Læknablaðið - 01.06.1969, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ
89
fræðinnar. Þetta gildir því miður ekki um Island. Má segja, að
í því efni séu allir sammála, en engum er þetta eins vel ljóst og
sérfræðingum greinarinnar. Þróunin hefur ekki verið eins og í
öðrum löndum í þessari sérgrein, sé borið saman við aðrar sér-
greinir. Erlendis hefur sérgreinin nú á tímum venjulega á að
skipa fleiri læknum og fleiri sjúkrarúmum en t. d. barnadeildir.
Við læknadeild H. 1. stendur hún langt frá því jafnfætis barna-
lækningum eða öðrum aukagreinum, sem kenndar eru við deild-
ina. Með þessu er ekki sagt, að barnadeildir hafi ekki fulla þörf
fyrir sín sjúkrarúm. Dæmið er aðeins tekið til samanburðar.
Ekki er enn til sérdeild í „klassískri orthopaedi“ við kennslu-
stofnun landsins. Þessu er nú svo farið, þrátt fyrir það að vei
hafi verið barizt. Af þessu leiðir, að læknar landsins hafa fengið
takmarkaða kennslu og æfingu í greininni, og af því leiðir síðan,
að kröfur almennings hljóta að verða minni til þessarar sér
greinar en flestra annarra.
Hinir fáu sérfræðingar okkar, sem starfað hafa heima, hafa
flestir a. m. k. verið það hlaðnir öðrum störfum, að tími hefur
einungis orðið til hins allra nauðsynlegasta. Þeir eiga því enn
sinn draum um, að þessi deild rísi upp. Hefur það mætt ein-
hverri andstöðu að koma upp aukinni þjónustu í þessari grein,
sem samsvarar öðrum greinum og þykir þar sjálfsagður hlutui ?
Eða hverrar annarrar skýringar er að leita á því, að sérdeild
í greininni við kennslustofnun landsins er seinast komið á fót
í nýbyggingu Landspítalans?
Erfiðleikar á öflun hjálpartækja fyrir sjúklinga og fámenni
sérmenntaðra sjúkraþjálfara hefur áreiðanlega gert starf okk-
ar fáu sérfræðinga enn erfiðara,
Á mörgum sviðum er á Islandi læknisþjónusta, sem telja má
til fyrirmyndar, jafnvel borið saman við mikil menningarlönd, en
á þessu sviði er þjónustunni ábótavant, Þess vegna er sanngjarnt
og fyrir löngu réttlætanlegt, að fjármagn og öll önnur aðstoð,
sem nauðsynleg er til að geta veitt sömu þjónustu í þessari grein
læknisfræðinnar, sé í réttum hlutföllum við aðrar greinir henn-
ar. Hér má og benda á, að séu beinbrot taiin til hinnar klass-
ísku orthopaedi, eins og nú á tímum er almennt viðurkennt, er
þessi grein ein af hinum stærstu innan læknisfræðinnar.
Hversu mörgum sjúkrarúmum þarf þessi sérgrein á að halda
á Islandi? 1 Svíþjóð hefur próf. Erik Moberg, að tilhlutan heil-
brigðisyfirvalda þar, gert tillögur á þessu sviði.6 Telur hann, að
beinbrot eigi einnig að meðhöndla á þessum deildum, eins og nú