vegna deiliskipulagsdraganna
skal senda á netfangið
skipulag@reykjavik.is.
SPITAL
A
T
H
Y
G
L
I
Helgin 26.-28. ágúst 2011
Ný fatalína frá
Kardashian-systrum
K ardashian-systurnar Kim, Khloe og Kourtney hófu
sölu á nýjustu haustlínu sinni,
Kardashian Kollection, í gær,
25. ágúst. Línan hefur verið
lengi í bígerð og fengu stelp-
urnar innblásturinn að henni úr
fataskápunum sínum.
Um síðustu helgi héldu syst-
urnar heljarinnar samkvæmi
til að frumsýna fatnaðinn og
klæddist öll fjölskyldan fatnaði
úr línunni. Í samkvæminu birtu
þær einnig fyrstu myndirnar
fyrir auglýsingaherferðina þar
sem þær þrjár sitja fyrir í bletta-
tígramynstruðum klæðnaði.
Biður aðdáendurna
um hjálp
T áningssöngvarinn Justin Bieber sló öll sölumet með
Somday, ilminum sem hann hann-
aði fyrr á árinu.
Nú hefur kærastan hans, Selena
Gomez, ákveðið að hanna sinn
fyrsta ilm og hefur beðið aðdá-
endur um hjálp. Hún opnaði vefinn
selenagomezperfumes.com þar
sem hún biður aðdáendur að segja
skoðun sína. Söngkonan mun svo
gefa þeim sem voru henni hjálp-
legir 50 þúsund fríar ilmflöskur
og tíu fría tónleikapassa á næsta
tónleikaferðalag hennar. Ilmurinn
er væntanlegur snemma á næsta
ári og mun koma í mörgum millj-
ónum eintaka.