Læknablaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 78
LÆKNABLAÐIÐ
Aðstoðaryfirlæknir og
aðstoðarlæknir
SÖRLANDETS REVMATISMESYKEHUS, Kristiansand S,
Noregi, óskar eftir aðstoðaryfirlækni og aðstoðarlækni með
2—3 ára reynslu í lyflækningum. Stytzti ráðningartími að-
stoðaryfirlæknis er tvö ár, en aðstoðarlæknis eitt ár. —
Grunnlaun aðstoðaryfirlæknis eru um 49.000 n. kr. en að-
stoðarlæknis um 43.000 n. kr. Mun sjúkrahúsið leggja til
íbúð.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu læknafélag-
anna, Domus Medica.
Aðstoðarlæknir
LANDSSJÚKRAHÚSIÐ, DRONNING ALEXANDRINE
HOSPITALET, Þórshöfn í Færeyjum, óskar eftir fyrsta
aðstoðarlækni á lyfjadeild hið allra fyrsta. Vaktflokkur
C/D. Sjúkrahúsið leggur til nýlega íbúð með öllum nú-
tímaþægindum og húsgögnum.
Svo fremi sem umsækjandi ræður sig til minnst eins árs,
mun sjúkrahúsið greiða farmiða Reykjavík—Þórshöfn með
skipi (1. farrými) fyrir lækni og eiginkonu ásamt 1800 d.
kr. (rúml.) vegna flutnings eigin muna. Ef umsækjandi
ræður sig til tveggja ára, mun sjúkraíhúsið einnig á sama
hátt greiða heimför.
Umsóknir ritaðar á Sygehusdirektören, Tinganes, 3800
Tórshavn, sendist til overlægen, medicinsk afdeling, Lands-
sjúkrahúsið, Tórshavn, Fþroyar.