Læknablaðið - 01.08.1969, Blaðsíða 17
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson- Meðritstjórar: Karl Strand og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Ásmundur Brekkan og Hrafn T linius (L.R.)
55. ÁRG. ÁGÚST 1969 4. HEFTI
ARI JQNSSON
LÆKNIR
f. 2. maí 1898 — d. 8. nóvember 1907
Ari Jónsson var fæddur á Húsavík. Foreldrar: Jón prestur bar
Arason og kona hans, Guðríður Ólafsdóttir frá Mýrarhúsum á Sel-
tjarnarnesi.
Ari varð stúdent í Reykjavík í júní 1919, cand. phil. í maí 1920 frá
Háskóla íslands og cand. med. í júní 1925. Hann starfaði á Kommune-
hospitalet í Kaupmannahöfn nóv.—des. 1925, fæðingarstofnun í Ár-
ósum jan. 1926, Rigshospitalet febr.—marz 1926. Hann var staðgöngu-
maður héraðslæknisins á Fljótsdalshéraði apríi—ágúst 1926: settur
1926 frá 1. okt. að telja og skipaður 18. marz 1927 héraðslæknir í Hró-
arstunguhéraði. Hann var skipaður í júlí 1933 héraðslæknir í Fljóts-
dalshéraði og 2u. des. 1944 héraðslæknir í Egilsstaðahéraði frá 1. jan.
1945 að telja. Þá er Egilsstaðahéraði var skipt í tvö læknishéruð 1954.
valdi hann sér samkvæmt heimild laganna að gegna áfram Egilsstaða-
héraði eystra. Hann fékk lausn frá embætti 27. júní 1960 frá 1. okt.
og fluttist til Reykjavíkur og lézt þar.
Ari var kvæntur Sigríði Soffíu Þórarinsdóttur, prests á Valþjóís-
stað, Þórarinssonar. Börn: Ragnheiður (14. nóv. 1930—28. nóv. 1933),
Guðríður Erna hjúkrunarkona, fædd 28. jan. 1932, Ragnheiður, fædd
23. sept. 1933.