Læknablaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
99
frá öllum konum 16 ára og eldri, sem lagÖar voru á lyflækninga-
deild Landspítalans og lyflækningadeild Borgarspitalans, alls 459.
Þvagsýni voru tekin morguninn eftir komudag og aftur næsta
dag. Hjúkrunarkonur önnuðust sýnitöku. Sjúklingur kastaði þvagi
fjTÍr svefn og var síðan fastandi og án vatns til næsta morguns,
unz sýni var tekið. Þess var gætt, að sex klukkustundir hefðu
liðið frá síðustu þvaglátum. Tekið var miðbunuþvag eftir þvott
með benzalconium 2%. Sýni voru tekin um ld. 8:00 og send
innan klukkustundar til rannsóknar. Þá voru einnig rannsökuð
þvagsýni frá óvöldu úrtaki kvenna í hóprannsókn Hjartaverndar
í október 1968—febrúar 1969, samtals 297. Þessi sýni voru tekin
af meinatækni á tímabilinu kl. 8:30—10:30. Þau voru kæld þegar
eftir töku og send til rannsóknar um kl. 12:00.
Niðurstöður
Á I. töflu sést heildarniðurstaða allra prófa, sem gerð voru á
459 sýnum frá 254 sjúklingum á sjúkrabúsum. Rannsökuð voru
að jafnaði tvö sýni frá hverjum sjúklingi. Af ýmsum ástæðum
fékkst aðeins eitt sýni frá 65 sjúklingum, tvö sýni frá 179, þrjú
sýni frá fimm, fjögur sýni frá fjórum og fimm sýni frá einum
sjúklingi. Kannaðar voru sjúkraskrár þeirra sjúklinga, sem reynd-
ust skakkt jákvæðir eða hafa > 100.000 gramneikvæðra sýkla.
Sjá athugasemdir á I. töflu. Sjö sýni frá fjórum þessara 254 sjúkl-
inga gáfu enga litarsvörun, þó að sýklafjöldi í sýnunum væri
< 100.000 á ml.
II. tafla sýnir árangur uriglox-prófs við greiningu á þvagfæra-
sýkingu af völdum gramneikvæðra s}'kla. Alls gáfu 34 sýni enga
litarsvörun, og þar af reyndust 31 innihalda ^ 100.000 sýkla í
ml við ræktun. Þau þrjú sýni, er við sýklatalnipgu reyndust hafa
< 100.000 sýkla í ml, eru skýrð á II. töflu (sjá 4, 5, 6).
Alls gáfu 56 sýni litarsvörun, og þar af reyndust fjögur sýni
innihalda > 100.000 sýkla í ml (sjá 1, 2, 3, 7 neðan við II. töflu).
III. tafla sýnir árangur uriglox-prófs við greiningu þvagfæra-
sýkingar í óvöldu úrtaki 297 kvenna á aldrinum 33—60 ára (eitt
sýni frá hverri konu). Könnuð var lyfjanotkun þátttakenda. Að-
eins eitt sýni með < 100.000 sýkla í ml gaf enga litarsvörun (sjá
7 neðan við III. töflu).
Af IV. töflu má sjá árangur uriglox-prófs við greiningu þvag-
færasýkingar hjá þeim konum úrtaksins, er höfðu einungis gram-
neikvæða sýkla í þvagi. Alls reyndust þetta vera 59 konur. 17 sýni,
er gáfu enga litarsvörun, reyndust öll hafa > 100.000 sýkla í ml