Læknablaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
75
Sigmundur Magnússon:
ANEMIA APLASTICA í KJÖLFAR
KLÓRAMFENIKÓLNOTKUNAR *
Erindi flutt á fundi í L. R. haustið 1966.
Á síðastliðnu vori tók ég saman öll dæmi um tilfelli á Land-
spítalanum, sem skráð voru undir sjúkdómsheitunum anemia
aplastica, agranulocytosis og thrombocytopenia, en thrombocyto-
penia idiopathica undanskilin. Dæmin voru frá árunum 1957—
1966. Samtals voru á skrá 21 sjúklingur. Hjá 13 þeirra var vitað
um undanfarandi notkun lyfja. Þetta er að vísu ekki stór hópur,
en hann bendir þó eindregið til þess, að meðal okkar séu þessir
fylgikvillar lyfjanotkunar, eins og meðal annarra þjóða.
Tilfellin eru of fá til að reisa á tölfræðilegar niðurstöður um
tíðni þessara fylgikvilla hér á landi með nokkurri vissu, enda nær
athugunin ekki til alls landsins. Það var ekki heldur tilgangui
minn, en ég vildi með þessu vekja lækna til umhugsunar um
ýmsa alvarlega fylgikvilla lyfjanotkunar, einkum klóramfenikóls.
Möi-g sýklalyf (ótalin) .................................. 1
Irgapyrin (R) 2
Irgapyrin (R), klóramfenikól ............................. 1
Irgapyrin (R), fenýlbútazón, klóramfenikól ............... 1
Veirusjúkdómur ........................................... 1
Samtals 6
I. tafla. Kyrnikornahrap.
Af I. töflu sést, að fjórir af fimm þeirra, sem höfðu kyrni-
kornahrap (agranulocytosis) samfara lyfjagjöf, höfðu tekið irga-
pyrin. Þessir sjúklingar lifðu allir. Tveir höfðu jafnframt fengið
klóramfenikól og klóramfenikól og fenýlbútazón, en gangur og
mynd sjúkdómsins hjá þeim líktist miklu fremur áhrifum irga-
*) Rannsóknarstofa í blóðmeinafræði, Landspítalanum, og lækna-
deild Háskóla íslands.