Læknablaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 46
96
LÆKNABLAÐIÐ
Frá Giktsjúkdómafélagi íslenzkra lækna
Giktsjúkdómafélag íslenzkra lækna hélt aðalfund 1969 að Hótel
Loftleiðum 2. apríl sl. Félagsmenn eru nú rúmlega 30.
Á síðasta ári stóð félagið fyrir einum fræðslufundi (symposium)
um liðagikt, þar sem sjö íslenzkir læknar fluttu stutt erindi. Auk
þeirra flutti sænskur giktsjúkdómalæknir (rheumatolog), Erik Ai-
lander, erindi um hóprannsókn varðandi liðagikt. Eftir leiðbeining-
um hans og í samvinnu við Hjartavernd er nú þegar hafin könnun
á tíðni liðagiktar á íslandi.
Á aðalfundinum hélt Höskuldur Baldursson erindi um arthrosis.
í stjórn félagsins eru nú: Jón Þorsteinsson formaður, Hannes
Finnbogason ritari og Höskuldur Baldursson gjaldkeri.
RIT SEND LÆKNABLAÐINU
Eftirfarandi rit hafa borizt blaðinu:
Baldur Johnsen: Food in Iceland 875—1550. Sérprentun úr Medicin
historisk Árbok 1968.
Stefán Guðnason: Disability in Iceland. Prentsmiðja Jóns Helga-
sonar, Reykjavík, 1969.
Guðmundur Bjarnason and G. Petterson: The treatment of intuss-
ception: Thirty years’ experience at Gothenburg’s Children’s Hospital.
J. Paediatric Surg. 3. 19, 1968.
Jón Alfreðsson: Idiopatisk Trombocytopen purpura o'ch graviditet.
Lákartidningen ’66: 1178—1179, 1969.
Björn Guðbrandsson: Stenóza Pyloru u kojencu. Ceskoslovenska
Pediatrie Praha, 23, 9, 778—78—, 1968.
Blaðið sendir höfundum beztu þakkir.
\